Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2004, Síða 25
I
PV Fókus________________________________________________________________________________ ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 2004 2S
Leikfangafyrirtækið Mattel lýsti því yfir á fimmtudag að dúkkurnar Ken og Barbie væru hætt saman.
Þetta er talið vera auglýsingabrella af hálfu fyrirtækisins, til þess fallin að vekja frekari athygli á vörun-
um. En ef Ken og Barbie væru alvöru par, hvernig hefðu sambandsslitin þá orðið?
Barbie og Ken hætt saman Ken snýr sér
að Cindy og Barbie í fang Harrvs Pottar
Sú frétt fór eins og eldur í sinu
um heimsbyggðina á föstudaginn
að glæsiparið Barbie og Ken væru
hætt saman. Þetta kom eins og
þruma úr heiðskíru lofti því parið
hefur enst mun lengur en gengur
og gerist í skemmtanabransanum.
Fjölmiðlafulltrúar Kens og Barbie
lýstu því yfir á fimmtudag að parið
hefði ákveðið að hætta saman
vegna ósættanlegs ágreinings, en
væru ennþá góðir vinir. Sá
orðrómur hefur þó gengið lengi að
Ken hafi verið ósáttur við að vera
stöðugt í skugga eiginkonunnar, og
hafi verið orðinn langþreyttur á að
vera kallaður „hr. Barbie". Hann
hefur reynt fyrir sér bæði sem leik-
ari og söngvari, en ekki haft erindi
sem erfiði.
Ken og Barbie Meðan allt lék ílyndi.
Barbie og Acton
Man Action Man
virtist enn óttast
samkeppni frá Ken
og mætti vopnaður
til leiks á frumsýn-
ingu á laugardag-
Ken á nektardansstað
Vinir parsins hafa haft á orði að
þau talist ekki lengur við, og ekki leið
á löngu uns sást til Barbie með Act-
ion Man. Sögðu þeir sem til þeirra
sáu að parið hefði látið mjög vel
hvort að öðru. Það hefur lengi verið
uppi orðrómur
um að þau
væru eitthvað
hvíslað um það manna á milli að
Ken ætti við vandamál að stríða
varðandi kyngetuna.
Það var þó ekki að sjá daginn
eftir sambandsslitin þegar sást til
hans í almenningsgarði í fylgd
með hinni leggjalöngu Cindy, en
illkvittnar tungur hafa bent á að
hún sé næstum lifandi
eftirmynd Barbie, og
vilja sumir því
meina að Ken sé
kannski ekki al-
veg búinn að
jafna sig. Fékk
sá orðrómur
byr undir
báða vængi
þegar hann
birtist á
nektar-
staðnum
Bratz með
þeim
Power
Ragers
strákum
, i og virtist
ekki í
jafnvægi, en
eftir því sem
leið á kvöldið
virtist sem
Bratz-stúlkur
væru ofar í
huga hans en
bæði Cindy
og Barbie.
Getulaus? Orðrómur hefurlengi gengið um að Ken eigi ierfiðleikum með kyngetuna. Ljós-
myndari tók þessa mynd úr felum þar sem Barbie virðist vera að reyna koma honum til.
Vinir parsins hafa
haft á orði að þau
talist ekki lengur við,
og ekki leið á löngu
uns Barbie sást með
Action Man. Sögðu
þeirsem til þeirra sáu
að parið hefði látið
mjög vel hvort að
öðru.
Action Man og He-Man slást
Kvöldið eftir sást Barbie á
skemmústað með Action Man, en
gestum brá heldur betur í brún þeg-
ar þeir sáu hana gera sér dælt við
He-Man jafnskjótt og fylgdarmaður
hennar brá sér frá. Fór það svo að
slagsmál brutust út milli Action Man
og He-Man, og var báðum hent út
fyrir vikið. Dyraverðirnir, sem munu
heita Han Solo og Chewbacca, vildu
ekki tjá sig um málið. Á endanum
yfirgaf Barbie samvæmið með hin-
um stórglæsilega Súpermann, en
hann hafði fyrr um kvöldið heyrst
gorta af því að hann gæti lamið þá
báða.
Sama kvöld var Ken aftur mætt-
ur til leiks ásamt félögum sínum í
Power Rangers, og virtust þeir vera
heldur vel við skál. Ken þurfti ítrek-
að að bregða sé á klósettið, og
virtist koma heldur hressari út í
hvert sinn. Hafa sumir velt því fyrir
sér hvort hann hafi verið að neyta
eiturlyfsins kókaíns, en slíkt er tafið
efla kyngetuna til skamms tíma.
Þeir sáust síðast stíga upp í leigubíl
ásamt Power Puff stúlkunum, og
lögreglan íhugar rannsókn málsins
þar sem stúlkurnar eru allar vel
undir lögaldri. Engin ákæra hefur
þó enn verið gefin út.
Ken með stúlku undir
lögaldri
Daginn eftir sást Ken yfirgefa
íbúð sína í Hollywood-hæðum
ásamt tveimur stúlknanna. Ljós-
myndari að nafni Peter Parker
reyndi að ná af þeim myndum, og
Á myndbandi Ken lék á yngri árum i vafa-
sömum myndböndum sem hafa gengið
manna á milli á Netinu.
réðst Ken þá á hann. Þessu lyktaði
þannig að Ken liggur nú á gjör-
gæslu með mikla áverka, og þurfti
neyðarhjálp til að klippa hann út
úr einhvers konar vef til að geta
gert að sárum hans. Hann á því
ekki sjö dagana sæla. Ken hefur
kært ljósmyndarann fyrir rof á frið-
helgi einkalífsins, en Parker hefur
i poppinu Ken reyndi fyrirsér sem tónlistar-
maður. Hann fékk þó afleita dóma og platan
seldist illa.
kært hann á móti fyrir líkamsárás.
Á sama tíma sást svo til Barbie í
skemmtigarði ásamt Harry Potter, og
létu þau vel hvort að öðru í rússíban-
anum og parísarhjólinu. Virðist því
Barbie vera að fylgja nýjustu tískunni
í Hollywood, sem er að eldri konur
yngi hressilega upp hjá sér.
valur@dv.is
Ken sem Lér konungur á Broadway Sýn-
ingin kolféll og var tekin affjölunum strax
eftir frumsýningu.