Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1990, Blaðsíða 11

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1990, Blaðsíða 11
Hendursem strjúka: Nína spennir vöðva íhandleggjum ogfótum. Augna- ráðið er tómlegt og ekki er unnt að vekja athygli hennar. Þegar snertingin var hætt, ,,vaknaði“ hún og grét. • að starfsfólki verði kennt að efla eig- in getu og hæfileika foreldranna til að fara mjúkum höndum um fyrirbura. Þekking á táknmáli líkama fyrirbura er enn ófullnægjandi. Sjaldnast er um- hverfið og sú daglega umhyggja sem við veitum nýburanum og foreldrum hans í takt við viðkvæm skynfæri barns- ins. Okkar reynsla er sú að fyrirburar — við núverandi aðstæður — þurfi fyrst og fremst sefandi umhyggju og hjálp til að róa sjálfa sig. Hin spenntu böm Við veittum því athygli í upphafi verkefnis okkar, þegar við fullar eftir- væntingar kenndum foreldrunum að nudda börnin, að þau reyndu að kom- ast undan hinum ástríku höndum. Þau urðu óróleg, spenntu alla vöðva líkam- ljósmæðrablaðið ___________________ ans, titruðu og grettu sig. Við höfðum reiknað með að sjá róleg, athugul börn, en reyndin varð hið gagnstæða, nuddið var þeim byrði. Það var samdóma álit okkar og for- eldranna að börnin þyldu það ekki að vera nudduð. Börnin brugðu fæti fyrir verkefni okkar í bókstaflegri merkingu. Við töldum okkur ekki geta borið ábyrgð á að íþyngja börnunum til að ná síðar fram hugsanlegum jákvæðum áhrifum nuddsins. Við hættum því við fræðslustarfið. Það sem aðrir höfðu fundið Við tókum okkur nú fyrir hendur að grannskoða skýrslur annarra um þeirra tilraunir til að örva snertiskyn fyrirbura. Auk þeirra niðurstaðna sem draga fram hið jákvæða eins og hraðari þyng- 9

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.