Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1990, Blaðsíða 4

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1990, Blaðsíða 4
Ritstjóraspjall Það er ekki laust við að það gæti nokkurrar eftirvæntingar og kvíða hjá ritstjóra fyrir útgáfu hvers blaðs um hvernig til tekst með efni þess. Von- andi finna allir lesendur þess nokkuð við sitt hæfi í þessu blaði því að þar kennir ýmissa grasa, sem ekki verða öll tíunduð nánar í þessu spjalli en öllum höfundum færðar alúðar þakkir. Til nokkurs nýnæmis verður að telja sendibréf til ljósmæðra sunnan frá Spáni. I því er nokkur fróðleikur um starfsvettvang ljósmæðra í framandi landi. Gaman væri að fá fleiri bréf af svipuðum toga sem víðast að. Hafi Ragnheiður þökk fyrir frumkvæðið. Þá er í blaðinu viðtal við unga móð- ur, sem kaus að fæða barn sitt á sem ,,náttúrulegastan“ hátt. Viðtalið var upphaflega birt í Bæjarblaðinu í Kefla- vík. Helga Margrét Guðmundsdóttir, sú sem tók viðtalið veitti fúslega leyfi sitt til birtingar greinarinnar hér í blað- inu auk þess sem hún aflaði leyfis móð- urinnar. Þeim skal báðum þakkað sérstaklega. Það er fengur fyrir ljós- mæður að kynnast þeim viðhorfum sem þar koma fram. Afturhvarf til náttúrunnar er ofarlega í hugum margra nú á tímum. Fólk hugsar meira en áður um náttúru- vernd, mengunarvarnir o.s.frv. Ljós- mæðrastarfið hefur einnig verið með í 2 _____________________________________ þessari umræðu, og það einnig hér í Ljósmæðrablaðinu, því ýmislegt hefur verið skrifað um að gera fæðingar sem ,,eðlilegastar“ og ýmis einkenni slíkra fæðinga tekin fyrir. En þetta síðasta inn- legg í umræðuna vekur upp þá spurn- ingu, hvernig starfsvettvangur ljósmæðra verður í framtíðinni, t.d. þegar kemur fram á næstu öld. Verða þær kannski óþarfar með öllu? Eða verður starfssvið þeirra fyrst og fremst almenn mæðra- og ungbarnavernd og almenn fræðsla til for- eldra, sem kjósa að börn þeirra fæðist utan stofnana án nærveru utanaðkom- andi hjúkrunarfólks? Það er erfitt að spá um framtíðina. En hvernig væri að ljós- mæður tækju sig til og segðu hér á síðum blaðsins hug sinn um það hvert þær telja að stefnt verði í fæðingarhjálp og ljós- mæðrastörfum á næstu árum. Ritstjóri efar ekki að slíkar umræður verði fjöl- þættar og fróðlegar. Og ekki sakaði að fá að kynnast viðhorfum verðandi for- eldra. Við sjáum hvað setur. Ritstjórí LJÓSMÆÐRABLAÐlP

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.