Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2004, Side 18
1
78 ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 2004
Sport DV
Loksins sigur í
jöfnum leik
Breiðablik vann
óvæntan sigur í Njarðvík á
sunnudaginn, fyrsti sigur
liðsins í fimm leikjum og
var dýrmætur í harðri
botnbaráttu. Fyrir leikinn
voru Blikar búnir að tapa 5
af 6 leikjum sem enduðu
með minna en fimm stiga
mun, þar af fjórum þeirra
með þremur stigum eða
minna.
Fyrir vikið voru Blikar
aðeins búnir að vinna þrjá
af 17 leikjum sínum og eru í
vondum málum í harðri
fallbaráttu. Sigurinn í
Njarðvík var sá fyrsti hjá
Blikum í Ljónagryfjunni í
tæp ellefu ár eða síðan þeir
unnu eins stig sigur þar 14.
mars 1993.
Félagsmet og
metjöfnun
Snæfellingar sitja á toppi
Intersportdeildarinnar í
körfubolta en liðið er eina
liðið sem er ósigrað í
deildinni eftir áramót.
Snæfell hefur unnið níu
deildarleiki í röð sem er
nýtt glæsilegt félagsmet.
Með níunda sigrinum í röð
sem kom gegn ÍR-ingum á
sunnudagskvöldið jöfnuðu
Hólmarar annað félagsmet
sitt í úrvalsdeild því þetta
var áttundi heimasigur
liðsins í röð. í bæði skiptin
eru Snæfellingar að bæta
besta árangur sinn sem var
frá tímabilinu 1992 til 1993.
Snæfell tapaði fyrsta
heimaleik sínum með
þremur stigum gegn
Grindavík en síðan þá hafa
þeir unnið alla átta deildar-
leiki sína í Hólminum þó
svo að þeir hafi bæði tapað
leik í bikarnum (Njarðvík)
og í fyrirtækjabikarnum
(Hamar) í vetur.
Skrítin 49
stiga sveifla
Tindastólsmenn sýndu á
sér tvær afar ólíkar hliðar í
tveimur leikjum sínum á
tveimur dögum í
Intersportdeild karla. Fyrst
töpuðu þeir með 25 stigum
á útivelli gegn botnliði Þórs
úr Þorlákshöfn og svo unnu
þeir 24 stiga heimasigur á
bikarmeisturum Keflavíkur
sem eru í 3. sæti deildar-
innar. Með sigrinum nánast
gulltryggðu Stólarnir sætið
sitt í úrslitakeppninni en
Keflvíkingar misstu að
sama skapi nær alla von
um að verða deildar-
meistarar.
Haukarnir hafa náð í 12 af 14 stigum í boði í Intersportdeild karla í körfubolta eftir
áramót og eru fyrir vikið komnir í harða baráttu um þriðja sætið við Keflavík og
Njarðvík sem töpuðu bæði leikjum sínum í gær. Haukarnir hafa verið öflugir í
fjórða og síðasta leikhluta þar sem þeir eru erfiðir við að eiga.
Fjórði leikhlutinn
hentar Haukunum
Þeír sem sáu leik Hauka og KR á Ásvöllum í Intersportdeildinni f
körfubolta á sunnudagskvöldið sáu ekki mikið í spilunum fyrir
heimamenn í Haukum sem voru skrefinu á eftir fyrstu þrjá leikhlutana og
13 stigum undir, 44-57, þegar aðeins tíu mínútur voru eftir. Haukarnir áttu
hins vegar fjórða leikhlutann, þann tíma leiksins sem liðið hefur haft betur
í 13 af 18 deildarleikjum sfnum í vetur. Og sanniði til, Haukanir fóru á flug
og unnu fjórða leikhlutann 32-17, leikinn með tveimur stigum og komust
upp fyrir KR-inga í baráttunni um heimavallarrétt í úrslitakeppninni.
Sigurinn á KR varð þriðji
leikurinn hjá Haukum þar sem þeir
snúa við leik í fjórða leikhlutanum.
Áður höfðu þeir unnið upp forskot
Blika og Tindastólsmanna en í öll
skiptin hafa þeir unnið þessa leiki á
heimavelli sínum á Ásvöllum.
Haukarnir hafa unnið alla fjórðu
leikhluta sína þar í vetur og hafa
skorað í þeim 67 fleiri stig en
andstæðingarnir. Þessu sterku
endakaflar eiga mikinn þátt í því að
liðið státar af 78% sigurhlutfalli í
heimaleikjum sínum á tímabilinu.
Halldór Kristmannsson skoraði
15 stig í fjórða leikhlutanum gegn
KR og hitti þá úr 4 af 6 skotum
sínum, öllum þremur þriggja stiga
skotum sínum og öllum íjórum
vítunum. Halldór hafði misnotað 6
af 7 fyrstu skotum sínum í leiknum
en eins og oft áður í vetur fór
kappinn fyrst í gang í síðasta
leikhlutanum.
Átta síðustu stigin
Þremur dögum fyrr voru það
einmitt lokasekúndur leiks sem
tryggðu tvö stig þegar Haukar unnu
70-74 sigur á Breiðabliki í
Smáranum. Þar skoruðu Haukar
átta síðustu stig leiksins og sáu til
þess að Blikar skoruðu ekki síðustu
þrjár mfnúturnar. Þetta var í annað
sinn í vetur sem Haukarnir „stela"
sigri af Blikum því Halldór Krist-
mannsson kórónaði endurkomu og
eins stigs sigur Haukaliðsins í fyrri
leik liðanna með þriggja stiga
flautukörfu.
Flest stig í fjórða hluta
Það að Haukar hafi skorað 22,7
stig að meðaltali í fjórða leikhluta er
merkilegt ekki síst þar sem þeir
skora fæst stig af öllum tólf liðunum
í deildinni, eða aðeins 80,8 að
meðaltali. Haukarnir skora þannig
28% stiga sína í síðasta
leikhlutanum þar sem úrslitin ráðast
oftar en ekki.
Haukanir eiga eftir erfiðan
endakafla í Intersportdeildinni,
meðal annars leiki gegn Njarðvík,
Snæfelli og Keflavík, sem allir
töpuðust í fyrri umferðinni. Reynist
Haukarnir áfram jafntharöir af sér í
síðasta leikhluta þessara leikja er
aldrei að vita nema þeir endurtaki
leikinn frá því í fyrra en þá unnu þeir
9 af 11 leikjum sínum eftir áramót og
enduðu í þriðja sæti deildarinnar.
Einu töpin þeirra eftir áramót þá
voru gegn tveimur efstu liðinum.
Það er því ljóst að strákarnir hans
Reynis Kristjánssonar komast fyrst
á flug þegar jólastressið er afstaðið.
HAUKAR EFTIR ÁRAMÓT
Haukarnir hafa spilað liða best eftir
áramót og hafa aðeins tapað
einum af sjö leikjum sínum frá
áramótum. Haukarnir hafa tryggt
sér ófáa sigrana i fjórða leikhluta en
Hafnfirðingarnir hafa unnið 13 af
18 fjórðu leikhlutum sínum í
Intersportdeildinni í vetur.
Besta sigurhlutfall liða í seinni
umferð:
Snæfeli 100% (7 sigrar - 0 töp)
Haukar (6-1)
Grindavík* (3-3)
Keflavík (3-3)
ÍR (4-3)
Hamar (3-4)
KR (3-4)
Njarðvík (3-4)
Tindastóll (3-4)
Breiðablik (2-5)
KFÍ (2-4)
Þór Þorl* (1-5)
*Tölfræði fyrir leik Grindavíkur og
Þórs í gær sem lauk eftir að DV fór í
prentun.
Fjórðu leikhlutar Hauka í vetur:
Októben
KFÍ (úti) 25-25(89-81)
Hamar (heima) 21-17(78-73)
Tindastóll (úti) 17-29 (70-99)
ÍR (heima) 19-18(92-61)
Grindavík (úti) 23-21 (67-85)
Nóvemben
Breiðablik (heima) 26-20 (96-95)
KR (úti) 17-24 (69-88)
Njarðvík (heima) 22-15 (80-88)
Desemben
Þór Þorl. (úti) 22-8 (70-48)
Snæfell (heima) 23-22 (70-81)
Keflavík (úti) 21-23 (78-93)
Janúan
KFÍ (heima) 44-24(118-71)
Hamar (úti) 10-22 (84-78)
Tindastóll (heima) 23-11 (78-71)
[R (úti) 22-20 (76-89)
Febrúar:
Grindavík (heima) 27-26 (89-79)
Breiðablik (úti) 15-13 (74-70)
KR (heima) 32-17(76-74)
Gengi í fjórða leikhluta:
Leikir 18
Sigrar 13
Jafntefli 1
Töp 4
Stigatala: 409-355
Nettó: +54
ooj@dv.is
Réttar ákvarðanir Predrag Bojovic og félögum hans gengur liða besta í fjórða leikhluta en Haukanir hafa unnið hann Íl3afl8 leikjum
sínum I vetur. Hér sést„Kuki" eins og hann er kalaður leita að samherja gegn KR á sunnudagskvöldið. DV-mynd Róbert
i