Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2004, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 2004
Fréttir DV
Guðmundur Björnsson hefur í 14 ár starfað sem meindýraeyðir. Hann er reyndur í bransanum og hefur
stoppað upp nokkur fórnarlömb, rottur og mýs, í frítíma sínum. Það eru ekki bara rottur sem herja á
borgarbúa því 76 minkar lágu í valnum á síðasta ári og Guðmundur lítur framtíðina björtum augum.
„Okkar hlutverk er að sinna
kvörtunum borgara og sjá um að
halda stofninum niðri," segir Guð-
mundur Björnsson, meindýraeyðir
hjá Reykjarvíkurborg. „Við bregð-
umst við og aðstoðum fólk sem
lendir í vandræðum með hin ýmsu
dýr, hvort sem það eru rottur, kettir,
mýs eða minkar," segir Guðmundur
og bætir við að 76 minkar hafi verið
drepnir á síðasta ári í höfuðborg-
inni.
Koma á staðinn og
leysa málið
Guðmundur er búinn að vera í
meindýrabransanum í 14 ár. Hann
segir að ímyndunaraflið hlaupi
stundum með fólk í gönur og frá-
sagnir sem berist inn á borð til
þeirra séu oft og tíðum ævintýraleg-
ar. „Ef við tökum rottur sem dæmi
þá er í raun og veru tiltölulega lítið af
þeim hérna á íslandi,“ segir Guð-
mundur. „Þess vegna verða við-
brögðin um leið og ein sést oft meiri
en efni gefa tilefni til.“ Guðmundur
vill helst ekki tjá sig um ævintýraleg-
ustu reynsluna sem meindýraeyðir.
„Við komum bara á staðinn og leys-
um málið," segir hann. „Öllum æv-
intýrum sem verða í kringum
þetta höldum við fyrir okkur."
sama hvernig viðrar," segir Guð-
mundur og bendir á að síðan hann
hóf störf hafi kvörtunum borgarbúa
fækkað jafnt og þétt. „Ef kvörtunum
fækkar sýnir það árangur og það er
alltaf gaman að vita að manni
gengur vel í starfi."
Uppstoppaðar rottur
í glugganum
I glugganum á vinnustað Guð-
mundar gefur að líta nokkur sýnis-
horn af þeim dýrum sem
hann hefur náð í
gegnum tíðina - fjór-
ar rottur og ein
mús virðast
gefa blaða-
manni illt
Sama hvernig viðrar
Veðrið leikur yfirleitt stór
thlutverk í lífi flestra íslendinga
en Guðmundur segir að veð-
urguðirnir hafi lítil áhrif á
vinnu sína sem meindýraeyðir.
„Ef það berst kvörtun þá förum
við og
þjónust-
um borg-
arbúa
„Þessi dýr hafa fylgt
manninum í gegnum
söguna ogmunu trú-
iega fela sig í holræs-
unum um ókomin ár."
„Þetta eru nokkur sýnishorn af
þeim verkefnum sem við
höfum tekið okkur fyr-
ir hendur," segir Guð-
mundur. „Svo ákváð-
um við að skella
þessu upp í glugga til
að menn gætu séð
| þetta með eigin
i augum."
Guðmundur
bendir á eina rottuna
og segir að þetta sé sú
stærsta sem þeir hafi
náð. „Maðurheyrir samt
ýmsar sögur af rottum
sem eiga að vera metri á
lengd en mér sýnist þessi bara
vera nokkuð eðlileg."
Óþarfi að fara á taugum
Guðmundur vill benda fólki á
að fara ekki á taugum þótt ein og
ein rotta skjóti upp kollinum.
„Menn eiga bara að hafa samband
við borgina og láta okkur vita,“
segir hann og hefur engar áhyggjur
af því að með bættum árangri í
baráttu við meindýrin gæti hann
verið að gera sig atvinnulausan.
„Þessi dýr hafa fylgt manninum í
gegnum söguna og munu trúlega
fela sig í holræsunum um' ókomin
simon@dv.is
Þrír þingmenn breska þingsins voru á meðal farþega í þotu British Airways sem nauðlenti á sunnudag
Þingmenn samgöngunefndar nauðlentu í Keflavík
„Það er örugglega kaldhæðni ör-
laganna að við skulum vera í sam-
göngunefnd breska þingsins," sagði
Gwyneth Dunwoody í samtali við
blaðamann Sentinel en hún, ásamt
tveimur öðrum þingmönnum í sam-
göngunefnd, voru meðal 150 far-
þega í flugvél British Airways sem
nauðlenti í Keflavík á sunnudag
vegna reyks í farþegarými.
Dunwoody, sem er formaður sam-
göngunefndar, var á leið til Banda-
rfkjanna til fundar við þarlenda vís-
indamenn. „Flugmaðurinn sagðist
ekki vita hvað væri að vélinni og
tryggast væri því að nauðlenda
henni. Allir héldu ró sinni,
við lentum og fengum gist-
ingu á hótelum," sagði þing-
maðurinn og bætti við að
farþegarnir hefðu ekki orðið
varir við að þeir væru í
hættu. Dunwoody og félagar
hennar úr samgöngunefnd,
Graham Stringer og Louise
Gwyneth
Dunwoody
Ellman, ásamt hinum farþegunum
og ellefu manna áhöfn gistu eina
nótt á hótelum á Islandi en önnur
vél frá BA tók við hópnum í gær og
flaug með hann áfram til Bandaríkj-
anna. Flugvélinni var síðan flogið
tómri á Heathrow- flugvöll þar sem
hún var grandskoðuð. I ljós
kom að stíflað salerni hafði
leitt til þess að reykur barst
inn í farþegarýmið.
Umtalsverður viðbúnaður
var á Keflavíkurflugvelli vegna
nauðlendingarinnar og Al-
mannavarnir voru í við-
bragðsstöðu.
Þetta var í annað sinn á einni
viku sem flugvél nauðlenti á Kefla-
víkurflugvelli. í fyrra skiptið lenti
flugvél frá United Airlines á einum
hreyfli og þurfti að skipta um hann
áður en hægt var að fljúga vélinni
áfram.