Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2004, Síða 12
72 ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 2004
Fréttir DV
Óeirðir í
Sidney
Verstu uppþot í Ástralíu
í áratug áttu sér stað í gær
þegar lögreglu laust saman
við hóp frumbyggja sem
létu illum látum á götum í
miðborg Sidney. Ástæðan
var lát 17 ára drengs úr
hópi þeirra sem lést eftir
eltingarleik lögreglu. Vakti
það gríðarlega reiði og er
talið að hátt í tvö hundruð
manns hafi farið út á götur
og valdið glundroða enda
henti fólkið molotov-kokk-
teilum, grjóti og brotnum
flöskum í ailar áttir. Óeirða-
lögregla kom fljótt á stað-
inn en níu tíma tók að
lægja öldurnar.
0
Hundrað fór-
ust í eldsvoða
Hátt í eitt hundrað lét-
ust í eldsvoða sem varð í
verslunarmiðstöð í borg-
inni Jilin í Kína. Aðrir
áttatíu brenndust eða slös-
uðust illa. Verslunarmið-
stöðin varð alelda á stutt-
um tíma en hún er fimm
hæðir og festust margir
hinna látnu á tveim efstu
hæðunum. Yfirvöld telja
enn líkur á að fórnarlömb
finnist í rústunum.
Hlébarði deyr
Hin skæða fuglaflensa í
Asíu kom í gær frægum
hlébarða í gröfina.
Próf sem dýragarð-
urinn í Bangkok
hefur látið gera á
hræi dýrsins hafa
leitt í ljós að hann
var sýktur H5N1-
vírusnum sem hef-
ur þegar kostað 20
manneskjur lífið og
milljónir hænsna hafa
drepist í átta Asíulöndum.
Alfreð Þorsteinsson
borgarfulltrúi.
Alfreð Þorsteinsson þykir afar
útsjónarsamur stjórnmála-
maður og fylginn sér. Mikill
skipuleggjandi og snýr ekki
svo glatt við, hafi hann tekið
stefnuna á ákveðið mark.
Sagður traustur maður og
orðheldinn og vinur vina
sinna.
Kostir & Gallar
Alfreð hættirstundum til að
vera um ofeinráður og
gieyma sér í plotti, í stað þess
að náigast hlutina með sam-
ráði og lýðræði. Það þykir há
honum að vera litill ræðumað-
ur og skorta sannfæringar-
kraft í málflutningi, rétt eins
og persónutöfrana. Konur
kikna ekki í hnjáliðunum þeg-
ar þær sjá Alfreð.
Ljósmyndari sem hellti víni í smástúlkur og ók með þær að næturþeli í sandnámu
við Þorlákshöfn er sýknaður af ákæru um að hafa myndað þær allsberar og áreitt
þær kynferðislega. Einn af þremur dómurum Héraðsdóms Reykjavíkur taldi mann-
inn ótrúverðugan og sekan. Hinir dómararnir töldu stúlkurnar ótrúverðugar.
Tískuljósmyndari
„Eiginmaður frænk-
unnar hafi verið með
gefið pínu vodka í
glas
//
partí og hafi hann
Ljósmyndari í Reykjavík hefur verið sýknað-
ur af ákæru um kynferðisbrot gegn tveimur 14
ára vinkonum. Ljósmyndarinn var hins vegar
sakfelldur fyrir að hafa veitt stúlkunum áfengi.
Gegnsær kjóll í barnafataverslun
Önnur stúlknanna mun hafa óskað eftir því
við ljósmyndarann að hann tæki af henni
myndir sem hún gæti notað til að koma sér á
framfæri sem fyrirsæta. Hún bar að snemma á
árinu 2002 hafi hún kvöld eitt mælt sér mót við
ljósmyndarann í barnafataverslun þar sem
hann vann að myndatöku. Hann hafi gefið
henni bjór að drekka og tekið myndir af henni á
gegngsæjum kjól og horft á sig hafa fataskipti.
Þá báru vinkonurnar tvær að kvöld eitt í apr-
íl 2002 hafi ljósmyndarinn veitt þeim ótæpilega
vín í bíl sínum áður en hann ók að sandnámu
við Þorlákshöfn. Þar hafi hann í skemmu ljós-
myndað þær báðar berar og sett fingur inn í
kynfæri þeirra.
Stúlkurnar eru fæddar árið 1988 og voru því
um það bil að fermast þegar þetta var. Ljós-
myndarinn hafði verið vinur fjölskyldu annarr-
ar stúlkunnar í 20 ár.
Dómarar ósammála um trúverðugleika
Tveir af þremur dómurum Héraðsdóms
Reykjavíkur töldu það ósannað, gegn neitun
ljósmyndarans, að hann hefði hefði áreitt stúlk-
urnar kynferðislega. Þeir töldu framburð
stúlknanna hafa verið „ótraustan og ótrúverð-
ugan.“
Þriðji dómarinn taldi manninn á hinn bóg-
Fyrirsæta StarfIjósmyndafyrirsætunnar er
eftirsótt meðal ungra stúlkna. Reykvisk stúlka á
fermingaraldri segist hafa verið misnotuð kyn-
ferðislega afljósmyndara og fjölskylduvini sem
átti að hjáipa henni áleiðis á framabrautinni.
Ljósmyndarinn þvertók fyrir það og var sýkn-
aður. Myndin tengist málinu ekki.
inn vera sekan. Hann taldi framburð ljósmynd-
arans ótrúverðugan og ekki geta staðist. Fram-
burður stúiknanna hefði hins vegar verið trú-
verðugur. Ekki hefði gætt hjá stúlkunum reiði
eða óvildar í garð ljósmyndarans. „Stúlkurnar,
sem gáfu tvívegis skýrslu fyrir dómi, hafa í allri
frásögn sinni verið sjálfum sér samkvæmar um
samskipti þeirra við ákærða í skemmunni,"
sagði þriðji dómarinn.
Drukku í faðmi fjölskyldunnar
Allir dómararnir þrír voru sammála um sekt
ljósmyndarans varðandi það að veita stúlkun-
um áfengi. Þess má geta að.sama kvöld og
stúlkurnar segja síðara atvikið hafa orðið gaf
eiginmaður móðursystur annarrar stúlkunnar
þeim áfengi áður en ljósmyndarinn sótti þær á
bíl sínum. I dómnum er haft eftir stúlkunni að
eiginmaður frænkunnar hafi „verið með partí
og hafi hann gefið pínu vodka í glas.“
Ljósmyndarinn var dæmdur í 50 þúsund
króna sekt.
gar@dv.is
fermingarstúlk
í Mosfellsbæ verða foreldrar að greiða sjálfir fyrir læknishjálp
Foreldrarnir borga barnaslysin
Böm í Varmárskóla í Mosfellsbæ, öðrum tveggja í bænum. IVarmárskóta eiga foreidr-
ar von á að þurfa að taka Uþþ budduna ef börn þeirra meiðast í skóianum og þurfa að leita til
læknis.
Mosfellsbær er eina sveitarfélag-
ið á höfuðborgarsvæðinu sem ekki
greiðir kostnað við komu skóla-
barna á slysadeild ef þau meiðast
meðan á dvöl þeirra í skólanum
stendur.
Björn Þráinn Þórðarson, for-
stöðumaður fræðslu- og menning-
arsviðs í Mosfellsbæ, segir að bær-
inn tryggi öll skólabörn í bænum
fyrir meiðslum sem þau kunna að
verða fyrir í skólanum. Hins vegar sé
sjálfsábyrgðin 12 þúsund krónur og
allt sem sé undir því verði foreldrar
að greiða sjálfir.
Minni sveitarfélögin á svæðinu,
eins og Hafnarfjörður, Kópavogur
og Garðabær eru með svipaðar
tryggingar en munurinn er sá að
sveitarfélögin greiða sjálfsábyrgð-
ina og er því koma á slysadeild
vegna meiðsla í skólunum foreldr-
um að kostnaðarlausu. „Við greið-
um alltaf fyrir fyrstu komú en síðan
er framhaldið metið. Það er
ómögulegt að segja til um hvað tek-
ur við. en ef meiðsl eru meiriháttar
greiða tryggingarnar þau,“ segir
Guðjón Erling Friðriksson sem hef-
ur með þessi mál að gera hjá Garð-
abæ. Sama regla er í gildi í Hafnar-
firði.
Reykjavíkurborg er ekki með
tryggingar og ber kostnaðinn sjálf.
Gerður G. Óskarsdóttir segir að
ástæða þess að Reykjavíkurborg
kaupi ekki slíkar tryggingar, en beri
sjálf ábyrgðina, sé sú að það sé ódýr-
ara fyrir skattgreiðendur. Borgin
meti bótaskyidu með hliðstæðum
hætti og vátryggingafélög og sjái til
þess, ef til slysa kemur, að börnin
séu ekki verr sett en ef vátrygging
hefði verið keypt.
Móðir sem hafði samband við
blaðið segir það súrt í broti að bær-
inn skuli ekki bera fulla ábyrgð á
greiðslum á slysadeild vegna
meiðsla barna í skólum bæjarins.
Þetta sé eitt dæmið af mörgum þar
sem bærinn skeri sig úr þegar um
þjónustu við íbúana sé að ræða.