Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2004, Side 24
24 MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 2004
Sport DV
Liðin orðin klár
í stelpuslaginn
Kosningin í Stelpuslag-
inn, stjömuleik kvenna sem
öll liðin í 1. deild kvenna í
körfubolta standa fyrir,
ásamt Haukum úr 2. deild,
lauk á mánudagskvöldið en
kosið var í tvö úrvalslið í op-
inni kosningu á netinu, lið
Reykjavíkur og lið Suðursins.
Leikur með þessu sniði hefur
ekki farið áður fram fyrir
kvennaliðin f körfuboltanum
og nú er ljóst hvaða 24 leik-
menn spila leikinn, sem
fram fer í Seljaskóla í kvöld
og hefst klukkan 20.
Þátttakan í atkvæða-
greiðslunni var mjög góð og
alls greiddu 825 manns at-
kvæði. Alda Leif Jónsdóttir úr
ÍS (505) og Erla Þorsteins-
dóttir úr Keflavík (491) fengu
ílest atkvæði í kosningunni.
ívarÁsgrímsson þjálfar
Reykjavíkurliðið, sem er
þannig skipað: Alda Leif
Jónsdóttir ÍS, Eplunus
Brooks IR, Hildur Sigurðar-
dóttir KR, Lovísa Guð-
mundsdóttir ÍS, Katie Wolfe
KR, Kristrún Sigurjónsdóttir
ÍR, Stella Rún Kristjánsdóttir
ÍS, Svana Bjarnadóttir ÍS,
Rakel Viggósdóttir ÍR, Svan-
dís Sigurðardóttir ÍS, Jófríður
Halldórsdóttir ÍS og Hafdís
Helgadóttir ÍS. Pétur Guð-
mundsson, þjálfari Grinda*
víkurliðsins, er þjálfari Suð-
ursins og er það þannig skip-
að: Erla Þorsteinsdóttir
Keílavík, Helena Sverrisdótt-
ir Haukar, Erla Reynisdóttir
Keflavík, Pálína Gunnlaugs-
dóttir Haukar, Birna Val-
garðsdóttir Keflavík, Auður
Jónsdóttir Njarðvík, Sólveig
Gunnlaugsdóttir Grindavík,
Marfn Rós Karlsdóttir Kefla-
vík, Anna María Sveinsdóttir
Keflavík, Petrúnella Skúla-
dóttir Grindavík, María Ben
Erlingsdóttir Keflavík og
Kesha Tardy Grindavík.
Niðurröðun
eftir tvær vikur
Eggert Magnússon, for-
maður Knattspyrnusam-
bands Islands, sagði í sam-
tali við DV Sport í gær að
niðurröðun í riðil íslenska
landsiiðsins í knattspyrnu í
undankeppni HM 2006
myndi fara fram á Möltu
27. janúar næstkomandi.
Eggert sagði að Geir Þor-
steinsson, framkvæmda-
stjóri KSÍ, og Ásgeir Sigur-
vinsson landsliðsþjálfari
myndu verða viðstaddir
niðurröðunina ásamt hon-
um sjálfum en sagði jafn-
framt að þeir félagar hefðu
ekki fundið út hver
draumaniðurröðun fs-
lands væri. „Það borgar sig
að mæta með opnum huga
á fundi sem þennan."
Heiðar Helguson, framherji Watford
Ekki með gegn
Chelsea í kvöld
Vamarmenn Chelsea geta
varpað öndinni Iéttar því Heiðar
Helguson verður ekki með Watford
í leik liðanna á Stamford Bridge í
þriðju umferð ensku bikar-
keppninnar. Heiðar meiddist á læri
f síðustu viku og sagði í samtali við
DV Sport í gær að hann væri
einfaldlega ekki klár f leikinn.
„Þetta var frekar lítil tognun í
lærinu og ég verð væntanlega klár
strax eftir helgi. Þessi leikur kemur
hins vegar of snemma fyrir mig.
Þetta er auðvitað hrikalega svekkj-
andi en svona er fótboltinn. Eg
hefði að sjálfsögðu viljað spila
þennan leik en það er ekkert hægt
að gera við þessum meiðslum. Þau
verða að hafa sinn gang og það er
ekki hægt að flýta batanum," sagði
Heiðar.
Allt þarf að ganga upp
Hann sagði aðspurður að hann
væri nokkuð bjartsýnn fyrir leikinn
þótt hann væri ekki með.
„Við eigum nóg af framherjum
sem geta komið í staðinn fyrir mig.
Við vitum að við þurfum að eiga
toppleik á morgun til að vinna og að
sama skapi vonast til að leikmenn
Chelsea eigi dapran dag líkt og
gerðist í fyrri leiknum. Þar áttum við
í fullu tré við þá og hefðum alveg
eins getað unnið,“ sagði Heiðar.
Heiðar lék gífurlega vel í fyrri
leiknum og áttu miðverðir Chelsea,
Frakkarnir Marcel Desailly og
William Gallas, í mesta basli með
hann. Hann sagði aðspurður að
hann hefði ekki fengið neinar
fyrirspumir frá öðmm félögum eftir
þann leik.
Ekki á leiðinni burt
„Ég er nú ekki að missa andann
yfir því. Ég hef aðeins spilað níu leiki
á þessu tímabili og því væri það
ótrúlegt ef einhver lið vildu fá mig.
Ég á tvö og hálft ár eftir af samningi
mínum við Watford og er ekkert á
leiðinni burt. Fjölskyldunni líður
afskaplega vel hérna, strákarnir
okkar eru í skóla, konan er í háskóla
og ég er mjög ánægður hjá félaginu.
Það eina sem vantar er að ég sleppi
við meiðsli - þau eru farin að vera
frekar þreytandi," sagði Heiðar
Helguson í samtali við DV Sport í
gær. oskar@dv.is
Ekki með gegn Chelsea Heiðar Helguson verður ekki með Watford gegn Chelsea í kvöld þar
sem hann er meiddur. Hér sést hann fagna marki sínu i fyrri leik liðanna, sem endaði með
jafntefíi, 2-2. Reuters