Ljósmæðrablaðið - 01.04.1981, Blaðsíða 38
36
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
2 æðar) sem liggja í naflastreng. Naflastrengur er myndaður úr
extra embryonal mesodermi (Whartons jelly), og amnion klæðir
strenginn að utan. Naflastrengur er 30—100 cm á lengd og 1—2,5
cm í þvermál. Oftast er festa naflastrengs centralt á fylgju.
Hlutverk fylgjunnar
Fylgjan er líffæri sem starfar aðeins í 40 vikur en hefur samt
fjölþætt líffræðilegt starfssvið. Eðlileg og óskert starfsemi fylgju
er forsenda eðlilegs vaxtar og þroska fósturs.
Hlutverk fylgjunnar er:
a) Efnaskipti milli móður og barns.
b) Hormónamyndun.
c) Immunalogisk vörn.
Efnaskipti milli móöur og barns:
Eðlilegur vöxtur og þroski fósturs byggist á því að fylgjan sjái
um flutning á: Súrefni, aminosyrum, kolvetni, vatni, steinefnum,
vítamínum og fitu, frá móðurinni og fjarlægja: koldioxid og önn-
ur úrgangsefni frá fóstri.
Flutningur fer fram með:
1) Diffusion.
2) Aktivur transport.
3) Pinocytosis.
Diffusion: Er þýðingarmesti flutningsmátinn. Diffusion er
flæði efnis frá hærri þéttni til lægri þéttni þar til jafnvægi kemst
á.
Öll efni eru annað hvort vatns- eða fituleysanleg. Því fituleys-
anlegra sem efnið er, því auðveldar fara efnin yfir frumuhimn-
una. Þau efni sem flytjast um fylgju með diffusion: súrefni, CO2,
innöndunardeyfilyf, vatn, þvagefni, glukosi, mjólkursýra, natr-
ium, elektrolytar?, fituleysanleg lyf sem hafa mólíkúlþunga minni
en 600.
Aktive transport. — Orkukræfur flutningur. Orku þarf til að
flytja efni frá lítilli þéttni til mikillar þéttni. Þau efni sem flytjast
um fylgju með aktiv transport:
Aminosýrur, vitamín, ólífrænar jónir, kalsíum, sykur