Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1990, Blaðsíða 28

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1990, Blaðsíða 28
m.a. við sjúkrahúsið í Södertálje. í Járna starfa þær meira eins og um- dæmisljósmæður. Konurnar koma til þeirra í skoðun um meðgöngutímann, þær halda foreldranámskeið, taka á móti börnunum þegar svo ber við, ann- aðhvort heima eða á Vidarkliniken. A Vidarkliniken er þó engin sérstök fæð- ingarstofa, því stofnunin sem slík er ekki fæðingarstofnun, þannig að fæðing- arnar þar flokkast undir heimafæðing- ar. Konum er heimilt að fæða börn sín hvar sem er og hvernig sem er og fjölgar heimafæðingum að sögn, auk þess sem fjölgun fæðinga í Svíþjóð al- mennt er veruleg. Þær Maria Arman og Agneta Tege- vall hafa einnig opið hús fyrir mæðurn- ar eftir fæðingu og er það mjög vinsælt. Þannig má því segja að þessar ágætu ljósmæður hafi upplifað draum flestra ljósmæðra, að fylgja konunni eftir. Hugsa um hana fyrir fæðingu, í og eftir fæðingu auk fræðslu fyrir og eftir. Akjósanlegra getur það varla verið, enda árangurinn eftir því. Mikil áhersla er lögð á að fæðing fari fram á sem eðlilegastan hátt. Engin tæki eru notuð og deyfingar mjög lítið. I staðinn eru notuð vatnsböð og slak- andi fotaböð. í fótabaðið setja þær Weleda Lavandell baðmjólk. Vatnið nær upp að hnjám og er vel heitt. Kon- urnar sitja á þægilegum stól og um þær er vafið teppi — helst ull — frá mitti og upp. Auk þess að hafa slakandi áhrif á konuna og losa spennu, fullyrða þær stöllur að þetta sé einnig frábær aðferð til að auka lélega sótt. Hið sama gildir ef konurnar fæða í vatni eða liggja í baði fyrir fæðinguna. Ofrávíkjanleg regla er að setja í vatnið ekta Lavandell eða Rosmarin baðmjólk eftir því hvað hent- ar best hverju sinni. Hið sama gildir um „kalda klútinn", sem konan fær á ennið. Ljósurnar leggja sérstaka áherslu á að alveg sé út í hött að nota einungis vatn, ef mögu- legt er að nálgast Rosmarin baðmjólk. Nokkrir dropar gera hreinasta krafta- verk og þá ekki aðeins að strjúka enni og andlit, heldur einnig brjóst, bak, handleggi og fætur — allt eftir aðstæð- um og þörfum. Hressir og eykur krafta segja þær stöllur. Weleda Arniku nuddolía eða hliðstæð olía er einnig notuð mikið til að nudda fætur og bak. Omissandi þættir í stuðningi við eðli- lega framvindu eðlilegrar fæðingar, segja þær. Ef eitthvað er öðruvísi en best er á kosið er stutt að fara til sjúkrahússins í Södertálje þar sem Maria starfaði í 6 ár áður en hún tók að sér ljósmóðurstarf- ið við Vidarkliniken, auk þess tekur hún nokkrar vaktir þar mánaðarlega. Hún er því öllum hnútum kunn og fylg- ir konunum vel eftir sem þurfa að fara þangað, sér um þær að fullu og öllu og tekur á móti börnum þeirra. Foreldranámskeið þeirra Mariu og Agneta er byggt upp á annan hátt en venja er víðast hvar. Þær hafa ákveðna opna tíma á þriðjudögum, þangað koma þær konur sem vilja og greiða fyr- ir tæplega 600 ísl. krónur í hvert skipti. Auk þess eru foreldratímar ,,seminar“, þar sem allt er tekið með í mjög þjöpp- uðu formi og eru þeir á laugardögum 26 !_IÓSMÆÐR ABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.