Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Page 20
18
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Ef fylgja er orðin léleg veldur lækkaður blóðþrýstingur móður,
t.d. sé hún undir sterkum verkja- og deyfilyfjum, í epidural deyf-
ingu og svo framvegis, minna blóðflæði til fósturs og virkar sem
álag á það. Hraður púls móður (tachycardia) getur valdið hröðum
púls hjá fóstrinu með áðurnefndum afleiðingum.
Við notum hefðbundna mælitækni til að fylgja hita, púls og
blóðþrýstingi: hitamæli, blóðþrýstingsmæli og talningu á púls, en
háþróuð tæki eru til, sem tengja má beint við móður og fá þannig
stöðuga skráningu á þessum þáttum.
Fósturöndunarhreyfingum var fyrst lýst af Boddy og Robinson
1971, sem mælikvarða á vellíðan fósturs. Flestir nota hátíðni-
hljóðritun (A-scann ultrasound). Slíkt tæki er stórt og fyrirferðar-
mikið. Ólíklegt er því að það komist i almenna notkun við
fæðingar.
Skráning móður á fósturhreyfingum hefur gróft gildi sem mat á
vellíðan fósturs á meðgöngutímanum, en þegar komið er á
fæðingastofu er það gagnslaust gagnvart þróaðri rannsóknaað-
ferðum.
Leghálsútvíkkun er almennt fylgt eftir með vaginal þreifingu,
af ljósmæðrum þeim og læknum sem fæðinguna annast. Menn
hafa einnig smíðað tæki, sem hægt er að koma fyrir í leggöngum
og mælir nákvæmlega útvíkkunina og áhrif einstakra hríða á leg-
hálsinn. Þetta er á tilraunastigi, enn sem komið er.
Skráning legsamdrátta, hríða
Legsamdrættir hafa meginþýðingu við lestur og túlkun FHR-
rita. Margar aðferðir eru til þess að meta fjölda, lengd og styrk-
leika þeirra. Elsta aðferðin er með þreifingu á kvið. Síðar komu til
þrýstinemar, sem spenna má á kvið konunnar yfir legbotni (fund-
us) (tocodyna mometer). Það þarf nokkra æfingu í að staðsetja þá
rétt, eigi þeir að gefa áreiðanlegar upplýsingar. Niðurstöður
þeirra breytast við breytta legu sjúklings og verða mjög óöruggar
hjá feitum sjúklingum. Nákvæmust mæling fæst með því að setja
holan, grannan, vatnsfylltan legg upp í legið, eða legg með þrýst-
ingsnema, sem síðan er tengdur við „monitor” sem skráir á rit
bæði byrjun, lengd, styrkleika og tíðni hríðanna (intrauterin
pressure registration). Þetta er ekki hættulaus aðgerð nema í
höndum þjálfaðs starfsliðs.