Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2004, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2004, Blaðsíða 9
DV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 2004 9 um þessa Lit- háentengingu. Eins og ég var búinn að fylgj- ast með mál- inu átti þetta að tengjast einhverjum Kárahnjúka- mönnum,'1 segir Grétar sem vildi ekki Netabryggjan Hér fanmt hinn látni. tjásig um nán- ar um umrædda vini sína á Pajero jeppanum og sagði að lögregla hefði farið fram á það við sig að tjá sig ekki efnislega um það sem fram kom við skýrslutökuna. Hann var í talsverðu Uppnámi þegar hann kom úr skýrslutökunni og fannst málið óþægilegt og taldi reyndar eft- ir á að hann væri alls ekki einn af þeim mönn- um sem lögreglan vildi hafa upp á. Sjónvarpið greindi frá því í gærkvöldi að Pajero-jeppinn sem leitað hafði verið að, hefði fundist á Akur- eyri. Talið var að bíll- inn hefði verið leigður í Reykjavík, ekið aust- ur á land og svo aftur til Reykjavíkur. Farsakennd at- burðarás þegar menn gáfu sig fram Eins og áður er komið fram gaf Grétar sig fram við lögregluna í Reykjavík í gærmorg- un. Varðstjóri kannaðist ekid við manninn og hafði samband við kollega sína á Eskifirði. Þar sögðu menn að enginn væri eftirlýstur en bentu lögregluþjóninum að hafa samband við emb- ætti Ríkislögreglustjóra. Eftir nokkuð þref, ákvað lögregluþjónninn frá Lögreglunni í Reykjavík að fylgja Grétari yfir Snorrabrautina til Ríkislögreglustjóra. Inger Jónsdóttir sýsiu- maður Stýrir rannsókn á þvi hver maðurinn ersem fannsti höfninni. Norska pressan kvartar Blaðamenn Norska dagblaðsins yerdens Gang eða VG sem komu hingað til lands vegna rannsóknar málsins eru furðu lostnir yfir því hvernig samskiptum lögreglu og fjöl- miðla hefur verið háttað. „Eftir föstudaginn höfum við alls staðar komið að lokuðum dyr- um,“ segir Marius Tetlie sem er þrautreyndur blaðamaður VG og hefur skrifað um mörg erf- ið glæpamál. „Svona viðmót hefði verið álitið algerlega óviðundandi í Noregi og hefði kall- að á viðbrögð." Marius segir að í hliðstæðum málum í Noregi sé að lágmarki gefið færi á talsmanni lögreglu á föstum tímum til fyrir- spurna, að minnsta kosti einu sipni á dag. Marius og ljósmyndarinn Frode Hansen halda af landi brott í dag enda bendir ekkert tii að sakamálið í Norðfirði teigi anga sína til Noregs. —------jeL.... Frode og Marius frá VG Algerlega óviðundandi fram- koma lögreglu Skömmu síðar komu hinir mennirnir tveir, íslendingur og Lithái á sama stað hjá lögregl- unni í Reykjavík og leikurinn endurtók sig. Lög- reglan í Reykjavík kannaðist ekki við að hún ætti að fylgjast með þessum mönnum, lögreglan á Eskifirði gat litla hjálp veitt en eftir að Ríkislög- reglustjóra hafði verið gert viðvart, komu sjö lögreglumenn sem fylgdu mönnunum tveimur til yfirheyrslu. Ekkert upplýsingastreymi frá lögreglu Eins og DV hefur greint frá, hefur lögreglu- rannsóknin verið harkalega gagnrýnd af mönnum víðs vegar í lögregluliðum landsins. Þykir hafa skort mjög á að forræðið í rann- sókninni væri skýrt og upplýsingastreymi frá embætti sýslumannsins á Eskifirði hefur verið lítið sem ekkert. Innihaldslitlar fréttatilkynn- ingar hafa verið sendar af og til en í gær barst DV engin tilkynning um gang rannsóknarinn- ar. Eins og fram kemur í samtali við norska blaðamenn hér annarsstaðar á síðunni, kannast þeir ekki við vinnubrögð af þessu tagi frá lögreglu. Það er Inger Jónsdóttir sýslumað- ur á Eskifirði sem er formlega yfir lögreglurannsókninni. Manndráps- mál hefur ekki komið til hennar kasta frá því hún tók við embætti. Ríkislögreglustjóri sendi fjölmennt lögreglulið til aðstoðar úr efna- hagsbrotadeild og tveir menn voru sendir frá tæknideild Lög- reglunnar í Reykjavík. Eftir því sem DV kemst næst eru tveir lög- reglumenn Ríkislögreglustjóra eftir fyrir austan en hinir komnir í bæinn. Einungis tæknideildar- mennirnir hafa áður tekið þátt í máli af því tagi sem nú er til rannsóknar. Lögreglumenn hafa verið að skoða nýtingu á gistirýmum og hverjir hafi leigt bflaleigubíla að undanförnu. Eins hafa þeir farið í gegnum greiðslukortafærslur á völd- um stöðum. Þar sem talið er víst að hinn látni hafi komið til landsins í gegnum Keflavíkurflugvöll, hefur kapp verið lagt á að finna hann myndböndum sem tekin eru upp af komufarþegum. Það mun vera ákaf- lega tímafrekt að fara í gegnum mynd- böndum, eins og að leita að nál í hey- stakki. Fíkniefnaþáttur rannsóknarinnar er til sérstakrar skoðunar. ,Ég veit ekki afhverju þeir viláu tala við mig en ég gafþeim skýrslu og búið mál. Grétar Sigurðarson Gafsig fram við lögreglu i gærmorgun og hélt að hún hefði áhuga á kunn- ingjum sinum á Pajero jeppa. Lærði að vera tifvörður í Bretlandi. Ómar Valdimarsson blaðafulltrúi Impregilo stöðvar bloggara „Ég hef fengið e-mail frá Ómari Valdimarssyni, talsmanni Impreg- ilo. Hann sagði að þetta væri háal- varlegt mál og ef ég hefði fyrir þessu einhverjar staðfestar heim- ildir yrði ég að leggja þær fram því ef þetta væri reyndin þá kallaði það á lögreglurannsókn. Ef hins vegar þetta væri eitthvert grín af minni hálfu þá bæri mér að taka þetta út,“ segir Elvar Geir Magnús- son, 18 ára nemi við Fjölbraut í Breiðholti. Hann skrifaði á blogg- síðu sína að hann hefði heyrt af því sögur að vændi væri stundað í tengslum við framkvæmdir við Kárahnjúka. Ómar Valdimarsson blaðafull- trúi hins ítalska verktakfyrirtækis virðist samkvæmt þessu standa dyggilega vörð um heiður Irnpreg- ilo og er með augu og eym opin fýrir því hvað sagt er um fyrirtæk- ið. Ómar sagðist í samtali við DV ekki vilja tjá sig en fyrst hann væri spurður um þetta tiltekna atriði þá gæti hann sagt að hann hefði krafist skýringa á blogginu. „Þetta er bara það sem maður heyrir," sagði Elvar Geir við DV í gær. „En ég hef nóg að gera í skól- anum og ekki tíma til að standa í neinu veseni. Kannski er þetta bara rugl. Það var hvort eð er ekki fyrr en batman.is linkaði inn á síð- una mína sem fóru að steyma les- endur inn á bloggið rnitt," segir El- var Geir sem bakkaði snarlega með staðhæfingar sínar og fjar- lægði textann af síðu sinni. Valur Magnússon, lögreglu- maður á Egilsstöðum, kom af fjöll- um og segist ekki hafa heyrt orðróm um hið meinta vændi, sagði þetta fréttir í sín eyru. jakob@dv.is Elvar Geir Magnússon t.h. og vinur hans I8ára nemi við Fjölbraut i Breiðholti sagði frá þvi á bioggsíðu sinni að sögusagnir væru á kreiki um vændi í tengslum við virkjunarframkvæmdirnar við Kárahnúka. Úmar Valdimarsson talsmaður Impregilo var fljótur að gripa í taumana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.