Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.07.1999, Blaðsíða 16

Ljósmæðrablaðið - 15.07.1999, Blaðsíða 16
flesta strengi tilfinninga okkar. Hún birtist í ýmsum myndum til dæmis reiði, afneitun, vonleysi, söknuði og grátur. Sorgarferlið er eðlilegt og náttúrulegt ferli lil að aðlagast mikilvægum missi á heil- brigðan hátt. Ef það gengur ekki eftir getur það valdið sjúkleika í hinum ýmsu myndum (Karl Sig- urbjörnsson, 1990). Leiðir til að -Oinna tir sorginni Þegar um fóstureyðingu er að ræða er oft tilhneiging til að fela fóstrið og að nefna það ekki er enn algengara. Foreldrar eru þannig skildir eftir aleinir með sektartilfinningu um leyndar til- finningar um ást til barnsins, for- vitni þeirra um hvernig “barnið þeirra” var og sorgartilfinningu. Það er þörf fyrir leiðbeiningar og ráðleggingar fyrir starfsfólk svo og foreldra til að auðvelda sorgar- viðbrögð og koma í veg fyrir sjúkleg viðbrögð sem geta verið afleiðing þess ef fólk fær ekki að syrgja. Það hefur sýnt sig í mörg- um rannsóknum að það auðveldar sorgarferlið að fá að halda á barn- inu, gefa því nafn og það á alveg jafn vel við þó um fóstureyðingu sé að ræða vegna fósturgalla eins og þegar kona missir fóstur á svipuðum tíma meðgöngunnar (Lorenzen og Holzgreve,1995; Kolker og Burke, 1993; Hunfeld o.fl., 1997; Bryar, 1997; Ney o.fl., 1994). I rannsókn Lorenzen og Holzgreve (1995) var enginn töl- fræðilegur munur milli kvenna hvort sem þær fóru í fóstureyð- ingu, vegna fósturgalla eða misstu fóstur, að þær sköpuðu sér minn- ingar um barnið til dæmis með því að fá að sjá það og gefa því nafn. Um helmingur kvenna bæði eftir fóstureyðingu og þær sem misstu fóstur báðu um eða þáðu boð um að fá að sjá barnið eftir að þær höfðu verið upplýstar um þann möguleika. í báðum hópun- um var svipaður fjöldi fóstra með sjáanlega galla. Allar konumar voru fræddar um fósturgallann áður. Konur vildu sjaldnar sjá fóstrið ef gallinn var mjög áber- andi. Margar mæður og foreldrar höfðu lýst hræðilegum hugmynd- um um hið dána barn en síðan eft- ir að hafa séð það neituðu þau að hafa haft þannig tilfinningar. Níu- tíu og tvö prósent af konum eftir fóstureyðingu og áttatíu prósent þeirra sem misstu fóstur fengu að sjá fóstrið og voru ánægðar með það. Fjörutíu og þrjú prósent þeirra kvenna, sem ekki sáu barn- ið, og spurðar voru fljótlega eftir fóstureyðinguna, sáu eftir að hafa ekki tekið þá áhættu að sjá það. Næstum allar mæðurnar voru þakklátar að hafa haft möguleika að sjá barnið eftir fæðinguna. Margar konur óskuðu þess að þær hefðu verið hvattar til að halda á barninu, þær þorðu ekki að gera það upp á sitt einsdæmi. Venju- lega voru teknar rnyndir sem voru settar inn í skýrslu konunnar þannig að hún hefði möguleika að nálgast þær seinna meir og rúmur helmingur kvenna vildu fá mynd af barninu. Fyrir sumar konur var myndin trygging fyrir því að þær gætu séð barnið þrátt fyrir að þær hefðu ákveðið að sjá ekki barnið eftir fæðinguna. Með því að sjá dáið barn vakna margar tilfinning- ar og niðurstöður sýna að þær konur sem gera barnið áþreifan- legra syrgja meira strax á eftir en jafna sig fyrr með tímanum. For- eldrar sem höfðu ekki möguleika eftir fóstureyðinguna að sjá og halda á barninu og höfðu hvorki minningar né hluta til minningar svo sem mynd, eiga erfiðara með að sætta sig við missinn (Kolker og Burke, 1993). Hafa verður í huga að það að skapa minningar um barnið er ekki eina leiðin til að takast að við sorgina, það þarf að virða ákvörðun einstaklingsins í þessum efnum. (Lorenzen og Holzgreve, 1995). í rannsókn Lorenzen og Holzgreve (1995) sýndu konur sem misstu fóstur meiri sorg eftir átta vikur en þær sem fóru í fóst- ureyðingu. Með því að skoða sorgarviðbrögðin yfir ákveðið tímabil og bera saman þær konur sem misstu fóstur og þær sem fóru í fóstureyðingu, sýndu konur sem fóru í fóstureyðingu minni sorg en þær konur sem misstu fóstur og sköpuðu ekki minningar. Þær upplifðu meiri sorg eftir átta vikur en tveimur dögum eftir missinn. Sorgin er sárari og varir lengur en flest fólk býst við. Lengd sorg- arinnar kemur mörgum foreldrum á óvart og eykur einangrun þeirra. Fjölskyldan og vinir styðja kon- una í byrjun en eftir mánuð eða svo búast þeir við að konan setji þessa reynslu til hliðar og haldi áfram lífinu eins og ekkert hafi í skorist (Kolker og Burke, 1993 ). Batinn hins vegar tekur venju- lega ár, en ekki vikur eða mánuði. Mennirnir virðast eiga auðveldara með að jafna sig og ganga fyrr í gegnum sorgarferlið ( White-Von Mourik o.fl., 1992; og Bryar, 1997). Það sem getur auðveldað batann er að tengjast baminu til- finningaböndum og upplifa það að missa barn í stað þess að hugsa um það sem eitthvert fóstur (Kol- ker og Burke, 1993). HlutOerk fagfólks Starfsfólk ætti að hjálpa foreldr- um að hefja sorgarferlið. Það er hægt að gera með því að vísa til “barnsins” í stað “fósturleifa” og með því að viðurkenna að ást og umhyggja séu til staðar og þess vegna sé sorgin nauðsynleg til að losa um böndin til barnsins. Lítill hluti foreldra þarf meiri stuðning vegna annarra fyrri vandamála 16 LJÓSMÆPRABLAPIP

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.