Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2004, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2004, Blaðsíða 29
r 0V Fókus r ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 2004 29 Sir Paul McCartney er ekki sáttur við fréttir sem breska pressan hefur flutt undanfarið af eig- inkonu hans, Heather. Um helgina hringdi hann brjálaður á ritstjórnarskrifstofu The Sun og hellti úr skálum reiði sinnar. „Ég er ekki einhver heimskur gamall karl sem féli fyrir fallegri mann- eskju,“ sagði hann um hina 36 ára eiginkonu sína sem er 25 árum yngri en hann. „Heather er góð manneskja sem leggur ótrú- lega mikið á sig til að hjálpa fólki. Við erum venju- leg fjölskylda og reynum að gera venjulega hluti. Ég er ekki einhver heimskur gamall karl sem féll fyrir fallegri manneskju. Það er kjaftæði, ég er ekki heimskur. Ég myndi aldrei kvænast mannesku út af útíitinu einu saman, það þarf að vera meira spunnið í hana en það,“ bætti hinn 61 árs fyrrum Bítill við. Nennir að rífa sig upp á rassgatinu „Eiginkona mín er mjög góð kona en fólk virð- ist ekki geta sætt sig við það. Heather er mjög góð manneskja og allt sem hún gerir er gott. Ég sé aðra hlið á henni en fólk því ég er kvæntur henni. Hún virkilega nennir að rífa sig upp á rassgatinu til að gera eitthvað til að hjálpa fólki. Hún getur veitt ungum stúikum, sem hafa misst fótlegg, sjálfs- traustið aftur. Ég get ekki gert það og það eru í raun fáir á þessari jörð sem geta það.“ Heather, sem fæddi þeim hjónum dótturina Beatrice í október síðastliðnum, missti sjálf fót- legg árið 1993 þegar hún lenti í slysi. Síðan þá hef- ur hún helgað líf sitt því að berjast fyrir fólk sem misst hefur útlimi. Sir Paul sagði frá því í símtali sínu við The Sun hvernig Heather hefði nýlega kastað öllu frá sér til að hjálpa stúlku í Liverpool sem var í vanda. „Fyr- ir nokkrum mánuðum var 13 ára stúlku hrint fýr- ir lest af einhverjum vitíeysingum og missti fót í kjölfarið. Um leið og Heather heyrði af þessu fór- um við til Liverpool og Heather fór með hana í sundkennslu. Hún veitti þessari ungu stúlku það hugrekki sem hún þurfti til að halda áfram. Þetta er nokkuð sem ég gæti ekki en hún gerir þetta á hverjum degi. Hún tekur ekki krónu fyrir að að- stoða þessi börn. Hún er ótrúleg." Vill ekki að dóttirin alist upp við þetta Sir Paul, sem á íjögur börn með Lindu eigin- konu sinni heitinni, lagði einnig ríka áherslu á að Heather kæmi vel saman við Stellu dóttur hans sem er fatahönnuður. Miklar sögur hafa gengið um að illt sé á milli þeirra tveggja. „Stella var í heimsókn hjá okkur og dóttur okkar um daginn og við skemmtum okkur mjög vel í brúðkaupi hennar. Við dönsuðum þar fram á morgun en samt var skrifað í blöðin að við hefðum farið snemma heim að sofa. Málið með Heather er ein- faldiega að hún sækist ekki eftir athygii fyrir þá vinnu sem hún innir af hendi fyrir góðgerðarsam- tök. Og samt heldur fólk áfram að tala illa um hana. Það sér ekki allt sem hún gerir án þess að biðja um þakkir eða viðurkenningu. Við erum venjuleg fjölskylda, eigum unga dóttur og ég vil ekki að hún alist upp við þetta. Konan mín er góð manneskja." Sir Paul og Heather „Viðerum venjuleg fjölskylda, eigum unga dóttur og ég vil ekki að hún alistupp við þetta.Konan min er góð manneskja." Paul McCartney Konan mín er ekki heimsk glyöra! Lögregla leitar stórra brjósta ítölsk kona sem fór í fegrunarað- gerð er nú eftirlýst af lögreglu fyrir að hafa látið sig hverfa af sjúkrahús- inu á þess að greiða fyrir aðgerðina. Konan kom á einkasjúkrahús í Róm og pantaði þar stærstu og mestu brjóstastækkun sem mögulegt var að fá og fljótlega eftir aðgerðina laumaði hún sér burt og lítið hefur til hennar spurst. Lögreglan veit lítið um konuna, sem hefur gert leitina nokkuð erfiða, og í raun er eina vís- bending þeirra gríðarstór barmur konunnar og vonast þeir til þess að hann muni koma upp um hana fyrr eða síðar. Lýtalæknirinn sem fram- kvæmdi aðgerðina, Jamal Salhi, seg- ir að því miður sé þetta ekki í fyrsta sinn sem svona nokkuð gerist. Hann segir það koma fyrir nokkrum sinn- um á ári að sjúklingar stingi af eftir aðgerðir til þess að komast hjá greiðslu. Eina vísbendingin Lögreglan á Italiu ieit- ar konu sem fékk stærstu mögulegu brjósta- stækkun sem um ræðir en stakk afeftir að- gerðina án þess að borga. Lítið er vitað um konuna fyrir utan griðariegt brjóstaummál. Stjörnuspá Skúli Eggert Þórðarson skattrannsóknar- stjóri er 51 árs í dag. „Maðurinn hefur fundið leiðina til að rækta hið góða sem ríkir innra með honum. Hamingja ein- '[ kennir líðan hans og sýn- ir manninn ávallt eiga von á því besta sem til- veran er fær um að gefa honum og þeim sem hann elskar heitt," segir í stjörnuspá hans. Skúli Eggert Þórðarson VV Vatnsberinn (20.jan.-i8. febr.) v\ ----------------------------------- Hér er þörf fyrir skipulag og takt sem hentar stjörnu vatnsberans. Ekki láta skapið stjórna þér þessa dag- ana heldur leitaðu að því sem fær þig til að takast á við líðandi stund með réttu hugarfari og ekki síst réttum hraða. fískami (19. febr.-20.mars) Ef þú stendur frammi fyrir freist- ingum þessa dagana ættir þú að standast þær með því að sækja þann mikla styrk sem býr innra með stjörnu þinni. Haltu áfram að vera þinn eigin dómari og vertu meðvituð/meðvitaður um möguleika þína sem felast í nánustu framtíð. H T Hrúturinn (21.mars-19.april) Ekki velta fyrir þér viðhorfum eða tilgangi annarra því þá sóar þú ein- ungis dýrmætum tíma þínum. Fólki sem er fætt undir stjörnu hrútsins er ráðlagt að hika ekki við að njóta þess sem telst fagurt og gott og trúa því að það eigi einungis það besta skilið. Nautið (20. apríl-20. mai) b n Ef þú ert stödd/staddur í ein- hvers konar sjálfskoðun þessa dagana ættir þú að horfast í augu við tilveru þína með jákvæðum augum og deila draumum þínum og áhyggjum með þeim sem þú treystir en það eitt stuðlar að þroska þínum og athafnasemi. Tvíburamir (21. mai-21.júní) Ekki hika við að hvetja aðra til að láta drauma sína rætast en fyrir alla muni ekki gleyma að opna augu þín fyr- ir ónýttum tækifærum sem birtast. Þú hefur eflaust hitt manneskju sem er fær um að efia þig og leggja þér lið þegar þín hjartans mál eru annars vegar. K\Mm(22.júni-22.júli) 0“** Framtakssemi þín getur verið ótæmandi í hverju sem þú tekur þér fyr- ir hendur en þú ættir að forðast að eyða orku þinni yfir því hvað aðrir segja um drauma þína og gjörðir. LjOnÍð/23. júlí- 22. ógiht) Þú munt blómstra fyrir vor- komu þar sem hlýja og væntumþykja einkennir tilfinningar þínar í eigin garð ogánnarra. Stjarna þín skín skært hérna og þarfir þínar verða uppfylltar. Í15 Meyjanpi .ágúst-22.sept.) Hér birtist þú flækt/ur í eigin tilfinningar af einhverjum ástæðum. Þú getur vissulega skilgreint og beðið um það sem þú þarfnast ef þú kýst að gera svo en þú mátt ekki gleyma að læra að treysta náunganum betur en þú hefur tileinkað þér. o Vogin (23.sept.-2i.okt.) ~~™ Óþolinmæði kann að ein- kenna þig hér og hugsanlega fleytir þú þér alltof hratt í gegnum lífið. Slakaðu á og hlúðu að þér fyrst og fremst og ekki gleyma að hlusta á tilfinningar þínar og upplifa eina reynslu til fulls í einu. m, Sporðdrekinn (2iokt.-21.n0vj Þú breytir gjarnan skoðunum þínum á þessum árstíma af einhverjum ástæðum og einnig kemur hér fram að þú ert ekki eins þrifin/n og t.d. í janúar sökum þreytu eða leti jafnvel. / Bogmaðurinn/22. nw.-2/.tej Þú leitar í spennu hérna. Stjarna þín er fljót að eignast vini því hún er orðheppin, málgefin og mjög klók. Þú átt það reyndar til að tor- tryggja aðra og lætur því sjaldan blekkja þig, sem er ágætur kostur í fari þínu. Steingeitin (2ues.-19.jan.) Þú ættir að nota hæfileika þína við að leiðbeina illa stöddum af einhverjum ástæðum en hér er um að ræða fólk sem tengist þér persónulega. SPÁMAÐUR.IS 'm: - ll

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.