Ljósmæðrablaðið - 01.12.1990, Blaðsíða 26
farir? Kannski er okkar eigin ótti eða
vanlíðan of fyrirferðarmikil.
En ef við erum að tala um systkini
barns, sem dáið er, hvar fær þetta barn
þá tækifæri til að kveðja þennan bróð-
ur eða systur? A sjúkrahúsinu? Við
kistulagningu? Við útför? Eða er
kannski tekinn frá tími í kirkjunni fyrir
barnið, til þess að fá að kveðja á sinn
hátt? Auðvitað skiptir aldur barnsins
máli, en líka það, hvort pabbi eða
mamma geti veitt barninu þann stuðn-
ing sem það þarf. Ef foreldrar eru svo
yfirkomnir af sorg, að þeir megna ekki
að styðja barnið, þá er rétt að fá til að-
stoðar einhvern annan fjölskyldumeð-
lim, sem barnið treystir.
Þegar missi við dauða ber að hönd-
um, þá er mikilvægt að kveðja v.el.
Sorgin gleymir engum.
Við missi barna þarf að hyggja að
mörgu. Sýna þarf nærgætni og skiln-
ing, votta samúð, hlusta vel á þá, sem
hafa misst, leyfa þeim að tala um barn-
ið, sem dó, og eiga frumkvæðið að
samskiptum, því syrgjendur missa oft
slíkt frumkvæði, ekki bara þeir, sem
missa við dauða, heldur líka hinir, sem
missa við aðrar aðstæður.
Og umfram allt að forðast „íslensku
lausnina“, að hella sér út í sem mesta
vinnu, breiða yfir sorgina, reyna að
gleyma, kvarta aldrei, bera harm sinn í
hljóði, loka sorgina niðri í skúffu, gráta
ein(n).
Höfundur er sjúkrahúsprestur á Ríkis-
spítulum og i stjórn Samtaka um sorg
og sorgarviðbrögð.
Heimildir:
Skrifstofa Landlæknis varðandi tölulegar upp-
lýsingar.
Landlæknisembættið og Vinnueftirlit Ríkisins.
— Heilbrigðisskýrslur. Fylgirit 1986 nr. 1. —
„Slys á börnum og unglingum". Febrúar 1986.
Kúbler-Ross, Elisabeth — “On Children and
Death“, Macmillan Publishing Company, New
York 1985.
Bozarth-Campbell, Alla — “Life is Goodbye
Life Hello“, CompCare Publishers, Minneapol-
is, Minnesota 1982.
Parkes, C.M. — “Bereavement". Pelican
Books. London 1975.
Ward, Barbara og Houghton, Jamie —
“Good Grief-talking and learning about Loss and
Death“. White Crescent Ltd. Luton 1988.
verður haldin í Fóstbræðraheimilinu við Langholtsveg í
Reykjavík sunnudaginn 30. desember 1990 kl. 16.00—18.00.
Mætum vel með börnin.
Undirbúningsnefndin.
24
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ