Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2004, Side 13
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 2004 13
Mamma
Kurt Cobain
þjófkennd
Ekkja rokksöngvarans
Kurt Cobain,
Courtney Love,
ásakar nú tengda-
móður sína íyrir að
hafa stolið yfir
þrem milljörðum
frá dóttur sinni og
Kurt Cobains,
Frances. Ásakan-
irnar komu fram í
viðtali sem útvarpsstjarnan
Howard Stern tók við
Courtney á dögunum.
Courtney segir að fjölskylda
Kurts elski dóttur þeirra
bara vegna peningana og
séu sífellt að reyna að hafa
af þeim peninga.
Kerryyfirí
Wisconsin
Demókratinn John
Kerry er yfír hinum fram-
bjóðandanum í skoðana-
könnunum vestra.
En næst verður
kosið í forkosning-
um Demókrata í
Wisconsin fylki.
Kerry hefur þegar
unnið í 14 af þeim
16 fylkjum sem
búið er að kjósa í.
Telja má öruggt að
hann sé að bera sigur úr
bítum og verði næsti for-
setaframbjóðandi
Demókrata. Howard Dean
og John Edwards eru nú
undir miklum þrýstingi um
að draga hreinlega framboð
sín til baka.
Fangauppreisn
í Danmörku
Fangelsisyfirvöld í ríkis-
fangelsinu í Nyborg lentu í
kröppum dansi um helgina
þegar fangar þar gerðu
uppreisn. Tókst föngunum
að læsa fangaverði sína úti
og kveikja í nokkrum skrif-
stofum áður en aðstoð lög-
reglu og slökkviliðs barst.
Föngunum tókst að loka
sig af í hluta fangelsisins
þar sem verðir hörfuðu
vegna mikilla slagsmála
sem brutust út á sunnu-
dagskvöldið. Lögreglu og
fangavörðum tókst eftir
hálftíma þóf að ná til fang-
anna og tókst að stilla til
friðar án frekari vandræði.
Ung íslensk stúlka fær ekki aö hitta kærasta sinn frá Barbados þar sem hann fær
ekki vegabréfsáritun til íslands hjá Útlendingastofnun
Barbados Ástin blómstraði á
ströndirmi en þau fá ekki að sjást aft-
ur ef Útlendingastofnun fær að ráða
Ekki nógu róösettur
íyrir Útlendingastofnun
Ung íslensk stúlka fær ekki að hitta kærasta
sinn frá Barbados þar sem hann fær ekki vega-
bréfsáritun til íslands hjá Útlendingastofnun og
er sú ástæða tilgreind að „hann er ungur og ógift-
ur og talin hafa lítil tengsl við heimaland sitt".
Þessi úrskurður Útlendingastofnunar hefur verið
kærður til dómsmálaráðherra. Katla Þorsteins-
dóttir lögmaður Alþjóðahússins segir að í þessu
tilfelli hafi aðeins verið sótt um þriggja mánaða
ferðamannaáritun. „Mér finnst það undarlegt ef
aldur og hjúskaparstaða fólks er gundvöllur fyrir
því hvort viðkomandi fái vegabréfáritun til lands-
ins eða ekki,“ segir Katla. Ekki tókst að ná tali af
forstöðumönnum Útlendingastofnunnar vegna
þessa mál í gærdag þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
Forsaga málsins er sú að hin íslenska stúlka
Ung íslensk stúlka fær ekki að
hitta kærasta sinn frá Bar-
bados.
sem hér um ræðir hitti viðkomandi mann er hún
var í fríi á Barbados. Þau urðu ástfangin af hvort
öðru eins og gengur og gerist og hefur stúlkan
heimsótt hann aftur á síðasta ári. Foreldrar
stúlkunnar vildu svo fá þennan kærasta dóttur
sinnar hingað til lands til að kynnast honum er
samband hans við dóttur þeirra var komið á gott
skrið. Útlendingastofnun hefur nú komið í veg
fyrir þau áform. Stúlkan vildi ekki tjá sig um mál-
ið undir nafni við DV.
í úrskurði sínum gefur Útlendingastofnun
sér það sem forsendu að viðkomandi maður ætli
sér að dvelja lengur á Schengen-svæðinu en gef-
ið er upp í umsókn hans um vegabréfsáritun.
Segir m.a. í úrskurðinum: „Þar sem Útlendinga-
stofnun hefur ástæðu til að halda að umsækj-
andi ætlar sér að dvelja lengur á Schengen-
svæðinu en greint er frá í umsókn hans er um-
sókninni hafnað á grundvelli greinar nr. 6 í út-
lendingalögunum..." I úrskurðinum kemur
einnig fram að Útlendingastofnun trúir því að
viðkomandi ætli sér ekki að snúa aftur til heima-
lands síns.
Sem fyrr segir var úrskurður Útlendingastofn-
unnar kærður til dómsmálaráðherra og er niður-
stöðu frá honum að vænta á næstu vikum.
Sjónvarpstöðin Fjölsýn í Vestmannaeyjum í rannsókn lögreglu
Enski boltinn rofin
Gísli Valtýsson Úlögleg útsending á enska boltanum í Vestmannaeyjum var rofin ímiðjum
klíðum á miðvikudaginn.
Vefmiðillinn Eyjar.net í Vest-
mannaeyjum greinir frá því að sjón-
varpsstöðin Fjölsýn hafi hætt að
sjónvarpa enska boltanum eftir
fréttaflutning DV af lögreglurann-
sókn á útsendingum stöðvarinnar.
Stöð 2 kærði Fjölsýn fyrir um þremur
árum fyrir að sjónvarpa efhi sem
Stöð 2 hefði einkarétt á. Er þar eink-
um um að ræða ensku knattspyrn-
una.
Gísli Valtýsson, einn helsti eigandi
Eyjasýnar, sem á Fjölsýn og Eyjafrétt-
ir, sagði í samtali við DV að hann vissi
ekki til annars en að hætt hefði verið
að sjónvarpa enska boltanum eftir að
ábending barst frá lögmanni Stöðvar
2 í byrjun síðasta árs. Á vefnum Eyj-
ar.net segir hins vegar að Fjölsýn hafí
sýnt leik Chelsea og Portsmouth síð-
asta miðvikudag, tveimur dögum
áður en frétt DV birtist.
Aðspurður um hvort leikur Chel-
sea og Portsmouth hafi verið sýndur
segir Gísli að um mistök hafi verið að
ræða. „Þessi leikur var ekki sýndur,
hann var inni í 10 mínútur eða svo.
Hann var sýndur á Canal + og ég sá
það sjálfur og bað um að útsending-
in yrði rofin. Þá fór einn upp á stöð
og setti Cartoon Network á,“ segir
hann.
Fjölsýn sjónvarpar 10 erlendum
sjónvarpsstöðum og segir Gísli það
geta gerst að efrii slysast inn sem ekki
á að koma fram, enda er stöðin
mannlaus og stjómast af tímastilling-
um. Til dæmis hafi Fjölsýn óafvitandi
sjónvarpað ljósbláum myndum af
stöðinni Canal blue sem fjölskyldu-
fólk hafi kvartað undan, en útsending
á erótfkinni var einnig rofin í miðjum
kh'ðum.
jontrausti&dv.is
Sölumenn
- goðar tekjur
DV óskar eftir sölumönnum
í áskriftarátak. Unnið er á kvöldin.
Fast kaup + bónusar.
Áhugasamir hafi samband við DV
í síma 550-5000 og leggi inn umsókn,
eða senda umsókn á atvinna@frettabladid.is
í umsókninni þarf að koma fram nafn,
kt., heimilisfang, sími og reynsla af símasölu,
ef einhver er.
Öllum umsóknum verður svarað.
A________________________________