Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2004, Qupperneq 21
DV Sport
ÞRIÐJUDAGUR 1 7. FEBRÚAR 2004 21
J3.r um dýrðir en
Dlmi gegn Austur-
leikmenn tóku nýlið-
e, var valinn bestur.
„Ég er ekki þekktur
fyrir að taka yfir
Stjörnuleiki á undan-
förnum árum en ég
sagði við sjálfan mig
um miðjan leikinn að
þetta gengi vel, það
skini enginn neitt
sérstaklega og því
væri ástæða fyrirmig
til að keyra á dæmið
og klára það almenni-
lega
Supersonics kláraði leikinn með
tveimur vítaskotum.
Það var lítið um varnir og leikmenn
beggja liða sýndu frábær tilþrif. Þeir
tróðu meðal annars 42 sinnum og
voru margar troðslurnar
stórglæsilegar. Allen Iverson hjá
Philadelphia 76ers, sem hefur löngum
skorað mikið í þessum leikjum,
skoraði aðeins þrjú stig en átti
ellefu frábærar stoð-
sendingar.
oskar@dv.is
TROÐSLUR I STJORNULEIKNUM
Það var mikið um troðslur í
Stjörnuleiknum á sunnudags-
XSf;
1 kvöldiðenallstróðuleikmenn | liðanna tveggja 42 sinnum í i leiknum. Shaquille O'Neal, miðherji 1 vesturdeildarliðsins, var manna ' atkvæðamestur en hann skoraði 18 af 24 stigum með troðslum. Austurdeildin Kenyon Martin, New Jersey 4
Jermaine O'Neal, Indiana 3
Vmce Carter, Toronto 3
Paul Pierce, Boston 3
Jamaal Magloire, New Orleans 3
Tracy McGrady, Orlando 2
Baron Davis, New Orleans 2
Michael Redd, Milwaukee 1
Ben Wallace, Detroit 1
Samtals 22
Vesturdelldln
Shaquille O’Neal, LA Lakers 9
Yao Ming, Houston 2
Kobe Bryant, LA Lakers 2
Steve Francis, Houston 2
Ray Allen, Seattle 1 |
Dirk Nowitzki, Dallas 1
Kevin Garnett, Minnesota 1
Andrei Kirilenko, Utah 1
Tim Duncan, San Antonio 1
Samtals 20
í mörg horn að Ifta Það er nóg að gera þessa dagana hjá Ómari Smárasyni, leyfisstjóra hjá
Knattspyrnusambandi fslands, enda eru aðeins þrjár vikur þar til leyfin tii þátttöku í Lands-
bankadeild karia á komandi timabili verða gefin út. DV-mynd Valli
Frestur til að skila inn gögnum vegna
leyfisumsóknar í Landsbakadeildinni
rann út í gær
Öll lið skiluðu
á réttum tíma
í gær rann út frestur hjá félögum
í Landsbankadeild karla í knatt-
spyrnu til að skila inn fjárhags-
gögnum vegna leyfískerfis KSÍ.
Ómar Smárason, umsjónarmaður
kerfisins hjá KSÍ, staðfesti í samtali
við DV Sport í gær að öll félög hefðu
skilað inn gögnum á réttum tíma en
gögnin verða að vera samþykkt af
aðalfundi félaganna og löggiltum
endurskoðanda.
„Nokkur félaganna eiga eftir að
halda aðalfundi og því eru gögnin
móttekin með þeim fyrirvara að þau
verði samþykkt á fundinum, en
annars sýnist mér félögin vera í fín-
um málum," sagði Ómar.
Leyfi gefin út í byrjun mars
Leyfisráð KSI mun taka
leyfisumsóknir félaganna fyrir á
fundi 7. mars næstkomandi og
kemur þá í ljós hvort öll félögin
fullnægja þeim kröfum sem
leyfiskerfið setur þeim.
Ómar sagði að leyfi til þátttöku í
Landsbankadeildinni myndu verða
gefin út daginn eftir að leyfisráð
kæmi saman, svo framarlega sem
öllum skilyrðum væri fullnægt.
Flestir sáttir
Hann sagði aðspurður að
forráðamenn félaganna væru sáttir
við þetta nýja kerfi, sem var tekið í
notkun í fyrra, og hann teldi að það
myndi hjálpa félögunum mikið að
skipuleggja reksturinn og sýna
aðhald og ábyrgð.
„Við munum í framtíðinni krefja
félög um mánaðarlegar skýrslur af
starfseminni og það þýðir
einfaldlega það að félögin verða að
halda vel á sínu málum,“ sagði
Ómar.
oskar@dv.is
Leikmenn Barnsley fengu það óþvegið eftir tapið
geng Wrexham um helgina
Sauð á Guðjóni
Guðjón Þórðarson, knatt-
spymustjóri Barnsley, var
ekki hrifinn af frammistöðu
sinna manna gegn Wrexham
um helgina. Barnsley tapaði
leiknum, 1-0, og vandaði
Guðjón sínum mönnum ekki
kveðjumar eftir leikinn.
„Ég var vonsvikinn yfir að
tapa þessum leik og
sérstaklega vonsvikinn með
frammistöðu liðsins í fyrri
hálfleik. Síðari hálfleikurinn
var betri. Þá fengum við
nokkur færi en nýttum þau
ekki,“ sagði Guðjón.
Hann sagði jafnframt að
þetta tap væri botninn á tíma
sínum sem knattspyrnustjóri
hjá félaginu.
Botninum náð
„Ég held að þetta tap gegn
Wrexham sé verstu úrslitin á
tíma mínum hjá Barnsley og
frammistaðan sú slakasta
hingað til - ég er mjög, mjög
vonsvikinn.
Markið sem við fengum á
okkur kom eftir ótrúlega
lélega varnarvinnu hjá öllu
liðinu en þeir leyfðu
leikmanninum að hlaupa 60
til 70 metra án þess að gera
tilraun til að stoppa hann.
„Ég held að þetta
tap gegn Wrex-
ham sé verstu
úrslitin á tíma
mínum hjá
Barnsley/'
Það er ekki viðunandi undir
nokkrum kringumstæðum.
Það eru nokkrir leikmenn
liðsins sem þurfa að hugsa
mjög alvarlega um hvað
gerðistgegnWrexham," sagði
Guðjón, sjóðandi vondur.
oskar@dv.is
Guöjón brjálaður Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri Barns-
tey, var ósáttur við iærisveina sína gegn Wrexham. Reuters
KR-ingar Reykjavíkurmeistarar KR-ingar tryggðu sér Reykjavikurmeistaratitilinn i meistarafiokki karla íknattspyrnu á sunnudagskvöldþegarIþeir báru sigurorð afFylki, 4-3, iúrslitaleik i
Egiishöllinni. Sölvi Daviðsson kom KR-ingum yfirá 12. minútu og Veigar Páll Gunnarsson jók muninn í2-0 tveimur mlnútum siðar. Eyjólfur Héðinsson jafnaði metin fyrir Fylki með tveimur
mörkum á 27. mínútu og 55. en Arnar Gunnlaugsson, sem kom inn á sem varamaður fyrir Bjarka bróður sinn tveimur minútum fyrir hátfleik, kom KR aftur yfirá 67. minútu. Heigi Vatur Daníeisson
jafnaði aftur fyrir Fylki tveimur minútum siðar en Arnar tryggði KR-ingum sigurinn á siðustu mínútu leiksins eftir að Veigar Páil Gunnarsson hafði prjónað sig i gegnum vörn Fyikismanna.
DV-mynd Róbert
t
.1