Ljósmæðrablaðið - 01.12.1990, Qupperneq 29
frá kl. 9—13. Fyrir þetta greiðir parið
2.500 ísl. krónur. A laugardagsnám-
skeiðið þarf að skrá sig, en ekki í þriðju-
dagstímana. Eg spurði, hvort aldrei
kæmi fyrir að enginn mætti, en svarið
var afdráttarlaust, að þrátt fyrir fjar-
lægðir og slæmar samgöngur í raun,
kæmu oftast 10—20 konur í hvern
tíma, sem tekur IV2 klst. í senn.
I Svíþjóð (sem og á Islandi) er nú
mikill áhugi hjá ljósmæðrum að fá
gömlu góðu taubleyjurnar aftur í gagn-
ið. Ljósurnar á Vidarkliniken eru þar
engir eftirbátar og hika því ekki við að
láta skoðanir sínar í ljósi um þau mál.
Þær sýna konum og selja bæði bómull-
ar og ekta lanolinbornar ullarbleyjubux-
ur og gæruskinn ásamt öðrum ullar og
silkifatnaði fyrir börn. (Er einnig fáan-
legt á íslandi).
Um þessar mundir er mikið bleyju-
stríð í Svíþjóð. Fyrirtæki og framleið-
endur keppast við að auglýsa náttúru-
lega yfirburði sinnar tegundar, því áhugi
fólks í landinu á náttúruvernd er mjög
mikil um þessar mundir og miklar aug-
lýsingar þar um, hvert sem auga er lit-
ið. Því er spáð að innan 2ja—3ja ára
verði allar núverandi plastbleyjur horfn-
ar af markaðinum þótt flestir telji að nú-
tímakonan taki ekki í mál að standa í
venjulegum bleyjuþvotti í viðbót við allt
annað þegar heim kemur eftir fullan
vinnudag utan heimilis. Þess vegna er
um þessar mundir miklu fjármagni var-
>ð hjá bleyjuframleiðendum í það að
þróa bleyjur sem standast nútímakröf-
ur um náttúruvernd en eru eigi að síð-
ur einnota.
Mér þótti afar merkilegt að heyra að
ýmis sjúkrahús í Svíþjóð hafa innleitt
lanólínborin ullarteppi eða til þess með-
ljósmæðrablaðið ______________________
höndlaðar ullargærur fyrir sjúk börn og
fyrirburði að liggja á án laka og þykir
þetta gefa mjög góða raun. Gærurnar
sem koma frá Nýja Sjálandi, þar sem
75% allra nýfædda barna liggja á gær-
um, eru allt öðruvísi frá náttúrunnar
hendi en t.d. ísl. gærur, auk þess sem
Nýsjálendingar hafa þróað sérstaka
tækni við meðhöndlun gæranna bæði
frá hreinlætissjónarhóli o.fl. Dagleg
meðhöndlun gæranna er mjög auð-
veld.
Það var sjúkrahúsið í Ystad með
ljósmæðurnar Signe og Ulla Stina í far-
arbroddi sem byrjaði á þessu og fleiri
hafa fylgt í kjölfarið m.a. í Falun og
Södertalje. I Lundi hafa gærur þegar
verið prófaðar í 3 ár. Heilbrigð börn fá
einnig gærur til að liggja á beint ef þess
er óskað. En því miður sýndi það sig
fljótlega að gærurnar hurfu og var þá
gripið til þess ráðs að hafa þær til sölu
fyrir þær mömmur sem vildu, sem síð-
an taka gærurnar með sér heim.
Margt fleira mætti um þessa merki-
legu hluti segja. Ég hefi aðeins stiklað á
stóru til fróðleiks og til gamans fyrir ís-
lenskar ljósmæður og hjúkrunarfólk.
Ef einhverjar spurningar vakna við lest-
ur þessa greinarstúfs, er ég tilbúin til
svara, ef ég á svör.
27