Ljósmæðrablaðið - 15.07.1999, Page 2
Ritstj óvaspj all
Jæja kæru ljósmæður, þá er árið 1999 runnið upp og einungis eitt ár til
aldamóta. Þetta ár er þó engu að síður merkilegt en það næsta, því Ljós-
mæðrafélag íslands varð 80 ára í maí. Við slík tímamót þykir við hæfi
að líta til baka og meta hverju afmælisbarnið hefur áorkað. Margar eru
til þess mun betur fallnar en ég að skoða afrek ljósmæðra á Islandi og í
afmælishófi sem haldið var í framhaldi aðalfunds LMFÍ hinn 24. aprfl
sl. var gaman að hlýða á Kristínu I. Tómasdóttur stikla á stóru um þær
breytingar sem hún hefur upplifað á þjónustu ljósmæðra þau mörgu ár
sem hún hefur starfað. Kristín var einmitt kosin heiðursfélagi LMFI á
aðalfundinum og er vel að því komin. Stjórnin var varla öfundsverð af
að þurfa að velja heiðursfélaga því svo margar ljósmæður hafa unnið
mikið og gott starf til heilla fyrir þjóðina og félagið. Það er svo sannar-
lega margt sem við yngri ljósmæður getum lært af þeim eldri og væri
gaman ef eldri ljósmæður myndu skrifa um störf sín í ljósmæðrablaðið.
Það er leitt til þess að hugsa að öll sú þekking og reynsla sem eldri ljós-
mæður búa yfir skuli ekki vera til á prenti þannig að við þær yngri meg-
um af þeim læra. Það er persónuleg skoðun mín að þær ljósmæður sem
unnið hafa úti í héruðum og kynnst því í raun hvernig er að standa ein
með alla ábyrgð, ættu að segja sögu sína. Ritnefndin tekur fegins hendi
við öllu prenthæfu sem tengist störfum ljósmæðra fyrr og nú.
Ritstjóri vill ennfremur biðjast afsökunar á því hve dregist hefur að
koma blaðinu út. Ástæður eru margar og vegur þar e.t.v. þyngst hve
erfitt er að fá ljósmæður til að skrifa í blaðið, en að auki spilar inn í
vandræðagangur með auglýsingar sem reynast of dýrar í prentun til að
borga sig. Allar hugmyndir að fjáröflun (sem tekur lítinn tíma) fyrir
blaðið eru vel þegnar.
Frá ritstjóra...................2
Orlofshús LMFI .................3
Fréttir frá stjórn LMFI ........4
Afleysingateymi ljósmæðra
út á landsbyggðina.............5
Upplýsingar til greinahöfunda . .5
Utskrift ljósmæðra..............6
Frá ritstjóra Fylgjunnar .......6
Tilk. frá Kvennadeild LSP......7
Minningarorð....................8
Ljóð ...........................8
Alþjóðlegur dagur ljósmæðra . . .9
Boys and Toys..................10
Áhugaverðar slóðir á Netinu ..11
Fæðing.........................12
Pethidin í fæðingu.............13
Fósturgallar og ákvörðun um
fóstureyðingu ................14
Geymsla á brjóstamjólk........19
Brjóstamjólk...................19
Myndband um brjóstagjöf ... .20
Fréttir af Félagi áhugafólks um
heimafæðingar...............21
Bæklingur um sykursýki á
meðgöngu....................21
Samningur milli LMFÍ og TR .22
Fundir og ráðstefnur........23
Ljósmaeðrablaðið 77. árgangur l.tölublað 1999
Útgefandi: Netf: dagzo@vortex.is Upplag: 500 eintök sem dreift
Ljósmæðrafélag Islands Ritnefnd: er til allra ljósmæðra og á
Hamraborg 1 Anna Eðvaldsdóttir heilbrigðisstofnanir
200 Kópavogur Sími: 565 2252 Verð í lausasölu: 500 kr.
Sími: 564 6099 Jenný I. Eiðsdóttir Áskriftarverð: 1.200 kr á ári.
Ritstjóri: Sími: 561 0336 Uppsetning og prentun:
Dagný Zoega Katrín E. Magnúsdóttir Hagprent - Ingólfsprent ehf.
Melgerði 3 Sími: 561 1636 Grensásvegi 8
108 Reykjavík Unnur Egilsdóttir 108 Reykjavík
Sími: 568 0718 Sími: 552 8576 Sími: 588 1650
2
LJÓSMÆPRABLAÐIP