Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2004, Síða 15
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 14.JANÚAR2004 15
Harold Shipman, eða „doktor dauði“ eins og hann var kallað-
ur, fannst látinn í fangaklefa sínum í gær. Shipman var
dæmdur í fimmtánfalt lífstíðarfangelsi fyrir að myrða 15 sjúk-
linga sína en talið var að fórnarlömb hans væru að minnsta
kosti 215.
Hengdi sig í
sænguriötunum
Dauðalæknirinn Harold Shipman notaði heróín til að myrða sjúklinga slna. Hann varsagð-
ur haldinn óstöðvandi þörftil að leika guð og hafa líffólks bókstaflega I hendi sér.
Hinn illræmdi læknir Harold
Shipman fannst látinn í fangaklefa í
Wakefield-fangelsinu á Englandi í
gærmorgun. Shipman fannst hang-
andi í snöru sem hann hafði búið til
úr sængurfötum sínum. Lífgunartil-
raunir báru ekki árangur.
Shipman var dæmdur í
fimmtánfalt lífstíðarfangelsi árið
2000 fyrir morð á fimmtán sjúkling-
um. Auk þess hlaut hann fjögurra
ára fangelsi fyrir að falsa erfðaskrá
eins fórnarlambsins.
Rannsókn á máli Shipmans hef-
ur leitt í ljós að fórnarlömbin voru
að minnsta kosti 215 og jafnvel 260.
Ferill Shipmans er einn sá svartasti
í sögu fjöldamorðingja enda hafa
aðeins örfáir menn verið sakaður
um jafn mörg morð og hann.
Nokkrir ættingjar fórnarlamba
Shipmans tóku fregnum af sjálfs-
morði hans illa og sögðu það merki
um hugleysi hans. Dauði
Shipmans lokar líka á þann mögu-
leika að ættingjarnir fái nokkru
sinni að vita hvað honum gekk til
en Shipman neitaði alla tíð sök í
málinu. Hann gaf heldur aldrei
skýringar á dauða fórnar-
lambanna.
Sleppur létt
Morðin eru talin hafa verið
framin á árabilinu 1975 til 1998.
Meirihluti fórnarlamba Shipmans
var eldri konur og var banamein
þeirra of stór skammtur af
heróíni. Af fórnarlömbum
Shipmans voru 44 karlmenn og
171 kona. Elsta fórnarlambið var
93 ára kona og það yngsta 47 ára
karlmaður. Rannsókn málsins
leiddi jafnframt í ljós að Shipman
myrti fórnarlömb sín hljóðlega og
að því er virðist eftir ákveðnu
kerfi. Talað var um að hann hefði
verið „háður" því að ákvarða líf
eða dauða sjúklinga sinna.
Jane Ashton-Hibbert, barnabarn
fórnarlambs Shipmans, sagði í sam-
tali við fréttastofu BBC að sér fynd-
ist þetta létt endalok fyrir lækninn.
„Hann sleppur létt frá þessu. Hann
sýndi aldrei samúð eða sekt vegna
málsins og nú hafa dyrnar lokast
endanlega í þessu máli.“
Danny Mellor, sonur konu sem
Shipman myrti, sagði að sjálfs-
morðið ylli mörgum ættingjum
hugarangri þar sem óvissan í mál-
inu væri endanleg. „Ég hef alltaf alið
þá von í brjósti að ég ætti eftir að
horfast í augu við Shipman og
spyrja hann af hverju hann hafi gert
þetta."
Erfðaskráin kom upp
um hann
Við réttarhöldin kom í ljós að
Shipman hafði áður verið dæmdur
fyrir að falsa lyfseðla til að fullnægja
eigin lyfjafíkn. Það þótti með ólík-
indum að hann skyldi halda lækna-
leyfinu og fá að reka áfram lækna-
Morðin eru talin hafa
verið framin á árabil-
inu 1975 til 1998.
Meirihluti fórnarlamba
Shipmans vareidri
konur og var bana-
mein þeirra ofstór
skammtur afheróíni.
stofu einn síns liðs. Enda kom á
daginn að Shipman hafði komið sér
upp gríðarlegum birgðum af efni
sem samsvarar heróíni á læknastofu
sinni og beitti því óspart á sjúklinga
sína.
Upp komst um Shipman þegar
dóttir sjúklings sem dó í höndum
hans gerði athugasemd við erfða-
skrá. Dóttirin neitaði að trúa að
móðir sín hefði arfleitt Shipman að
auðæfum sínum. Lík gömlu kon-
unnar var tekið til rannsókar og
fundust þá leifar heróíns. Falsaða
erfðaskráin varð til þess að bundinn
var endi á áralangt morðæði
Shipmans læknis og fórnarlömbin
urðu ekki fleiri.
Yfirvöld í fangelsinu sendu frá
sér yfirlýsingu vegna dauða
Shipmans í gær og staðfestu að
hann hefði fundist hangandi í
sængurfötunumm. „Síðan Ship-
man kom til Wakefield 18. júní
2003 hefur hans aldrei verið gætt
með tilliti til sjálfsmorðshættu,
hann hefur verið í venjubundinni
gæslu,“ segir jafnframt í yfirlýs-
ingu fangelsisins. Lík Shipmans
var flutt í lögreglufylgd úr fangels-
inu í gær.
Fundur í Félagi kvikmyndagerðar-
manna um mynd Hrafns Gunnlaugsson-
ar „Opinberun Hannesar”
Hrafn mætir ekki
Á almennum félagsfundi í Félagi
kvikmyndagerðarmanna (FK) í
kvöld mun aðalumræðuefnið verða
mynd Hrafns Gunnlaugssonar „Op-
inberun Hannesar". Hrafni sjálfum
mun hafa verið boðið á fundinn en
að sögn Hjálmtýs Heiðdal, stjórn-
armanns í FK, mætir hann ekki.
Eins og fram hefur komið í
fréttum ólgar mikil óánægja meðal
meðlima FK vegna þeirra styrk-
veitinga sem Hrafn hefur fengið
vegna myndarinnar en þær
upphæðir þykja ekki í neinu
samræmi við kostnað. „Menn
eru grautfúlir að hann fær
alltaf súperpeninga til
sinna verkefna meðan
aðrir fá mun minni íjár-
hæðir," segir Iljálmtýr.
„Þetta á ekki bara við um
„Opinberun Hannesar"
heldur mætti nefna fleiri dæmi eins
og tölvumyndina „fsland í öðru
ljósi" þar sem hann fékk meðal ann-
ars 9 milljónir króna frá umhverfis-
ráðuneytinu auk styrkja frá Kvik-
myndasjóði, Sjónvarpinu og
Landsvirkjun. Þessir styrkir
voru ekki í neinu samræmi
við ætlaða kostnað."
í máli Hjálmtýs kem-
ur einnig ffarn að það
þykir æði dularfullt í
hvað þær 44 milljónir
kr. sem Hrafn fékk til að
gera „Opinberun Hann-
esar" hafa farið. „Ýmsir
hafa verið að reikna
dæmið út og komast ekki
ofar en að raunkostnaður
við myndina sé á bilinu
10-12 milljónir króna,"
segir hann.
SKIPULAGS- QG BYGGINGARSVIÐ
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um breytingar á
deiliskipulagsáætlunum í
Reykjavík
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til
kynningar tiliögur að breytingum á deiliskipulagi í
Reykjavík.
Norðlingaholt, norðaustur-hluti.
Um er að ræða tillögu að breytingu á deiliskipulagi
Norðlingaholts, norðaustur-hluta, sem frestað var af
heildarskipulagi svæðisins. Um er að ræða óverulegar
breytingar frá tillögu sem auglýst var á fyrra ári. Auk þess
gerir tillagan ráð fyrir smávægilegum breytingum á
vesturhiuta áður samþykkts skipulags.
Nánar vísast í kynningargögn.
Laugardalur.
Um er að ræða tillögu að breytingu á deiliskipulagi
Laugardals þar sem byggingarreitur stúku Laugar-
dalsvallar er stækkaður. Áður voru tveir byggingarreitir við
hvorn enda um 3.500 m2 að stærð og felst breyting í að
reitir eru sameinaðir í einn og einnig stækkar byggingar-
reiturinn. Sameinaður og stækkaður reitur er 10.290 m2
og er þar gert ráð fyrir að svæði austan aðalstúku er
skilgreint sem byggingareitur ásamt stúkunni allri.
Ástæða breytingarinnar er fyrirhuguð ný aðkomubygging
inn í stúkuna.
Nánar vísast í kynningargögn.
Rafstöðvarvegur 1a.
Um er að ræða tillögu að breytingu á deiliskipulagi
Rafstöðvarvegs 1a þar sem gert er ráð fyrir breyttri
notkun, stækkun byggingarreits ofanjarðar og nýjum
byggingarreit fyrir geymsluhúsnæði neðanjarðar.
Notkun/starfsemi í húsunum verður tengd hönnun og
listum með sýningarsölum, vinnustofum, veitinga- og
kaffishúsi, verslun með sérvöru og fleira. Ekki er heimilt
að að nýta lóð undir matvörumarkað, bílasölu, viðgerðar-
verkstæði, gistiaðstöðu, íbúðir og grófan framleiðslu-
iðnað.
Nánar vísast í kynningargögn.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og
byggingarsviðs Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3, 1. hæð,
virka daga kl. 8.20 - 16.15, frá 14. janúar 2004 til 25.
febrúar 2004. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu
sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hags-
muna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar.
Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila
skriflega til skipulags- og byggingarsviðs (merkt
skipulagsfulltrúa) eigi síðar en 25. febrúar 2004.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 14. janúar 2004
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur