Ljósmæðrablaðið - 01.12.1990, Blaðsíða 13
upp í 10 sinnum með hverju barni. Einu
barni fylgdumst við með án mynd-
bandsupptöku.
Fæðingu þessara barna bar að eftir
26 til 36 vikna meðgöngu. Fæðingar-
þyngd þeirra var frá 883 grömmum
upp í 2435 grömm.
Rannsóknin stóð yfir frá og með 6.
september til og með 13. desember
1989.
IJppfræðsla foreldranna
I stað þess að kenna foreldrunum
ungbarnanudd, voru þeir beðnir að
snerta börn sín með ýmsum mismun-
andi hætti. Foreldrarnir voru beðnir
um að taka vel eftir viðbrögðum barn-
anna við hverri snertingu og taka mark
á táknum þeirra.
Faðmandi hendur
Við höfðum tekið eftir að börn í
súrefniskössum sem sýndu af sér leiða
létu róast við það að foreldrar eða
starfsfólk lagði stillilega hlýjar og mjúk-
ar hendur ofan á þau — faðmaði þau.
Starfsfólk hafði með sama hætti um
lengri tíma notað þessa aðferð til að
örva börnin gegn andarteppu. Þá höfðu
einnig aðrir sem kannað hafa örvun
skilningarvita fyrirbura lýst ámóta já-
kvæðum viðbrögðum þeirra við handa-
yfirlagningu.
S.S. Jay staðhæfir t.d. að súrefn-
ismagnið aukist oft á tíðum meðan
uijúkar hendur umvefji barnið til
langframa.9
Við báðum því foreldranna að hefja
samskiptin við börnin með því að leggja
stillilega mjúkar og hlýjar hendir sínar
um höfuð og fætur barnsins eða um
bak þess og maga.
Strjúkandi hendur
Þegar foreldri snertir barn sitt, sem
liggur í súrefniskassa, í fyrsta sinni
strýkur það gjarnan mjúklega með fingri
um kinnar þess eða hendur. Bækur
um ungbarnanudd telja einnig að mjög
léttar strokur séu ákjósanlegar jafnt fyr-
ir nýbura sem fyrirbura. Við töldum
reynslu okkur hins vegar heldur benda
til að börn hefðu fyrr þroska til að með-
taka þéttingsfasta stroku.
Við báðum því foreldrana að halda
sambandinu áfram við börnin fyrst
með léttum strokum og síðan — þegar
værð færðist yfir barnið — með öllu
fastari strokum á handlegg eða bak.
Viðbrögð bama við faðmandi
höndum
Við komumst að raun um að værð
færðist yfir börnin þegar foreldrar eða
hjúkrunarfólk hélt utan um þau með
mjúkum höndum. Það sama kom fram
á myndböndunum.
Ekki voru öll börnin tengd síritandi
mælitækjum. En fram kom greinileg
tilhneiging hjá nokkrum sem tengd
voru P02 sírita sem mælir m.a. magn
súrefnis í blóðinu. Fyrst þegar foreldr-
arnir snertu börnin féll súrefnismagnið
en síðan jókst það og náði jafnvægi
nokkru ofar en áður eftir snertingu for-
eldranna.
Lengst af héldum við að við mund-
um ekki sjá önnur viðbrögð barnanna
við faðmlögum foreldranna en þá
ljósmæðrablaðið
_______ 1 1