Ljósmæðrablaðið - 01.12.1990, Blaðsíða 42
Sænskar, norskar og íslenskar Ijósmæður í kvöldverði.
Sunnudagurinn fór svo í að segja frá
rannsóknarvinnu ljósmæðranna. Allar
töluðu þær um það hversu mikil vinna
það er að gera rannsókn og alla þá mót-
stöðu sem þær mættu. Þær eru frum-
kvöðlar í rannsóknum meðal
ljósmæðra.
Mavis sagði að við yrðum að hafa
mjög skýra mynd af því sem við ætluð-
um að breyta til að geta breytt því.
Mjög erfitt er að skipuleggja breytingar,
sem taka yfirleitt mjög langan tíma.
Nauðsyn er að fá sem allra flesta með,
en alltaf eru einhverjir sem ekki vilja
taka þátt í breytingum.
Ann Marie hafði aðallega rannsakað
brjóstagjöf og sogþörf barna.
Mary kom síðan með fleiri ráðlegg-
ingar, svo sem að efna til ráðstefnu um
niðurstöður rannsókna til að breyta og
bæta starfsaðferðir (practice).
Grein um rannsókn Ullu er í nýjasta
hefti MIDWIFERY og heitir hún: Early
discharge after hospital birth.
Hópvinna var á milli fyrirlestranna. 6
hópar voru starfandi og stýrðu fyrirles-
arar ráðstefnunnar þessari hópvinnu.
Ann Marie frá Svíþjóð stýrði þeim hópi
sem við vorum í, en auk okkar voru
ljósmæður frá Vestur-Þýskalandi, Bret-
landi, Israel og Danmörku.
Við ræddum um undirbúningsvinnu
fyrir rannsókn og hvernig koma ætti á
breytingum.
Ráðstefnan tókst vel í alla staði og
var mjög gagnleg. Hún sýndi okkur
hve mikið gildi rannsóknir hafi fyrir
ljósmæður til að efla stéttarvitund og
ljósmæður í starfi.
Ekki þarf alltaf að gera rannsókn.
Oft getum við nýtt niðurstöður ann-
arra, og af því gerum við allt of lítið.
Það að taka þátt í rannsókn krefst
faglegrar íhugunar og oft á tíðum end- |
urmats á eigin störfum. Þess vegna
hvetjum við allar ljósmæður til að
kynna sér rannsóknir og skoða nýjar
hugmyndir með opnun huga.
40
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ