Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2004, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2004, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 2004 Fréttir DV Óþolandi launamunur Launa- munur milli kynjanna í at- vinnulífinu er óþolandi, sagði Stein- grímur J. Sig- fússson alþingismaður VG í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær. Umræðuefnið var hvað liði þvi að hrinda í veruleika tillögum nefndar sem kannaði efnahagsleg áhrif kvenna í atvinnulíf- inu. Fram kom í máli Dav- íðs Oddssonar forsætisráð- herra að skýrsla nefndar- innaryrði I lögð fyrir rík- isstjórnina í Bí "vfl dag, þriðju- I dag. I fram- flv~'^^B haldinu yrði WLjŒ-JM metið og ákveðið hvernig að fram- haldinu skildi staðið. Sagði ráðherrann að vissulega hefði margt ágætt náðst fram í jafnréttismálum á undanförnum árum. Um það virtust hann og fyrir- spyrjandinn ekki vera sam- mála. Órækur vitnisburður um þetta misrétti er, að sögn Steingríms, að stað- festur launamunur væri á bilinu 7,5% til 11% og karl- ar væru 80% forstöðu- manna ríkisstofana. Aukin- heldur hefði félagsmálaráð- herra nýlega flæmt for- stöðumann Jafnréttisstofu á Akureyri í starfi og segði það eitt mikla sögu um við- horfin í þessu málaflokki. Froðan fauk Alls var tilkynnt um 30 eignarspjöll til lögreglunnar í Reykjavík. Meðal þeirra var að einhver óprúttinn náungi opnaði krana á 1000 lítra plasttanki við fyr- irtæki í austurbænum. Úr tankinum lak ótiltekið magn af sápulegi sem að mestu skolaðist niður í nærliggjandi niðurfall en hluti hans freyddi og fauk burt í rokinu sem var laug- ardaginn. Á sunnudags- morgunn var svo brotin rúða í bakaríi í austurborg- inni þannig að glerbrotum rigndi yfir 500 smákökur. Geir Jón Þórisson Hraðatak- markanir i lifsgæðakapphlaupinu. „Það sem liggur á er að fólk fari að slappa svolítið afog hugsa um sjálftsig. Og hætta Hvað liggur á? þessu stressi. Bæði í umferð- irtrti og í samskiptum. Það er mikið betra að láta sér frekar nægja minna en að vera í stressi eftir einhverju meiru í lífsgæðakapphlaupinu," segir GeirJón Þórisson,yfírlögreglu- þjónn t Reykjavík. Glæpamenn sem stungu lík sem var fullt af fíkniefnum, bundu í plast, hlekkjuðu og sökktu til botns við Netabryggjuna í Neskaupstað, ganga lausir. Lögregla neitar að upplýsa um gang rannsóknarinnar öðruvísi en með innihaldslitlum fréttatil- kynningum. Ekkert samband næst við lögregluna á Eskifirði. Þrír menn, tveir ís- lendingar og Lithái, gáfu sig fram við lögreglu í gær og voru skýrslur teknar af þeim. Einn þeirra, Grétar Sigurðarson, segir að lögregla hafi hugsanlega áhuga á tveimur vinum hans sem voru á Pajero jeppa. Jeppinn fannst í gærkvöldi. Lögreglumenn hjá embætti Ríkislög- reglustjóra ræddu í gær við þrjá menn sem gáfu sig fram við lögregluna í gær- morgun í tengslum við rannsóknina á lík- fundinum í höfninni í Neskaupstað. Þeir gáfu sig fram eftir að fréttir voru fluttar af því að lögreglan leit- aði að fjórum mönn- um, tveimur íslend- ingum, fæddum 1972 Ragnar Jónsson Stendurfyrir innan en hann var kallaður til aðstoðar við sýslumanninn i Neskaupstað frá Lögreglunni í Reykjavík. og 1976 og tveimur Litháum, fæddum 1959 og 1980. Ekki fæst staðfest ltvort þessir þrír menn væru þeir sem lögreglan var að leita að. Því var haldið fram í fjölmiðlum að lögreglan hefði gef- ið út liandtökuskipun á hendur þessum fjórum mönnum, en enginn hefur verið handtekinn. Lífvörður gaf sig fram við lögreglu Fréttablaðið greindi í gær frá því að einn mannanna sem lögregla leitaði væri frá Nes- kaupstað og hefði hlotið menntun í vopna- burði. Grétar Sigurðarson kannaðist við lýsing- una enda fæddur árið 1976, kemur úr Norðfirði og var í Neskaupstað fyrir skömmu síðan. Hann gaf sig sjálfur fram við lögreglu í gær- morgun enda taldi hann að lögregla vildi hafa Lflclð duiarfulla borlð Ino tU_-—------- krufningar Við krufningu i Reykjavik kom iljós að hinn látníhafði amfetamín j£ innvortis. Þóra Steffensen Krufði likið og leysti í raun ráðgátuna. tal af honum. Hann seg- ir að ástæða þess að hann hafi farið til lög- reglu hafi verið lýsing í Fréttablaðinu í gær á einum þeirra sem lög- reglan vildi ná tali af. Viðkomandi væri frá Neskaupstað og hefði „menntað sig erlendis meðal annars í meðferð og beitingu vopna". í febrúar árið 1998 var viðtal við Grétar í DV þar sem hann greinir frá því að hann sé á leið í líf- varðaskólann PBA, Pro- fessional Bodyguard Association og fylgdi sög- unni að skólinn væri meðal annars rekinn af bresku leyniþjónustunni MI5. „Það eru ekki margir sem koma til greina sem eru frá Neskaupstað og með sama nám og ég,“ segir Grétar og ákvað því að fara á lögreglu- stöðina í Reykjavík í gærmorgun. Hann var fyrir austan á dögunum á þeim tíma sem rannsókn lögreglu beinist að. „Ég veit ekki af hverju þeir vildu tala við mig en ég gaf þeim skýrslu og búið mál.“ Félagar í Pajero En Grétar telur þó að heimsókn sem hann fékk fyrir aust- an kunni að varpa ljósi á að lögreglan vildi tala við hann. „Það komu félagar mínir í heimsókn á þessum Pajero jeppa sem þeir voru að spyrjast fyrir um,“ segir Grétar sem seg- ist annars ekkert vita um efnisatriði máls- ins. „Ég ltef ekki minnstu hugmynd Teikning DV Teikningin var unnin i samráði við vitni en lögregla hefur ekki beðið um aðstoð fjölmiða. Norskir blaðamenn eru mjög hissa á þessum vinnubrögðum. Litháen hefur komið upp í umræðu um líkfund í höfninni í Neskaupstað Nokkrar staðreyndir um Litháen Litháen er frægt fyrir að vera síð- asta Evrópulandið sem tók kristni, ekki fyrr en á 15. öld. Landið var á miðöldum stórveldi, lengst af í kon- ungssambandi við Pólland. Þegar Rússland tók að þenjast út á 18. öld gleypti það Litháen og var landið síð- an hluti rússneska keisaradæmisins en fékk sjálfstæði við lok fyrri heims- styrjaldar ásamt hinum Eystrasalts- löndunum. Sjálfstæðið entist ekki lengur en til 1940 þegar Rússar (eða Sovétmenn) hernámu öll Eystrasalts- löndin og var það hluti af samkomu- lagi Stalín við Hitler. Þjóðverjar lögðu síðan Litháen undir sig ári seinna og var tekið fagnandi af mörgum sem hötuðu Sovétmenn. Litháar munu í stríðinu hafa gengið sérlega rösklega fram við að ofsækja Gyðinga en þeir höfðu verið fjölmennir í landinu. Eftir seinni heimsstyrjöld varð Lit- háen hluti Sovétríkjanna þangað tii þann 11. mars 1990 þegar landið lýsti yfir sjálfstæði að nýju, í kjölfar þess að Sovétríkin voru á fallanda fæti. Gor- batsjov Sovétleiðtogi virtist í fyrstu ætla að láta hart mæta hörðu og tU átaka kom í höfuðborginni Vilnius en minna varð úr en margir óttuðust. ís- lendingar urðu fyrstir manna til að viðurkenna sjálfstæði Litháens. Vytautas Landbergis varð fyrsti for- seti landsins. Þann tæpa hálfan annan áratug sem liðinn er síðan sjálfstæðið var í höfn hefur gengið á ýmsu í Litháen. Landsmenn hafa komið betur undir sig fótunum en margar aðrar fyrrver- andi Sovétþjóðir en Litháen hefur á hinn bóginn fengið á sig nokkurt óorð vegna skipulagðrar glæpastarfsemi sem þar þrífst í stórum stíl. Hafa ýms- ir meira að segja orðað það svo að rússneska mafían stjórni landinu í reynd. Seint á síðasta ári reis mikið hneyksli í Litháen þegar öryggislög- regla landsins upplýsti að hún grun- aði mjög háttsetta aðila, sem stóðu nærri núverandi forseta Iandsins, Rolandas Paksas, um að vera beinlín- is á snærum mafíunnar. Litháen er talið vera eins konar brautarstöð mafíunnar fyrir inn- og útUutning á ólöglegum varningi af ýmsu tagi - hvort sem um er að ræða eiturlyf, gimsteina, fornmuni eða hvaðeina. Ásakanir urn peningaþvætti og ntan- sal eru líka háværar. Tveir hópar Litháa hafa getið sér gott orð á Isíandi. Annars vegar er um að ræða handboltamenn og er skemmst að minnast þeirra félaga Gintasar og Gintaurasar sem spiluðu með Aftureldingu. Hins vegar hefur litháíski leikstjórinn Rimas Tuminas sett upp fimm leiksýningar í Þjóðleik- húsinu á rúmum áratug og hafa þær mælst vel fyrir meðal leikhúsfóUcs og er Tuminas í raun kominn er í hóp þekktustu leikstjóra Evrópu. Litháen er 65 þúsund ferkílómetr- ar sem samsvarar um það bil tveimur þriðju hlutum íslands. Auðlindir eru fáar í landinu nema rafmagn og er landbúnaður mikilvægasti atvinnu- vegurinn. Um mitt síðasta ár voru íbúar í Litháen tæplega 3,6 milljónir manna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.