Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2004, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 2004
Fókus r*V
Febrúar er leiðindamánuður að mati flestra. Ekkert gerist, fólk er dofið úr kulda og þá er lítið annað
gert en að hanga heima í sófanum undir teppi og glápa á imbann. DV fékk nokkra málsmetandi menn,
hvern á sínu sviði, til að meta efnið sem við gleypum kvöld eftir kvöld án mikillar heilastarfsemi. Er
einhver sannleikur í þessum þáttum eða er þetta eintóm froða sem við tökum við nánast gagnrýn-
istlaust?
Will and Grace
Á föstudagskvöldum kl. 20.30 á
SkjáEinum.
Fylgst er með
vinunum Will,
Grace, Jack og
Karen. Will og
Jackeru hommar,
en lítið gengur í
ástamálum þeirra.
Karen er nýskilin en Grace hef-
ur fundið ástina í lífi sínu.
Fyndnir gamanþættir.
Endurspegla ekki
raunveruleikann
„Þetta eru bara ffnir þættir en endurspegla
raunveruleikann á engan máta. Þátturinn sýn-
ir heim samkynhneigðra sem fyndinn og
skemmtilegan. Það er enginn þáttur í sjón-
varpinu sem lýsir heimi samkynhneigðra eins
og hann er. Hommarnir eru alltaf látnir líta út
sem bara fyndnir og skemmtilegir. Þetta eru
samt fínir þættir, þótt ég horfi alls ekki alitaf á
þá, en endurspegla raunveruleikann alls ekki."
Róbert Michael O'Neal, íSamtökunum '78
Aldrei fundist þetta raunverulegt
„Mér hefur aldrei fundist þetta mjög raunverulegt en þar sem
þættirnir gerast í Bandaríkjunum og réttarkerfið þar er allt öðruvísi
en hjá okkur er það kannski ekki nema von. Lögfræðingar hér á
landi hittast þó gjarnan eftir vinnu, eins og gerist þarna, en flestir
reyna þó að eyða tímanum með fjölskyldunni. Mér finnast þessir
þættir ekkert rosalega skemmtilegir, Matlock var mun betri þótt
hann hafi á engan hátt átt meira heima í raunveruleikanum hér.“
Þóröur Sveinsson lögfræðingur
Froða eða
raunveruleiki?
f hár saman
(Cutting it)
Á fimmtudagskvöldum kl.
22.20 í Sjónvarpinu
Starfsfólk á tveim
ur hárgreiðslu-
stofum í sömu göt-
unni eru í aðal-
hluverkum hér.
Miklar flækjur í gangi
þar sem allir eru búnir
að vera með öllum.
Margir punktar eiga vel við
„Ég hef lúmskt gaman af þessum þætti, enda gaman að
horfa á sitt fag. Það er svolítið mikið drama í þessu en marg-
ir punktar sem eiga mjög vel við. Það kemur náttúrlega ým-
islegt upp á, konfliktar milli starfsfólks og svona. Eins og í
þættinum er algengt að starfsfólkið slái sér upp á
vinnustaðnum og oft er mikið um spennu, þótt ég myndi
kannski ekki segja að allir væru með öllum, og svo blandast
inn í þetta tíska sem er mjög algeng í þessum bransa. Þarna
er samt sérhæflngin miklu meiri; einn sér um að lita, annar
að klippa og sá þriðji greiðir, en hér gerum við þetta allt
sjálf."
Ásgeir Hjartarsson, klippari á Supernova
Bráðavaktin
Á miðvikudagskvöldum kl.
20.05 íSjónvarpinu
Feiknalega vin-
sæll þáttur sem
fjallar um líf og
störf lækna og
hjúkrunarfræð-
inga á bráðamót-
töku sjúkrahúss.
Survivor
Á mánudagskvöldum á Skjá
Einum kl. 21.
Fólki, sem þekkist
ekkert, er komið
fyrir allslausu á
eyðieyju og á að
spjara sig. Sá sem
eftir stendur sigrar
og fær eina milljón
dollara. Sá þáttur sem er í
gangi núna er Allstar-þáttur
þar sem þátttakendur hafa all-
ir tekið þátt áður og hefur það
áhrif á útkomuna. Fólkið
treystir hvert öðru minna en
nokkru sinni fyrr og forvitni-
legt er að sjá hver stendur
uppi sem hinn eini sanni sör-
vævor.
America's next top
model
Á laugardögum kl. 16 á
SkjáEinum
Keppnin um hver
verði næsta súper-
módelið er í fullum
gangi. Stelpurnar
detta út ein af ann-
arri þar til ein mun
standa eftir sem sigur
vegari og hennar bíður fr
og frami.
Skemmtilegt en klisjukennt
„Ég fæ bara gæsahúð, þetta er svo klisjukennt. Samt er ég búin að
horfa á tvo þætti. Þessir þættir sýna þó algjörlega raunveruleikann
eins og hann er. Þetta er harður heimur og maður verður að hafa bein
í neflnu til að geta tekist á við þetta. Samt getur þetta verið mjög stórt
tækifæri fyrir ungar stelpur til að ferðast og kynnast annarri menningu
og læra að standa á eigin fótum. Ég hef heyrt að þættirnir séu mjög
vinsælir og skil það alveg. Þetta er skemmtilegt en mjög klisjukennt."
Nína Gunnarsdóttir, ljósmyndari ogfyrirsæta
völdum kl. 22.40
Shield (Sérsveitin)
Á þriðjudagskvc
á Stöð 2
Sérsveitin reyn-
ir að hafa hendur í
hári hryðjuverka-
manna og annarra
glæpona.
Væri til í að prófa sjálfur
„Ég horfi af og til á Survivor og þetta eru ágætir þættir. Þátttak-
endur taka þó ekki alltaf réttar ákvarðanir, að mínu mati. Til dæm-
is með staðsetningu bækistöðva. Einu sinni var ákveðið að tjalda í
árfarvegi og eins og vitað var kom vatnið á endanum og skolaði
öllu burt. Ég held ég myndi þó ekkert standa mig betur en þetta
fólk. Allavega ekki með matarsöfnun og eldinn. Oft veit ég ekkert
hvað þau eru að borða. En ég væri alveg til í að prófa að taka þátt,
þetta væri skemmtileg lífsreynsla. Þó finnst mér leiðinlegt þetta
plott. Væri enn skemmtilegra ef leikurinn væri nóg en ekki þyrfti
að að kjósa einhvern í burtu."
Valgeir Elíasson björgunarsveitamaður
Trúverðugur þáttur
„Að sjálfsögðu norfl ég á þennan þátt og mér finnst hann ágætur. Ég missi
þó stundum úr, en á meðan ég var læknanemi hittumst við gjarnan félagarn-
ir í hvítu sloppunum og horfðum saman. Þarna eru allir læknarnir náttúrlega
ungir og myndarlegir og eiga sér æsilegt einkalíf, sem er alveg eins og gerist og
gengur á bráðamóttökunni hér. Atriðin eru flest trúverðug, þótt við höfum nú
lítinn samanburð í skotsárum, sem betur fer. Hér reynum við að vinna af yf-
irvegun og rósemd þannig að allt gangi sem best, en ef allur dagurinn ætti að
komast fyrir á tæpum klukkutíma, eins og £ þessum þætti, myndi hraðinn lfk-
lega aukast. Ég held að þessir þættir séu vinsælir meeeðal lækna og hjúkrun-
arfræðinga landsins, allavega laumast ég til að horfa á þá."
Dagur B. Eggertsson læknir
The Practice
Á sunnudagskvöldum kl.21á
SkjáEinum.
Bandarískt lögfræðidrama,
fjallar um líf og störf
lögfræðinga á
Donnel, Young,
Dole og Fruitt
lögfræðistofunni
ásamt saksóknur-
um sem berjast vió
að koma glæponum
bak við lás og slá á meðan að-
alsöguhetjurnar reyna allt til
að halda þeim frjálsum.
Ofgakennduren
ágætur
„Mér líst vel á þennan þátt,
hann er alveg ágætur þótt hann sé
mjög öfgakenndur á stundum.
Þetta er ekki raunveruleikinn
hérna en er þrátt fyrir það ágætis
afþreying. Sem áhugamaður um
löggæslu er ég spenntur fyrir flest-
um þessum lögregluþáttum.
Breskir lögregluþættir eiga meira
upp á pallborðið hér á landi en
bandarískir. Það kemur fyrir að við
ræðum þætti gærkvöldsins okkar á
milli hér á stöðinni. CSI-þættirnir
eru til dæmis mjög faglega unnir
og fræðandi varðandi tæknina þótt
ég vilji ekki gefa upp hvort við not-
uð þessa tækni ekki eða."
Árni Friðleifsson lögreglumaður