Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Qupperneq 19

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Qupperneq 19
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 17 Arnar Kauksson læknir Monitor, ný tækni við yfirsetu í fæðingu — Fósturhjartsláttarrit Skilgreining Orðið monitor er úr latínu og merkir sá sem minnir á, eða sá sem varar við. í læknisfræði hefur orðið fengið sérhæfða merk- ingu. Þar er það notað til þess að tákna reglubundna eða sam- fellda skráningu á lífeðlisfræðilegri starfsemi mannslíkamans. í suma monitora er innbyggt aðvörunarkerfi, sem gefur til kynna þegar slík starfsemi fer út fyrir eðlileg mörk og hefur þannig tækið fengið sína upprunalegu merkingu, sá sem varar við. Yfirseta í fæðingu í fæðingu er margs að gæta og margt að skrá, bæði hjá móður og fóstri. Hjá móður mælum við hita, púls, blóðþrýsting og leg- samdrátt ásamt leghálsbreytingum. Hjá fóstri getum við mælt fósturhreyfingar, öndunarhreyfing- ar, fósturhjartslátt og fósturblóðgös. Þessari grein er ætlað að skýra notkun monitors við skráningu fósturhjartsláttar (FHR), en því var minnst á áðurnefnd atriði að þau hafa veruleg áhrif á niðurstöður slíkrar skráningar. Nefnum dæmi: Hitabreytingar móður, einkum hækkaður hiti, hafa veruleg áhrif á fóstrið. Tachycardia hjá fóstrinu er oft fyrsta merki um hita hjá móður og langvinn tachycardia getur leitt til acidosis hjá fóstrinu.

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.