Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2004, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 2004
Fókus DV
-t
*
Djass á Kaffi List
Djasstónleikamlr á
fimmtudagskvöldum á
Kaffl List hafa slegið í
gegn síðustu vikur og
mánuði.
Hvert stór-
bandið af
Jæja
öðru hefur komið þar
fram og djassáhuga-
menn hafa átt
þama fast at-
hvarf. Annað
kvöld er það B-3
trfóið sem kemur
fram klukkan
21.30. Aðgangur
er sem fyir
ókeypis. Umsjónarmað-
urtónleika- raðarinnar
er Sigurður Flosason.
Beddan um
aðra helgi
Árleg viðurkenninga-
hátíð óháðra kvik-
myndagerðarmanna,
Beddan, verður haldin
dagana 24. og25. janúar
í húsnæði Mm. Beddan
er eins konar uppgjör á
Bfó Reykjavík-kvöldun-
um sem haldin eru
reglulegayfir árið. Þarna
verða sýndar allar þær
myndir sem áhorfendur
völdu bestu myndir
Opnu Bíó-kvöldanna á
síðasta ári. Hægt er að
fylgjast betur með þessu
a www.bioreykja-
vik.com.
Tómastil Berlínar
Tómas Lemarquis hefur
verið valinn í „Shooting
Star“ hópinn 2004 sem
árlega er kynntur á
kvikmyndahátíð-
um um allan
heim. í byrjun
febrúar fer hann
til Berlínar þar
sem hópurinn er
kynntur á Berlín-
arhátíðinni í fyrsta
sinn. Eins og
kunnugt er fór Tómas
með hlutverk Nóa al-
bínóa í samnefndri
mynd, hlaut Edduverð-
launin fyrir leik sinn og
var tilnefndur til Evr-
ópsku kvikmyndaverð-
launanna. 21 ungir ein-
staklingar eru í „Shoot-
ing Star“ hópnum.
Þátturinn Fólk með Sirrý á Skjá einum er einn vinsælasti
þáttur landsins. Hún hefur verið kölluð Oprah norðursins og
tekur á málum sem snerta áhorfendur. Þátturinn er í beinni
útsendingu en það hefur verið aðalsmerki Skjásins. DV tók
púlsinn á Sirrý til að fá að vita hvað væri þema þáttarins í
kvöld.
„Rauði þráðurinn í þættinum í kvöld er það að trúa,“
segir Sirrý um þemað í þætti kvöldsins en Fólk með Sirrý
er á dagskrá Skjás eins í kvöld kl. 21. Hún bætir því við að
Jón Gnarr mæti og segi frá trú sinni á Jesú Krist og hvern-
ig hann nýtir sér trúna í daglegu lífi.
„Jón sýnir á sér nýjar hliðar, innri hliðar, þar sem
hann er alltaf í hlutverki grínarans," segir Sirrý. „Svo
heyrum við frá konu sem trúði of mikið á mann sem hún
kynntist á Netinu. Það var netást sem brást. Ég tala svo
við Þórunni Egilsdóttur, sjónvarps- og poppstjörnu, sem
er að gera góða hluti í Lúxemborg. Hún var meðal ann-
ars beðin að syngja í Eurovision fyrir hönd Lúxemborgar
en hún neitaði því vegna þess að hún heldur með ís-
landi. Hún er svona Birgitta Haukdal þeirra Lúxemborg-
ara. Umræða þáttarins er á alvarlegu nótunum í þetta
skipti."
Mexíkóskt partí
Þátturinn hennar Sirrýjar er í beinni og í salnum í
kvöld verða saumaldúbbar allsráðandi en fólk getur
skráð sig til þátttöku á heimasíðu Skjás eins, www.sl.is.
En hvernig leggst nýtt ár íþig, Sirrý?
„Þetta ár leggst mjög vel í mig. Ég er alltaf svo hug-
fangin af þeim verkefnum sem ég fæst við hverju sinni
og það er alltaf nóg af góðu fólki og hugmyndum. Með-
an svo er leggst þetta vel í mig,“ segir Sirrý og bætir því
við að bráðum komi að 20. þættinum í þessari seríu og
þá er fyrirhugað að halda partí:
„Við erum að undirbúa partí með mexíkósku
þema þar sem allir verða að mæta í mexíkóskum
fötum. Við erum svo mörg sem komum að þætt-
inum þannig að það verður að halda vel utan um
hópinn og hittast fyrir utan vinnu,“ segir hún að
lokum enda nóg að gera í höfuðstöðvum Skjás
eins.
henny@dv.is
Sigríður Arnardóttir
/ kvöld kemurjón
Gnarr I þdttinn hennar
og segir frd trú sinni á
Jesú Krist.
Álfrún Helga Örnólfsdóttir er ein efnilegasta leikkona landsins
Litla nasistastúlkan og dóttir Elvis
„Það er slegist um sviðið í Loft-
kastalanum þannig að leikritið var
frumsýnt viku of seint. En það er allt
gott um það að segja þar sem við
höfðum þá meiri tíma til að æfa fyr-
ir framan áhorfendur," segir Álfrún
Helga örnólfsdóttir, sem fer þessa
dagana með hlutverk 14 ára stelpu
sem fær útrás fyrir vandamál sín í
gegnum matseld í verkinu „Eldað
með Elvis" í Loftkastalanum. Steinn
Ármann fer með hlutverk pabba
hennar, sem er heiladauður og situr
hreyfmgarlaus í hjólastól allt leikrit-
ið — á milli þess sem hann leikur El-
vis í fullu fjöri.
Vill vinna í London
Álfrún útskrifaðist í fyrravor úr
leiklistaskólanum Webber Douglas
Academy of Dramatic Art í London.
Þar sækja um 2.000 manns um inn-
göngu á ári hverju en einungis 30
komast inn. Hún kom svo heim í
haust til að leika í myndinni Dís,
sem væntanleg er f bíóhús um pásk-
ana, og byrjaði svo í Elvis.
Þú gast ekki hugsaö þér að vera
áfram íLondon?
“Ég gæti alveg hugsað mér að
fara aftur. Ég er með umboðsmann
þarna, og ég fékk lítið hlutverk í
„Ég leik litla nasista-
stúlku sem kemur upp
um strokufanga og
er mjög stolt, eins
og hún hafi gert j
góðverk."
þáttunum POW. Þeir gerast í
fangabúðum Þjóðverja í seinni
heimsstyrjöldinni, og ég leik litla
nasistastúlku sem kemur upp um
strokufanga og er mjög stolt, eins og
hún hafi gert góðverk. Ég fékk að
fara til Litháen þar sem ég bjó á
fimm stjörnu hóteli og það var kom-
ið fram við mig eins og drottningu,
sem er absúrd af því að þetta var
pínuhlutverk."
Þarf að læra að
slaka á
Álfrún lék
einnig í
mynd-
bandi með bandarísku hljómsveit-
inni Live sem var tekið upp í kring-
um Gullfoss í
fyrrasumar, en
hún hef-
ur víða
sést áður,
til dæm-
myndunum Villiljós og A köldum
klaka og í leikritum eins og Rent,
Óvitunum og Bugsy Malone.
Hvernig hefurðu tíma fyrir þetta
allt?
“Maður finnur alltaf tíma ef þetta
er eitthvað sem maður hefur áhuga
á. Ég er frekar þannig týpa að ég þarf
að læra að slaka á, og hef til dæmis
ekki gengið með úr síðustu þrjú ár til
að koma í veg fyrir að ég skipuleggi
hverja rnínútu."
Álfrún Helga Örnólfsdóttir
Leikur i kvikmyndinni Dls, auk þess að fara
með hlutverk i Eldað með Elvis. Menntaði
sig úti I London og gæti vel
hugsað sér að fara
bangoð aftur.
Tónleikar
• Hljómsveitirnar Converge frá
Bandaríkjunum, I Adapt og Kimono
Lífið eftir vinnu
verða með tónleika í Iðnó. Það kost-
ar 1200 kall inn, ekkert aldurstak-
mark.
• Dúndurfiréttir spila uppáhalds
lög sín með Led Zeppelin og Pink
Floyd á Gauknum klukkan 21.
• Hljómsveitin Lokbrá heldur tón-
leika á efri hæð Bar 11 klukkan 22.
Aðgangur er ókeypis.
Klassik
• Strengjasveit Tónlistarskólans í
Reykjavík heldur tónleika í Háteigs-
kirkju klukkan 20. Leikin verða verk
eftir Bach, Handel og Sibelius. Ein-
leikari á fiðlu er Magdalena Dubik.
Stjórnandi er Mark Reedman. Að-
gangur að tónleikunum er ókeypis
og öllum velkominn.
Eldri borgarar
• Félag eldri borgara f Reykjavík
efnir til síðdegisdans í Ásgarði,
Glæsibæ, klukkan 14.30. Guðmund-
ur Haukur hljómborðsleikari leikur
fyrir dansi. Kaffi og rjómaterta.
Fundir og fyrirlestrar
• Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir,
sveppafræðingur á Náttúrufræði-
stofnun íslands, flytur erindið
„Hvað er títt af sveppum?" á
Hrafnaþingi, í sal Möguleikhússins
á Hlemmi klukkan 12.15.
• Hildur Magnúsdóttir hjúkrunar-
fræðingur flytur erindi um rann-
sókn sína á reynslu erlendra hjúkr-
unarfræðinga af því að starfa á
sjúkrahúsi á íslandi. Erindið verður
flutt á vegum Rannsóknarstofnunar
í hjúkrunarfræði í stofu 201 á 2.
hæð í Eirbergi, Eiríksgötu 34, klukk-
an 12.15.
• Málstofa um sérstöðu og ein-
kenni stjórnarskrár fyrir Evrópu
verður haldin í stofu L-101 í Lög-
bergi klukkan 12.15 og er opin öll-
um sem áhuga hafa á efninu. Máls-
hefjendur
verða Stefán
Már Stefáns-
son og Úlfar
Hauksson.
Fundarstjóri
er Björg
Thorarensen,
prófessor við
lagadeild HÍ.
• Tryggvi Þór Herbertsson frá
Hagfræðistofnun og Herdís Stein-
grímsdóttir frá London School of
Economics flytja erindi á málstofu
Hagfræði-
stofnunar í
Odda, stofu
101, klukk-
an 12.15.
Erindið ber
yfirskriftina
„Hvað ræð-
ur starfslok-
um á Is-
landi?"
• Fyrsta myndakvöld Ferðafélags
íslands á þessu ári verður haldið í
Ferðafélagssalnum Mörkinni 6, 108
Reykjavík, klukkan 20. Sævar Guð-
jónsson og Bjarni Aðalsteinsson
sýna fjölda mynda frá Austurlandi.
Einnig verða sýndar frábærar loft-
rnyndir sem Skarphéðinn Þórisson
tók.