Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2004, Page 29
DV Fókus
MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 2004 29
Mannlegur djiifull vill
verða grunnsknlakennari
Vígalegur á velli Tónlistarmaðurinn Marilyn Manson Ijóstraðiþvi upp iviðtali fyrirskömmu að hann langaði mest aföllu að
verða kennari og að hann málaði bleikar myndir I frístundum sinum. Foreldrar i Bandarikjunum telja hann hins vegar hand-
bendi djöfulsins.
Draumur svartrokkarans Marilyn Mansons
er að verða kennari, ef marka má nýlegar yfir-
lýsingar frá kappanum. Allt frá því að honum
skaut upp á stjörnuhimininn fyrir nokkrum
árum hafa foreldrar haft horn í síðu hans þar
sem þeir segja hann hvetja ungmenni til djöful-
legra athafna, s.s. morða og eiturlyfjaneyslu.
Sldptar skoðarnir eru því um þessar yfirlýsingar
rokkarans.
Börn hata skólann
„Ég held að ég myndi ná betur til barnanna
en nokkur annar kennari. Krökkum finnst ekk-
ert leiðinlegra en að fara í skólann og hlusta á
einhvern, sem ber enga virðingu fyrir þeim,
fræða þau um hluti sem þau hafa engan áhuga
á,“ sagði hinn 35 ára Manson við MTV-sjón-
varpsstöðina í Þýskalandi. „Börn í Bandaríkjun-
um hata skólann vegna þess að hann er leiðin-
legur en það þýðir samt ekki að þau vilji ekki
læra. Ég held að allir vilji læra eitthvað og verða
aðeins klárari. Þess vegna held ég að ég yrði
góður kennari og það er nokkuð sem mig lang-
ar virkilega til að gera ein góðan veðurdag."
Almenningur í Bandaríkjunum tók þessum
yfirlýsingum Mansons eins og við mátti búast
og þegar hafa foreldrafélög og önnur hags-
munasamtök, sem þykjast vita betur, tjáð sig
um málið. í yfirlýsingum þeirra ber hæst að
Manson muni aldrei kenna í bandarískum
skólum enda sé hann einn þeirra sem ábyrgir
eru fyrir því að spilla æsku landsins með djöful-
legri tónlist sinni og framkomu. Sjálfur hefur
Manson alltaf vísað slíkum ásökunum á bug og
bent foreldrum á að líta í eigin barm í stað þess
að kenna honum um sjálfsmorð, vopnaburð og
almenna vanlíðan bandarískra unglinga.
Málar bæinn bleikan
Ekki verður heldur séð að Manson beri per-
sónulega ábyrgð á því hvernig unglingar í Amer-
íku hegða sér. Manson kann að virðast vfgaleg-
ur á velli en inni við beinið segist hann ekki vera
mjög frábrugðinn öðru fólki. Sjálfur varð Man-
son fyrir miklu aðkasti sem barn. Hann segir að
sér hafi liðið illa í skólanum og að kennararnir
hafi vitað af því en ekkert gert í málunum.
„Kennurum má ekki vera sama um börnin
sem þeir eru að kenna. Oft koma foreldrar ekki
auga á að börnum þeirra líður illa eða þá að
þeim er alveg sama. Þá þurfa aðrir að aðstoða,"
sagði Manson við þýska MTV. í sama viðtali
ljóstraði hann því upp að eitt af hans helstu
áhugamálum væri að mála myndir, sem í seinni
tíð hefur ekki talist til listforms djöfulsins nema
af þröngum hópi fólks.
„Flestir halda að myndirnar sem ég mála séu
mjög dimmar og drungalegar en því fer ijarri.
Skemmtilegasti liturinn til að mála með er
bleikur og það er mjög bjart yfir flestum mínum
myndum. Það er vissulega ákveðin kaldhæðni
fólgin í þessu hjá mér.“
Geta ekki hætt að vera Vinir
Leikaramir í þáttaröðinni Friends geta
hreinlega ekki hætt og hafa nú ákveðið að
koma saman til að leika í 90 mínútna löngum
þætti sem er ætlað að fylla í eyðurnar eftir að
þáttaröðinni sjálfri lýkur formlega. Sýningar á
síðustu þáttunum standa nú yfir en áhorfend-
ur virðast bara ekki geta hugsað sér að þau
hverfi svo af skjánum fyrir fullt og allt. Þess
vegna er þegar búið að semja um þennan 90
mínútna aukaþátt og fyrir hann fá leikararnir
hver um sig litlar 150 milljónir króna.
Talsmaður NBC-sjónvarpsstöðvarinnar
sagði: „Við ákváðum að leggja þetta tilboð á
borðið núna vegna þess að það er vonlaust að
smala leikurunum öllum saman þegar upp-
tökum á þáttaröðinni er lokið. Við munum
þess vegna taka þennan þátt upp um leið og
tökum á hinni hefðbundnu þáttaröð lýkur.
Hann verður svo sýndur ári síðar."
Þættirnir hafa notið fádæma vinsælda víða
um heim þótt einhverjum þyki þeir vera orðn-
ir frekar þunnir og leiðinlegir. Þeir sem hins
vegar hafa gaman af geta horft á þennan
aukaþátt þegar þar að kemur. Hann mun eiga
sér stað á þakkargjörðarhátíð Bandaríkja-
manna og fjalla um hvað drifið hefur á daga
persóna þáttarins frá lokum þáttaraðarinnar.
Vinir Leika 190 minútna þætti eftir að
síðustu þáttaröðinni lýkur formlega.
Stjörnuspá
Tryggvi Felixsson, framkvæmdastjóri
Landverndar, er 49 ára í
dag. „Maðurinn finnur
án efa innra með sér
brennandi ást og hlýju
til konunnar sem
hann unnir. Hann kýs
ánægju fremur en
spennu og það er
ágætur eiginleiki í fari
mannsins," segir í
stjörnuspá hans.
i ryggvi Felixson
Vatnsberinn (20.jan.-i8. Hrj
\/Y ----------------------------------
Leyfðu þér að vera einlæg/ur,
áhyggjulaus og kær gagnvart þeim sem
þú unnir. Þér hefur verið gefinn sá eig-
inleiki að vera þolinmóð/ur og ættir að
nýta þann hæfileika næstu daga og vik-
ur.
M
Fiskarnir (i9.febr.-20.mrs)
Hér koma fram áhyggjur af
einhverjum ástæðum þegar stjarna
fiska er skoðuð. Ekki ofvernda náung-
ann heldur hugaðu að sjálfinu alfarið.
Óttinn getur hindrað þroska þinn með
því að koma í veg fyrir framtakssemi af
þinni hálfu.
CY’> Hrúturinn (21.mars-19.aprn)
Þú þráir eflaust stöðugleika en
varpar honum fyrir róða ef þolinmæði
þína þrýtur og á það jafnvel við þig fram
yfir helgina. Ekki hika við að læra að
koma í veg fyrir að aðrir kenni þér það
sem þú þráir að kynnast þessa dagana.
Ö
Nautið (20. april-20. mai)
Þegar þú verður fær um að sjá
hlutina eins og þeir eru en ekki eins og
þú vilt að þeir séu finnur þú jákvæða
strauma innra með þér sem efla þig og
ýta undir hreina velgengni nautsins.
Tvíburarnire/. mai-21.júni)
Ekki láta eignarástríðu þína taka
yfirhöndina. Þú býrð yfir sjaldséðri um-
hyggjusemi þegar ástvinir þínir eru ann-
ars vegar en átt það til að gera uppreisn
ef þú ert ekki sátt/ur við gang mála.
KMm (22. júni-22.jM
Fólk fætt undir stjörnu
krabbans er án efa fært um að stefna enn
hærra á framabraut sinni, sama hvað það
tekst á við í framtíðinni. Hér birtist fyrir-
boði mikillar gleði og tengist verkefni
sem er um það bil að ganga í garð.
LjÓnÍð (23.júlí-22. úgúst)
Skapaðu þér gott karma og
gleymdu eigi að þú þarft ekki að hafa
mikið fyrir því að uppfylla langanir þín-
ar. Hæfileikar þínir á sviði lista eru öfl-
ugir og þú ættir ekki að hika við að
rækta þá til muna.
n
Meyjan (23. ágúst-22. septj
Meyjunni er ráðlagt að hika
ekki við að dvelja úti í náttúrunni og
tengja sig við vitið sem er í umhverfinu.
Heimurinn kemur til þín að frjálsum
vilja þegar þú opnar arma þína, kæra
meyja. Gleymdu því eigi.
O M (23.sept.-23.okt.)
Ekki hika við að biðja fyrir
þeim sem þú elskar ef eitthvað angrar
þig. Stjarna vogar birtist hér í þeirri að-
stöðu að vera fær um að veita öðrum í
kyrrþey blessun af einhverjum ástæð-
um sem er án efa sjaldséð þegar stjarna
þessi er skoðuð en vissulega jákvætt.
Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0vj
Njóttu stundarinnar með því
að taka á móti gjöfum náttúrunnar og
ekki síður ávaxtanna af erfiði þínu. Slak-
aðu á og njóttu lífsins enn betur en þú
hefur tileinkað þér.
Bogmaðurinn (22.n0v.-21.desj
Tortryggni og ótti virðast
valda þértímabundnum áhyggjum en
þú getur vissulega andað léttar því
uppspretta vandamála þinna einkenn-
ist eingöngu afóöryggi sem þú ættir
að ýta til hliðar þegar þú eflist til muna
í byrjun febrúar.
Steingeitin (22.des.-19.janj
' • Kynntu þér allar aðstæður
varðandi eitthvert verkefni sem þú
tengist um þessar mundir og hafðu var-
ann á. Gefðu þér tóm til að kynna þér
allar hliðar málsins. Fólk fætt undir
stjörnu steingeitar er bjartsýnt með ein-
dæmum en það er einn af hinum heill-
andi eiginleikum sem þú býrð yfir.
SPÁMAÐUR.IS