Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Side 35

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Side 35
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 33 Með hraðfara frumuskiptingu, myndast fyrst hnöttóttur hnyk- ill, „Morula” sem er 12—16 frumur. Allar þessar frumur sýnast af sömu gerð. Þær greinast þó í „innercellmass” sem þróast í fóstur og „outercellmass” sem þróast í fylgju og fósturhimnur. Áfram verður hröð frumuskipting og vökvi þröngvar sér á milli innercellmass og outercellmass. Þetta holrúm sem myndast kallast blastocele. Þegar þessi vökvi þröngvast á milli þrýstir hann inner- cellmassanum saman að öðrum pól eggsins. Innra frumulagið kallast nú embryoblast og ytra frumulagið kallast nú trophoblast. Á 4. degi er eggið komið inn i legholið og á 7. degi byrjar það að grafa sig inn í endometrium og er það fósturpóllinn sem gefur sig fyrst. í lok annarrar viku er eggið búið að grafa sig inn í endometrium og blóð hefur myndað storkutappa í desidua, þar sem eggið tróð sér inn. Normalt á implantation sér stað í efri hluta cavum uteri. Við implantation eiga sér stað breytingar í endometrium. Frumur í endometrium safna í sig fitu og glykogeni, tútna út og verða bjúg- kenndar. Endometrium verður mun æðaríkari, þessi breyting byrjar umhverfis staðinn þar sem implantation á sér stað og dreif- ist síðan út um allt holið og kallast þá endometrium: Desidua. Desidua skiptist i: a) Desidua basalis, það er maternal hluti fylgju. b) Desidua capsularis, það er sá hluti, sem umlykur eggið að ofan. c) Desidua vera (pariatalis), það er sá hluti, sem þekur legholið að öðru leyti. Trophoblastið samanstendur af tveimur gerðum frumna: a) Cytotrophoblast, sem eru einkjarna stakar frumur, sem fram- leiðir síðan syncytotrophoblastið með mítótuskiptingu. b) Syncytotrophoblast, sem samanstendur af margkjarna risa- frumum og liggur innar í desidua. í syncytotrophoblastinu hefst fylgjumyndunin: Á 9—10 degi fara að myndast eyður og holrúm í syncyto- trophoblastinu sem kallast lacunae bil. Lacunae renna saman og mynda stærri eyður, með bjálkum (trabeculae) á milli.

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.