Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Blaðsíða 31
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
29
Þorgerður Benediktsdóttir lögfræðingur
Fæðingarorlof almanna-
trygginga í mars 1981
Með lögum nr. 97 frá 29. desember 1980 um breytingu á lögum
um almannatryggingar, sem gengu í gildi 1. janúar 1981, var nýr
bótaflokkur, fæðingarorlof, felldur undir almannatryggingar.
Fram til þess tíma áttu konur annars vegar samningsbundinn rétt
til launa frá atvinnurekanda í fæðingarorlofi (yfirleitt í skamman
tima) og hins vegar var um að ræða atvinnuleysisbætur i fæðing-
arorlofi. Opinberir starfsmenn og bankastarfsmenn höfðu þó þá
sérstöðu að eiga rétt til óskertra launa í þriggja mánaða fæðingar-
orlofi, og helst sá réttur óháður almannatryggingalöggjöf.
Þær konur, sem ekki störfuðu á vinnumarkaðnum, s.s. heima-
vinnandi húsmæður og bændakonur, svo og þær konur, sem
unnu utan heimilis án þess þó að uppfylla skilyrði atvinnuleysis-
tryggingarlaga um fæðingarorlofsgreiðslu, voru réttlausar á þessu
sviði, og var hér um stóran hóp að ræða.
Með hinu nýja fyrirkomulagi er nú öllum konum, sem lögheim-
ili eiga á íslandi, tryggð greiðsla fæðingarorlofs í þrjá mánuði.
Flestar konur sækja nú þenna rétt sinn til almannatrygginga, en
opinberir starfsmen og bankastarfsmenn halda rétti sínum til
launa í fæðingarorlofi óbreyttum, eins og áður greindi. Nokkur
hluti þeirra uppfyllir þó ekki skilyrði til greiðslu launa í fæðingar-
orlofi og er honum því tryggður réttur til fæðingarorlofsgreiðslu
almannatrygginga. Þannig er nú komið í veg fyrir að nokkur kona
sé réttlaus á þessu sviði.