Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Síða 36
34
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Á ca. 12. degi fyllast holrúmin af blóði frá móður og hefst þá
maternal placental blóðrás.
í lok annarrar viku byrjar cytotrophoblastið að vaxa inn í syn-
cytotrophoblast bjálkana og mynda primer stofn villi.
Um miðja þriðju viku (18—20 d.) fer extra embryonal meso-
dermið að vaxa inn i miðju bjálkana og mynda secunder stofn
villi.
Á 4. viku (20—30 d.) myndast blóðæðar fósturs i mesodermi
bjálkana og fötal placental blóðrás hefst.
í fyrstu myndast stofn villusar í trophoblstinu allt í kringum
fóstrið. Smátt og smátt eyðast villusarnir við embryonal pól og
chorion laeve myndast. Við embryonal pólinn halda villi áfram að
þroskast og chorion frondosum myndast, sem ásamt desidua bas-
lis myndar fylgju.
Það tekur fylgjuna ca. 3 mánuði að ná fullum þroska bæði í
uppbyggingu og starfsemi.
Fóstrið er umlukið tveimur himnum:
a) Innri himnan, amnion vatnsbelgur, myndast út frá cytotropho-
blastinu.
b) Ytri himnan, chorion, samanstendur af trophoblasti og band-
vef.
í lok 3. mánaðar er bilið milli chorion og amnion horfið og
liggja þeir nú þétt hvor upp að öðrum upp að legveggnum.
í byrjun 4. mánaðar hefur fylgjan tvo hluta:
a) Fetal hluta, myndaður af chorion frondosum.
b) Maternal hluta, myndaður af desidua basalis.
Fylgju má skipta í:
a) Chorion plate
b) Desidual plate
c) Intervillus rúm.
Chorion plate samanstendur af:
Amnion, Extra embryonal mesodermi og trophoblasti.
Desidual plate samanstendur af:
Trophoblasti og Desidua basalis.
Intervillus rúm er milli chorion og desidual plate og er fyllt
blóði móður.