Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.07.1999, Blaðsíða 5

Ljósmæðrablaðið - 15.07.1999, Blaðsíða 5
Góðar gjafir Ljósmæðrafélagi íslands bárust góðar gjafir á 80 ára afmæli félagsins: • „Verndarengill" frá Heilbrigðisráðuneytinu • Mynd frá BHM • Mynd frá Helgu Birgisdóttur ljósmóður ■ Mynd frá Norðurlandsdeild LMFÍ • Blómvöndur og kveðjur frá NJF Sendir stjórn LMFÍ gefendum bestu þakkir Afleýsingateými Ijósmeeðra út á landslrjggðina Ljósmæðrafélag íslands hefur af því þungar áhyggjur hve mikið vantar af ljósmæðrum út á landsbyggð- ina. Nú höfum við í stjórninni verið að velta fyrir okkur hvort hægt sé að koma upp lista hjá LMFÍ um þær ljósmæður sem eru til í að leysa af öðru hvoru og í einhvern tíma úti á landi. Ljósmæðrafélagið myndi halda utan um þann lista svo að þeir vinnuveitendur sem eru í vandræðum geti leitað til okkar. Við hvetjum allar ljósmæður sem geta hugsað sér þetta að láta okkur vita á skrifstofu LMFÍ sem allra fyrst. Að setja sig á þennan lista er án allra skuldbindinga, en verulega til þæginda fyrir þá sem þurfa á ljósmóður að halda. Skrifstofa Ljósmæðrafélags íslands er opin á mánudögum frá kl. 13-17 og á fimmtudögum frá kl. 14-17. Einnig er símsvarinn alltaf í sambandi og hægt að skilja eftir skilaboð á honum. Síminn er 564 6099 en einnig er hægt að senda okkur fax í síma 564 6098. Stjórn LMFÍ UppFJsingar til greinahöfunda Þær greinar sem birtast í Ljósmæðrablaðinu eru á ábyrgð höfunda og endurspegla ekki nauðsynlega við- horf ritnefndar og ritstjóra. Höfundum er uppálagt að vanda málfar og stafsetningu og rnega eiga von á að ritnefnd geri kröfu um lagfæringar eftir yfirlestur. Ennfremur áskilur ritnefnd sér rétt til að hafna greinum sem eru illa unnar eða ljósmóðurfræðunum óviðkomandi. Greinar sem birtast eiga í Ljósmæðrablaðinu má senda á skrifstofu LMFÍ eða beint til ritstjóra (póst- föng er að finna á titilsíðu blaðsins). Ekki er nauðsynlegt að skila greinum uppsettum á tölvutæku formi, þótt vitaskuld sé það gott, en handskrifaðar greinar þurfa að vera vel læsilegar. Vanda skal til heimilda- skráningar þar sem við á. Ennfremur er nauðsynlegt vegna yfirlestrar að fram komi auk nafns höfundar, starfsheiti, heimilisfang og símanúmer greinahöfunda. Áætlað er að Ljósmæðrablaðið komi út tvisvar á ári í framtíðinni. Allar nánari upplýsingar veitir ritstjóri. LJÓSMÆÐRABLAÐIP 5

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.