Ljósmæðrablaðið - 01.12.1990, Síða 31
Ljósmæður útskrífaðar frá LMSÍ 1970. Frá vinstri: Björg Guðmundsdóttir, Sauðárkróki,
Bóthildur Steinþórsdóttir, Reykjavík, Ragnheiður Björgvinsdóttir, Spáni, Rannveig Matthías-
dóttir, Kópavogi, Hildur Sæmundsdóttir, Grundarfirði, Elín Hjartardóttir, Reykjavík, Halla
Halldórsdóttir, Kópavogi, Birgitta Pálsdóttir, Sauðárkróki, Margrét Guðmundsdóttir,
Reykjavík og Anna Brynjólfsdóttir, Garðabæ. Myndin var tekin íLondon fyrir skemmstu en
þar héldu þær upp á afmælið.
Heimsóknartími er frá 2—5 á dag-
inn. Feðurnir eru venjulega ekki við
fæðingarnar, en þó eru stundum und-
antekningar á þessu. Hér erum við
hvorki með böð né heita potta fyrir 1.
stig fæðingarinnar. Og oft eru konur
ekki sem best búnar undir fæðinguna.
En allt þetta er að breytast til batnaðar.
Skoðanir eru hér eingöngu í höndum
kvensjúkdómalæknanna. Þeir eru
fimm á þessari stofnun.
Meðalþyngd barnanna er 3500 g.
Eg hefi skráð niður allar fæðingar sem
ég hefi haft með að gera og eru ís-
lensku börnin mun stærri. Þar skiptir
ætternið — RAZA — máli og einnig
mataræðið, sem mér finnst betra hér,
mikið borðað af ávöxtum og fersku
grænmeti. Ekki er borðað eins mikið af
sykri og heima á Fróni.
Hér koma konur venjulega 5—10
sinnum í skoðun. En þó koma sumar
að fæða sem aldrei hafa komið í skoð-
un á meðgöngutímanum.
Hér held ég þeim sið sem ég vandist
á íslandi að sitja yfir konunum allan
LJÓSMÆÐR ABLAÐIÐ
29