Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2004, Síða 25
DV Sport
MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 2004 25
Æviferill Sepps
Blatter
Sepp Ulatter fæddist í
I Visp í Svíss 10. mars 1936.
Hann lærði lögfræði við
^ háskólann í Lausanne og
spilaði eitt tímabil með
áhugamannaliðinu Salgesch
tímabilið 1962-1963.
Blatter varð forseti sviss-
neska íshokkísambandsins
árið 1964 og gekk til liðs við
Alþjóða knattspyrnusam-
bandiö árið 1975 þegar hann
gerðist yfirmaður tækni-
þróunar hjá sambandinu.
Joao Havelange, þá-
verandi forseti Alþjóða
knattspyrnusambandsins og
lærifaðir Blatters, hækkaði
hann í tign árið 1981 og gerði
hann að aðalritara sam-
bandsins. Blatter varð forseti
sambandsins árið 1998 eftir
að hafa sigrað Svíann
Lennart Johansson í
kosningu. Hann stóð af sér
ásakanir um fjármálamisferli
og var endurkjörinn forseti
árið 2002.
Blatter tilkynnti f síðustu
viku að hann væri að skilja
við eiginkonu sína, Graziellu,
sem er 26 árum yngri en
hann, en þau höfðu verið gift
ffá því í maí á síðasta ári. Þau
munu þó áfram koma fram
saman á opinberum vett-
vangi.
Sepp Blatter, forseti Alþjóða knattspyrnusambandsins, er í fullu Qöri þessa dagana
og hefur skoðun á öllu sem fram fer í knattspyrnuheiminum. Staða hans var ekki
jafn sterk fyrir einu og hálfu ári, síðan þegar hann var talinn vera sá spilltasti
innan knattspyrnuhreyfingarinnar.
Fra skurki til
hetiu á mettíma
Svisslendingurinn Sepp Blatter, forseti Alþjóða knattspyrnu-
sambandsins, hefur verið mikið í sviðsljósinu að undanförnu. Hann hefur
tjáð sig um lyfjamál Rio Ferdinand, fjármál enskra knattspymuliða og
Alþjóða lyfjanefndina. Blatter leikur á als oddi þessa dagana enda öruggur
í sínum stól til ársins 2007 en það eru ekki nema átján mánuðir sfðan hann
var að deyja drottni sfnum sem valdamesti maður í
knattspyrnuhreyfingunni þegar hann var talinn vera gjörspilltur í kjölfar
fjármálahneykslis hjá Alþjóða knattspyrnusambandinu.
Sepp Blatter var orðinn ansi
valtur í sessi sem forseti Alþjóða
knattspyrnusambandsins fyrir átján
mánuðum. Hann var sagður vera
spilltasti maðurinn í gjörvöllum
knattspyrnuheiminum og var sak-
aður um að reka Alþjóða
knattspyrnusambandið í eigin þágu
og að vera kominn með sambandið
á brún fjárhagslegs hruns. Hann var
sakaður um að hafa borið fé á
stjórnarmenn sambandsins fyrir
atkvæði í forsetakosningum.
Blatter atti kappi við Issa
Hayatou frá Fílabeinsströndinni í
forsetakosningum og þrátt fyrir að
aðalritari hans Michael Zen-
Ruffinen snerist gegn honum, ásamt
ellefu af tuttugu og fjórum
meðlimum framkvæmdastjórnar
Alþjóða knattspyrnusambandins,
var það ekki nóg til að fella Blatter.
Hann kom, sá og sigraði á þingi
sambandsins í Doha í Katar í lok
ársins 2002 og eyddi síðan næstu
mánuðunum í að gera út af við
andstæðinga sína. Nú er svo komið
að Blatter heldur öllum þráðum í
hendi sér og er ókrýndur konungur
knattspyrnuheimsins, Honum leið-
ist heldur ekki að minna menn á það
og hefur sjaldan eða aldrei verið jafn
áberandi og undanfarið.
Blatter ferðast út um víðan völl
og er fastagestur hjá þjóðar-
leiðtogum heimsins. Hann verður
gestur Elísabetar Englands-
drottningar í næsta mánuði þegar
Alþjóða knattspyrnusambandið
heldur framkvæmdastjórnarfund í
London.
Horn í síðu Englendinga
Blatter hefur verið duglegur við
að rffast við Englendinga að
undanförnu og segja heimildir að
hann hafi enn horn í síðu þeirra frá
því að Adam Crouzier, fyrrum
framkvæmdastjóri enska knatt-
spyrnusambandsins, studdi Issa
Hayatou gegn Blatter í forseta-
kosningunum árið 2002. Blatter
hefur gagnrýnt ensk félög fyrir að
eyða of miklum peningum og vera
með of marga útlendinga í sínum
röðum. Hann hefur gagnrýnt
harðlega framferði Rússans Roman
Abramovich, eiganda Chelsea, sem
hefur keypt leikmenn í stríðum
straumum og segir að eigendur
félaga í Englandi hafi allt of mikil
völd. Mest hefur hann þó látið til sín
taka í lyfjamáli Rio Ferdinand. Hann
hefur verið ófeiminn við að tjá sig
um það mál við litlar vinsældir í
Englandi, sérstaklega í herbúðum
Manchester United, félags Rio
Ferdinand.
Blatter sagði í viðtali á dögunum
að það væri hans skoðun að
Ferdinand ætti ekki að spila með
Manchester United á meðan mál
hans væri tekið fyrir og að öll stig
sem liðið ynni sér inn á meðan
Ferdinand væri í liðinu ættu að
dragast af því. Þetta vakti hörð
viðbrögð hjá David Gill,
Manchester United, sem bað Blatter
náðarsamlegast um að vera ekki
skipta sér af hlutum sem kæmu
honum ekki við.
Allt of langurtími
Blatter gagnrýndi líka enska
knattspyrnusambandið fyrir það
hversu langan tíma það tók
sambandið að dæma Ferdinand og
hótaði aðgerðum gegn Manchester
United ef félagið myndi áfrýja átta
mánaða banni enska sambandsins.
„Ég skil ekki af hverju þetta tók
svona langan tíma. Ef það hefði
verið farið eftir reglugerðum Alþjóða
knattspyrnusambandsins hefði
Ferdinand farið strax í bann. Við
höfum fengið pappíra um málið í
hendurnar en það er alveg ljóst að
við munum aðhafast eitthvað ef við
erum ekki sáttir. Það er hlutverk
Alþjóða knattspyrnusambandsins
hvort sem mönnum líkar það betur
eða verr," sagði Blatter.
Hann bætti jafnframt við að
hann ráðlegði Manchester United
að áfrýja ekki dómnum og að hann
vildi hitta Alex Ferguson,
knattspyrnustjóra Manchester
United, og David Gill og ræða við þá
málin.
Stóru félögin skilja ekki
„Ef menn bera ekki minnstu
virðingu íyrir stofnunum og reglum
sem þessar stofnanir setja mun
knattspyrnan eiga í miklum erfið-
leikum í náinni framtíð. Ef þú
tilheyrir íjölskyldu fylgir því
ákveðinn agi og menn verða að
beygja sig undir reglur sem settar
eru. Ég þarf að setjast niður með
þeim sem hafa verið í lykil-
hlutverkum í þessu máli til að
útrýma þeim misskilningi sem hefur
ríkt. Mér finnst eins og stóru félögin
skilji oft á tíðum ekki hlutverk
Alþjóða knattspyrnusambandsins
og hlutverk sitt gagnvart
alheimsknattspyrnufjölskyldunni.
Enska úrvalsdeildin er vinsælasta
deildin í heiminum, hún dregur að
sér flesta áhorfendur og því er
ábyrgð hennar meiri en ella,“ sagði
Blatter.
Það hversu mikinn áhuga Blatter
hefur sýnt á máli Rio Ferdinand
þykir koma mjög á óvart, sérstaklega
í ljósi þess að Alþjóða knatt-
spyrnusambandið hefur verið fúst
til samstarfs við Alþjóða lyfja-
nefndina og er meðal annars eina
stóra sérsambandið í Alþjóða
Ólympíunefndinni sem hefur ekki
enn skrifað undir samkomulag um
alheimsreglur í lyfjamálum.
„Mér fínnst eins og
stóru félögin skilji oft
á tíðum ekki hlutverk
Alþjóða knattspyrnu-
sambandsins og hlut-
verk sitt gagnvart
alheimsknattspyrnu-
fjölskyldunni
Hótar banni
Dick Pound, yfirmaður Alþjóða
lyfjanefndarinnar, hefur undrast
seinagang Alþjóða knattspyrnu-
sambandsins og hótað að banna
knattspyrnu á Ólympíuleikunum í
Aþenu á þessu ári ef sambandið
skrifar ekki undir samninginn.
Misskilur hlutverkið
Blatter gefur ekki mikið fyrir orð
Pounds og segir að Alþjóða
lyfjanefndin misskilji hlutverk sitt
algerlega.
„Alþjóða lyfjanefndin er þjón-
ustustofnun fyrir íþróttir. Þess vegna
ættu yfirmenn nefndarinnar ekki að
skipta sér af hlutum sem þeim koma
ekki við. Dick Pound er alltaf að rífa
kjaft um að þetta bann sé of stutt
eða þetta bann sé of langt. Þetta er
hins vegar ekki hans vandamál.
Þetta er vandamál knattspyrnu-
sambanda landanna og síðan
Alþjóða knattspyrnusambandsins.
Ég get ekki sagt honum að þegja þar
sem ég hef ekki lögsögu yfir honum
en mér þætti vænt um það ef hann
myndi hætta að tjá sig um lengd
banna í knattspyrnu."
Blatter er í fullu fjöri eins og sjá
má hér að ofan og mun væntanlega
nýta tímann vel fram að næstu
forsetakosningum árið 2007 til að
segja sínar skoðanir á mönnum og
málefnum líkt og hann hefur gert að
undanförnu.
oskar@dv.is
Kevin Keegan, knattspyrnustjóri Manchester City
Vill semja við Árna Gaut
Kevin Keegan, knattspyrnustjóri
Manchester City, segir í samtali við
opinbert vefsvæði félagsins að
hann hafi mikinn áhuga á því að fá
Árna Gaut Arason til liðsins.
„Við vitum að hann er öflugur
markvörður með mikla reynslu í
alþjóðlegum leikjum. Við vildum
hins vegar sjá í hvaða formi hann
er. Hann er með lausan samning og
því getum við boðið honum styttri
samning til að byrja með," sagði
Keegan.
Mikill markvarðavandræði
Eins og áður hefur komið fram
herja mikil markmannsvandræði á
Manchester City og þarf Keegan
því nauðsynlega á markverði að
halda.
„Ég á von á því að frá þessu verði
gengið í lok vikunnar. Ég held samt
að það sé of snemmt fyrir hann að
spila gegn Blackburn um helgina
þar sem hann hefur verið meiddur
undanfarnar sex vikur," sagði
Keegan. askar@dv.is
Keegan vill fá hann Kevin Keegan, knattspymustjóri Manchester City, segist vilja fá Árna
Gaut Arason til liðsins. Reuters