Ljósmæðrablaðið - 01.12.1990, Blaðsíða 6
Úr Bæjarblaðinu í Keflavík
Þetta var yndisleg fæðing
— segir Jóna Ingólfsdóttir, sem kaus náttúrulega
fæðingu í heimahúsi
TEXTI OG MYNDIR: HELGA MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR
Þau ákváðu að barnið skyldi fæðast á náttúrulegan hátt heima hjá
þeim án ljósmóður. Vinkona í næsta húsi og systir hennar tóku á
móti barninu á meðan eiginmaðurinn hélt henni uppi. Fæðing án
nokkurra inngripa, þar sem eðlishvötin réði ferðinni og hlutirnir fengu
að hafa sinn gang.
Náttúruleg fæðing.
Einn valkostur við fæðingar
Mér var sagt að hér væri stödd kona
sem hefði fætt yngra barn sitt í heima-
húsi og systir hennar og vinkona úr
næsta húsi hefðu tekið á móti barninu.
Þarna var ekki um að ræða að fæðing-
una hefði borið svo brátt að — heldur
allt fyrirfram ákveðið. Þetta vakti for-
vitni mína og ég fór fram á viðtal sem
var fúslega veitt.
Viðmælandi minn er Jóna Ingólfs-
dóttir. Eiginmaður Jónu er danskur,
Jakob Steensig, og eru þau búsett í
Arósum í Danmörku ásamt tveim dætr-
um sínum. Þau eru stödd hér í fríi um
þessar mundir og dvelja á heimili for-
eldra Jónu í Keflavík.
Fæðing er ekki ajúkdómatiifeUi
Það þarf mikinn kjark að þora að taka
ákvörðun að fæða heima án Ijósmóður
í okkar tæknivædda heimi þar sem
okkur er sagt að ,,öryggið“ sé fyrir öllu
4 _______________________________
og fagþekkingin í hávegum höfð. Á
meðan stöllur hennar hér á landi fæða
á sjúkrahúsum — í ,,sterilu“ umhverfi
og flóðljósum — með fæðingarlækni
og ljósmóður sér við hlið, og jafnvel
svæfingalækni, sýnir Jóna þá áræðni
og einurð að fæða eins og hún telur að
henti sér og barni sínu best. í sínu um-
hverfi, innan um sína nánustu. Það
hvarflar ekki að henni að fæðing sé
sjúkdómstilfelli.
En hvað kom til að hún fæddi barn á
þennan hátt?
„Hugmyndin er komin frá vinkonu
minni í Danmörku sem heitir Helle en
hún hefur fætt 3 börn heima á þennan
hátt. Þannig að ég vissi að þetta var
,,möguleiki“ segir Jóna. ,,Hún hvatti
mig mjög til að gera þetta og snemma
á meðgöngunni tókum við hjónin
ákvörðun. Þá hófst mikill lestur og við
kynntum okkur ítarlega allt sem við
komumst í varðandi náttúrulegar fæð-
ingar. Helle var þó okkar besta heimild
:
V
t'
I
l
l
I—IÓSMÆÐRABLAÐIÐ