Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Side 21
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
19
Skráning fósturhjartsláttar (FHR)
Fyrstu „monitorar” í fæðingu voru yfirsetukonur, ljósmæður
og læknar. Engin tæki geta leyst þau af hólmi, heldur eiga tækin
að vera þessu fólki til hjálpar. Við ráðum nú yfir fjórum aðferð-
um við að mæla og skrá hjartslátt fósturs, premur óbeinum,
áverkalausum aðferðum (noninvasive), og einni beinni áverkaað-
ferð (invasive), auk hlustunarpípunnar gömlu, sem við minnumst
á síðar.
Óbeinar áverkalausar aðferðir (noninvasive) við fóstur-
hjartsláttarritun (FHR)
1) Óbein fósturhjartaafritun (abdominal electrocardiographia,
ECA).
Strax 1906 var vitað að nema mætti fósturhjartslátt með raf-
skauti (electrode) staðsettu á kvið móður. (Mynd 1). Þessi aðferð
á þó enn í dag við marga örðugleika að etja og sá er mestur, að
VERKUN ÚTSKRIFT
5 m»ec« at 120 bpm.
Samtíma móður/fóstur complex signal signal
Srafskaut WID™ INTERVAL
RafboS
Mynd 1. Fósturhjartsláttarafritun frá kvið móð.ur ásamt útskrift. Takið eftir
mengun frá hjartslcetti móður.
,,QRS complex” móðurinnar mengar ritið frá fóstrinu, þannig að
þegar hjartsláttur fósturs og móður fellur saman hylst fósturút-
slagið. Við sjáum það ekki og getum því ekki mælt það eða látið
monitor telja það. Reynt er að endurbæta þessa monitora, í
áhættutilfellum eru þeir ekki nógu áreiðanlegir. Kostur er að þetta
er algjörlega áverkalaust (noninvasive) og því heppilegt til þess að
skrá hjartslátt fósturs á meðgöngutíma og byrjun fæðingar.
Fóstur ECG Móður ECG Approx. 500 msec*