Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Blaðsíða 24
22
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
ar með hátíðnihljóðritun (ultrasound), er ekki sambærileg við
skráningu hjartarafrits (ECG) beint frá fóstri, þar sem hljóðbylgj-
urnar koma frá hreyfingu hjartans, en ECG frá rafboðum hjart-
ans. Stafi hljóðbylgjurnar frá hjartalokunum líkjast þær í mörgu
ECG. En séu þær frá veggjum sleglanna er skráningin ólík ECG.
Rétt túlkun á ritinu er því eingöngu möguleg að maður skilji upp-
runa þess. Hátíðnihljóðritun (ultrasound) dugir vel við allar
venjulegar hjartsláttarritanir. En í vafa- og áhættutilfellum er
ekki neitt nógu nákvæmt nema bein ECG-skráning af kolli barns.
Bein áverkaaðferð (invasive)
við fósturhjartsláttarritun (FHR)
4) Þetta er beint hjartaafrit fósturs (electrocardiogram, ECG).
Það er einungis hægt að fá séu belgir sprungnir, eða sprengja
verður belgi til að koma því við. Fram að því verður að nota ein-
hverra áðurnefndra þriggja aðferða. Hér er rafskaut (electrode),
sem venjulega er spirall eða lítil klemma, fest á fyrirsætan fóstur-
hluta (Mynd 5). Liggur svo leiðsla yfir í monitorinn. Leiðslan
Mynd 5. Beinl fósturhjartaafrit. Myndin sýnir siifurspiralrafskautið og staðsetn-
ingu jarðrafskauta og útskrift af monitor.
hefur tvöfalt jarðsamband. Hið fyrra er Iítið silfurskaut rétt ofan
við sjálfan spíralinn og fær það jörð við það að leggjast upp að