Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2004, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 2004
Fréttir DV
Slökktu eld á
verkstæði
Slökkviliðið réð niður-
lögum elds á trésmíðaverk-
stæði við Gylfaflöt í Grafar-
vogi um miðjan dag í gær.
Eldur logaði í stokkum sem
sjúga efni af verkstæðinu út
í síló. Slökkviliðið ákvað að
blása eldinum út úr stokk-
unum og slökkva hann úti.
Lítill reykur var inni á verk-
stæðinu sjálfu. Starf
slökkviliðsins gekk greið-
lega.
Hvernig ráð-
herra verður
Þorgerður
Katrín?
Júlíus Hafstein,
framkvæmdastjóri.
„Reynslan leiðir I Ijós hvernig
hún situr Pegasus, en ég vænti
nokkuð mikils. Viðgangsefnin í
ráðuneytinu verða stór, svo
sem hvort stytta eigi fram-
haldsskólann eða breyta
skólakerfinu á annan veg.
Hvað varðar málefni Ríkisút-
varpsins er þörfá að endur-
skoða stjórnskipulag og
breyta hlutverki útvarpsráðs,
en ég býst ekki við RÚV verði
gert að hlutafélagi afnúver-
andi ríkisstjórn. Þá býst ég við
að Þorgerður, dóttir eins
virtasta leikara þjóðarinnar
reynist menningunni drjúgur
liðsmaður, en i þeim mála-
flokki þarfað endurskoða allt
styrkjafyrirkomuiag."
Kostir & Gallar
„Hún verður öruggtega góður
ráðherra. Þorgerður Katrín er
skynsöm manneskja, er næm
bæði fyrir fólki og eins við-
fangsefnum sem henni mæta.
Menntamáiin eru afar stór og
mikilvægur málaflokkur sem
tekur mikið fé og þar eru mörg
verkefni framundan á næst-
unni. Ég gæti trúað að stytting
framhaidsskótanáms verði eitt
afstórmálum Þorgerðar - en
aföðrum verkefnum og mjög
ánægjuiegum má til dæmis
nefna opnun Þjóðminjasafns-
ins.“
Drífa Hjartardóttir,
alþingismaður.
Endurhæfingardeild fyrir fjölfatlaða og krabbameinssjúklinga verður lokað vegna
niðurskurðar Landspítalans. Tuttugu fjölfatlaðir missa húsnæði sitt og sérhæfða
endurhæfingu. Krabbameinssjúklingar munu þurfa að leita annað.
a
„Þeim sem búa hér
verður auðvitað ekki
hentút á götu. Þau fá
aðbúa hér áfram þang-
að til þeim hefur verið
fundið annað húsnæði".
Endurhæfingar- og æfingadeild Landspítala Há-
skólasjúkrahúss í Kópavogi verður lokað vegna nið-
urskurðar.
„Við höfum verulegar áhyggjur
af þeim fjölfötluðu einstaklingum
sem hér búa og sækja hingað
þjónustu. Þetta er fólk með mjög
miklar líkamlegar fatlanir og
þroskahamlanir,“ segir Guðný
Jónsdóttir, yfirsjúkraþjálfari deild-
arinnar.
Guðný Jónsdóttir, Á deildinni búa rúmlega tutt-
yflrsjúkraþjálfari. ugu fjölfatlaðir einstaklingar, sem
komu af gamla Kópavogshæli og
af heimilum og sambýlum. Auk
þess sækja margir íjölfatlaðir ein-
staklingar þangað endurhæfingu
og sjúkraþjálfun, ásamt krabbameinssjúklingum
sem fá þar víðtæka og heildstæða meðferð. Öllu
þessu verður lokað og húsið einfaldlega tekið úr
notkun.
„Okkur var tilkynnt um þetta á föstudag, og enn-
fremur að endurhæfingu krabbameinssjúklinga
verði fundinn staður annarsstaðar innan spítalans.
Hvar það verður veit enginn".
„Þetta mun hafa
veruleg áhrifá lifs-
gæði þessa fatiaða
fólks.
Áratugastarf fyrir gýg
„Þau þurfa mjög sérhæfða meðferð sem hefur
tekið hátt í tvo áratugi að byggja upp“, segir Guðný.
Hún segist ekki vita hvort spítalinn hafl hugsað sér að
kaupa endurhæfingu og þjálfun utan spítalans fyrir
fjölfatlaða skjólstæðinga, en það sé alveg ljóst að það
verði ekki sambærileg þjónsta. Guðný hefur starfað á
deildinni f tæp sautján ár, og segist nú horfa fram á
að allt uppbyggingastarfið á deildinni sé unnið fyrir
gýg-
„Þeim sem búa hér verður auðvitað ekki hent út á
götu. Þau fá að búa hér áfram þangað til þeim hefur
verið fundið annað húsnæði. Þau hafa mjög sérhæfð-
ar þarfir sem verður ekki sinnt að sambærilegu leyti
neinsstaðar annarsstaðar. Þetta verður tekið af þeim,
og það mun hafa veruleg áhrif á lífsgæði þessa fatlaða
fólks. Þau eru mikill minnihlutahópur, og sorglegt að
spítalinn sjái sér ekki fært að sinna þeim. Þau verða
einfaldlega útundan"
Á deildinni eru sextán starfsmenn. Enginn þeirra
veit hvort hann heldur starfi sínu, en alls fá um 200
starfsmenn uppsagnarbréf. Ekki hefur öllum stjórn-
Húsinu lokað Þarferfram endurhæfing krabbameinssjúk-
linga og fjölfatlaðra. Þar er einnig liknardeild og húðdeild.
endum deilda verið tilkynnt um yfirvofandi niður-
skurð ennþá, og er mikill órói innan Landspítalans
vegna þess sem nú blasir við.
Neyðarmóttakan áfram í Fossvogi
Neyðarmóttöka vegna nauðgana verður áfram
í Fossvogi þrátt fyrir niðurskurð.
Yfirlækni hennar, Guðrúnu Agnarsdóttur, var
sagt upp, eins og fram hefur komið, og í stað
hennar koma læknar Kvennadeildar. Enginn
hjúkrunarfræðingur verður á dagvöktum, heldur
mæta þeir klukkan 16 og verða allar helgar. Á dag-
inn munu hjúkrunarfræðingar bráðadeildar vera
til taks. I skoðun er að segja upp ráðgjöfum, og
ráða í staðinn félagsráðgjafa á dagvinnutíma.
„Ég vil ráðgast við mitt samstarfsfólk áður en
ég legg mat á þetta", segir Guðrún Agnarsdóttir.
Stjórnendur spítalans kanna einnig hvort nauð-
synlegt sé að hafa ávallt lækni til taks í neyðarbílum.
Tæplega fimmtíu æðstu stjórnendur sjúkrahússins
hafa verið beðnir um að taka á sig 5% prósenta launa-
lækkun. Nákvæmar áætlanir um niðurskurð og listi
yfir þá sem sagt verður upp ætti að liggja fyrir öðru
hvoru megin við helgi. brynja@dv.is
uMuaney anui iui
Margrét Frimannsdóttir nýtti sér
þjónustu endurhæfingardeildar
krabbameinssjúklinga í tengslum
við meðferð við brjóstakrabba-
meini.
„Ég held að enginn sem ekki hefur
nýtt sér þessa þjónustu geri sér
grein fyrir hversu mikilvæg hún er.
Það að loka deildinni og færa starfsemina annað er
fráleit hugmynd, þvíþað mun aldrei koma í stað
þeirrar starfsemi sem þarna fer fram. Þetta er stór-
kostieg afturför. Stjórnendur, eins og Guðný Jónsdótt-
ir og Érna Magnúsdóttir hafa iyft grettistaki og unnið
þarna mikið starf. Ég hvet krabbameinssjúkiinga og
aðra tii að standa vörð um starfsemina. ÉfLandspit-
aiinn getur ekki veitt þessa þjónustu hvet ég sjúk-
linga og starfsfólk til að leita ieiða til að reka deildina
áfram íþvi formi sem hún er nú. Mér finnst það með
ólíkindum að stjórnvöld setji spítalann iþá stöðu að
þurfa að leggja niður svo viðkvæma þjónustu. Ég hef
beðið um fund í heilbrigðis- og trygginganefnd til að
ræða útfærsluna á niðurskurðartiiiögum Landspítal-
ans, enda er ábyrgðin er pólitísk, en ekki hjá stjórn-
endum Landspítalans. Stjórnvöld eru að vinna það
mikið það mikið tjón á starfí spítalans að það er ill-
eða óbætnalegt ef fram fersem horfir.
Fundur stóð enn yfir í gærkvöld um sölu á Haraldi Böðvarssyni, úr Brimi Eimskips
Grandi og HB bræður kaupa Harald Böðvarsson
Haraldur Bóðvarsson hf
HB til nýrra eigenda - aftur til fjölskyldunnar, með tilstyrk Granda
„Niðurstaðan var sú að menn
ákváðu að fara í viðræður við Granda
og HB bræður um kaup á HB," var
það eina sem Magnús Gunnarsson,
stjórnarformaður Eimskips vildi segja
um viðræður á milli fyrirækisins ann-
ars vegar og Granda og HB bræðra
hins vegar um kaup þeirra síðar-
nefndu á sjávarútvegsfyrirtækinu
Haraldi Böðvarssyni. HB er eitt
þriggja fyrirtækja sem mynda Brim,
sjávarútvegsarm Eimskips. Ásamt
Granda eru þeir bræður Harlaldur og
Sturlaugur Sturlaugssynir í viðræðum
um kaupin. Samkvæmt heimildum
DV stefnir allt í það að það gangi sam-
an með aðilum og þegar blaðið fór í
prentun í gærkvöld var við því búist
að það yrði gengið frá málum áður en
dagur rynni. HB hefur yfir að ráða
tæpum 4% af heildarkvóta lands-
manna. Næsta skrefið verður að selja
Útgerðarfélag Ak-
ureyringa sem
ræður yfir 5%
kvótans og Skag-
strending sem
ræður yfir 2%. Allt í
allt átti sala þess-
ara fyrirtækja að
skila Eimiskipi 18-
20 milljörðum
króna.
Áhugi á flutningastarfseminni
„Það er áhugi meðal fleiri stjórn-
enda Eimskipafélagsins að koma að
þessu", segir Þórður Magnússon,
fyrrum ffamkvæmdastjóri hjá Eim-
skipafélaginu, en hann er í hópi fjár-
festa sem stefnir að því að eignast
ráðandi hlut í flutningastarfsemi
Eimskipafélagsins. Hópurinn hefur
verið að kaupa hlutabréf í félaginu
undanfarið. í honum eru, auk Þórðar
og sonar hans Árna Odds, Hannes
Smárason, aðstoðarforstjóri íslenskr-
ar erfðagreiningar, Erlendur Hjalta-
son, framkvæmdasjóri Eimskipafé-
lagsins og Hjalti Geir Kristjánsson,
ásamt Saxhóli, sem er í eigu Nóatúns-
fjölskyldunnar.
„Það eiga eftir að bætast fleiri í
hópinn", segir Þórður. Hann segir
engan sérstakan banka standa að
baki þessum hugmyndum og ekki
ljóst ennþá hversu stóran hlut hópur-
inn þarf til að takast ætlunarverk sitt.
Áformað er að skipta Eimskipafélag-
inu upp í fjárfestingafélag annarsveg-
ar og skipafélag hinsvegar á næsta að-
alfundi sem haldinn verður í mars.
Gunnarsson