Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2004, Page 27
DV Fókus
MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 2004 27
Britney Spears
æilar í meðferð
Drekkur til að
„Það er ekkert eðlilegt að geta drukk-
iðmargar flöskur afvíni án þess að
það hafi nokkur teljandi áhrifá mann.
Þess vegnaþarfég hjálp."
Eftir brúðkaupið fræga í byrjun
árs hefur Britney Spears nú ákveðið
að fara í meðferð til þess að vinna
bug á Bakkusi. í fyrstu neitaði Brit-
ney því að hún ætti við vandamál
að stríða en foreldrar hennar hafa
nú opnað augu hennar og er stelp-
an því viljug til að leita sér hjálpar.
„Það er ekkert eðlilegt að geta
drukkið margar flöskur af víni án
þess að það hafi nokkur teljandi
áhrif á mann. Þess vegna þarf ég
hjálp," segir Britney og bætir því við
að hún drekki til að gleyma. „Ég
elska Justin ennþá og stundum
drekk ég til að reyna að gleyma
honum. Mér hefur liðið illa allt árið
og hef þess vegna verið að taka lyf
líka. Auðvitað á ég ekki að drekka
þegar ég er á lyfjunum en stundum
get ég bara ekki komist hjá því. Ég
hef miklar áhyggjur af því hvað
verði um mig og fjölskyldu mína,
heimurinn í kringum mig er að far-
ast og ég þarf að komast í frí,“ segir
Britney.
Foreldrar hennar hafa nú ráðið
sálfræðing til þess að taka stelpuna
í gegn og útgáfufyrirtæki Britney
styður þær aðgerðir foreldranna
dyggilega. Það þarf svo sem ekki að
koma á óvart enda hefur allt slæma
umtalið um Britney ekki hjálpað við
sölu á nýju plötunni hennar, sem
fram að þessu hefur valdið
nokkrum vonbrigðum.
Britney Hefur áhyggj-
ur af drykkjunni hjá sér
og ætlar i meðferð.
Kannski ekki skrýtid
þegar hún er farin að
taka upp á því að gifta
sig i ölæðinu.
m, aíI í* . M
w
DV.
Fáðu
áskrift
Sími 550 5000
askrift@dv.is
www.visir.is
Nýtt DV sex morgna vikunnar.
Ekkert kynningartilboð.
Engin frídreifing.
Mánaðaráskrift 1.995 krónur.