Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2004, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2004
Fréttir ÐV
Þjóðin kjósi
Ólaf burt
„Ólafur Ragnar er að
blekkja þjóðina einu sinni
enn,“ segirÁstþór Magnús-
son, forsetaframbjóðandi.
Hann segir það sorglegt
hvernig Ólafur virðist ætla
að halda á spilunum í kom-
andi kosningabaráttu.
„Hann hefur ekki beitt sér í
friðarmálum eins og hann
lofaði," segirÁstþór, „og
svo má ekki gleyma því að
eitt af hans fyrstu loforðum
var að sitja bara í tvö kjör-
tímabil; bæði þessi mál
hefur hann svikið." Ástþór
segir mann sem hagar sér
svona eigi ekki heima á
Bessastöðum. „Þjóðin þarf
að kjósa Ólaf burt og fá mig
í staðinn."
Yfirheyrður í
gærkvöldi
Jónas Ingi Ragnarsson,
sá eini af grunuðu mönn-
unum þremur sem ekki
hefur játað aðild að Nes-
kaupstaðaramálinu, var yf-
irheyrður frá því sfðdegi og
fram á kvöld í gær á Litla-
Hrauni. Lögmenn grunuðu
mannanna í líkfundarmál-
inu fengu í gær fyrstu afrit
af rannsóknargögnum frá
lögreglunni. Héraðsdómur
Reykjavíkur úrskurðaði á
fimmtudag að lögreglu sé
heimilt að afhenda ekki
hvert og eitt gagn í málinu
fyrr en þremur vikum eftir
að það verður til. Meðal
þess sem búast má við að
hafi verið afhent í gær eru
framburðarskýrslur sem
teknar voru af þremmen-
ingunum þegar þeir gáfu
sig fyrst fram við lögreglu
fyrir (jórum vikum og
skýrslur sem voru teknar af
mönnunum þegar þeir
voru handteknir og úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald
fyrir rúmum þremur vik-
Samherji
frestarfundi
Stjóm Samherja hefur
frestað aðalfundi félagsins.
Fundurinn átti að vera 25.
mars en hefur verið frestað
vegna óviðráðanlegra að-
stæðna, eins og segir í til-
kynningu frá stjórninni.
Forystumenn Samherja
hafa verið önnum kafnir
dag og nótt við að reyna að
bjarga flaggskipinu Bald-
vini Þorsteinssyni af
strandstað í Skarðsfjöru.
Fundurinn verður í staðinn
haldinn 29. apríl klukkan
þrjú og dagskrá hans verð-
ur birt með tilskyldum fyr-
irvara.
Einn hluthafa í Þorbirni Fiskanesi er ævareiöur vegna yfirtöku Eiríks Tómassonar,
forstjóra og fjölskyldu, á fyrirtækinu. Segir erlent íjármagn vera notað til að ná fyr-
irtækjum af verðbréfamarkaði. Fiskanesmenn íhuga aðgerðir vegna yfirtökunnar.
„Þetta kom eins og þruma úr heið-
skíru iofti enda hefur samvinnan verið
með ágætum og reksturinn gengið
vel,“ segir Willard Ole Ólason, hluthafi
í Þorbirni Fiskanesi, um yflrtöku eig-
enda Þorbjarnar hf. á fyrirtækinu. Það
eru Eiríkur Tómasson, forstjóri fyrir-
tækisins, og ættmenni hans sem hafa
tekið fyrirtækið yfir og afskrá það hjá
Kauphöll íslands. Öðrum hluthöfum,
þar sem Willard Ole hefur verið, var
gert yfirtökutilboð á genginu 6. Þor-
björn-Fiskanes varð til með samruna
tveggja stærstu fyrirtækjanna í Grinda-
vík fyrir þremur árum. Willard Ole,
sem var stjórnarformaður Fiskaness,
segir að Fiskaneshlutinn hafi þá verið
36 prósent en fjölskyldan sem stóð að
Þorbirni hafi átt um 25 prósenta hluta.
Aðrir voru smærri. Willard segir að all-
ir hafi verið sammála um að reka fyrir-
tækið saman og allt fram til yfirtök-
unnar hafi allt Jitið vel út. Eiríkur Tóm-
asson var ráðinn forstjóri.
„Þetta virtust vera ágætir menn,
bæði ungir og myndarlegir. Við vorum
stoltir af þvf að reka saman fyrirtækið
sem er það stærsta í Grindavík og sáum
ekki fyrir okkur það sem nú hefur gerst,"
segir Willard Ole og sakar Eirík og sam-
starfsmenn um ágirnd.
Við yfirtökuna er öðrum hluthöfum
boðið að selja á genginu sex. Willard
segir að ekkert hafi verið við sig talað
fyrr en yfirtakan lá fyrir. „Ég mátti vera
með en yrði þá áhrifalaus," segir hann.
Hann setur spurningamerki við að-
komu íslandsbanka að yfirtökunni.
„Við erum að kanna hvernig Islands-
banki stóð að þessu. Lögmaður okkar
hefur krafið bankann svara en það er
enn ekki komið. Þangað til get ég ekki
svarað því til hvaða aðgerða við gríp-
um,“ segir Willard.
„Mér er spurn hvað verður um
hlutabréfamarkaðinn þegar
bankar taka þátt í svona löguðu
og erlent fjármagn streymir inn
til þess að standa að svona
hlutum," segir Willard.
Bjarni Ármannsson, banka-
stjóri Islandsbanka, staðfestir
aðkomu Islandsbanka að
hlutabréfakaupunum og yfir-
tökutilboðinu.
„fslandsbanki kom að
þessum málum með ráðgjöf
og aðstoð við fjármögnun.
Það var staðið faglega og í alla
staði eðlilega að þessu. Miðl-
un hlutabréfa er okkar hlut-
verk,“ segir Bjarni.
n@dv.is
fridrik@dv.is
EirikurTomasson og
Bjarni Armannsson
Forstjórinn er sakaður um
græðgi og að bregðast fyrr-
um félögum i sameinuðu
fyrirtæki. Bankastjórinn er
sagður hafa staðið óeðlilega
að málum.
Forseti fastur í farinu
Forsetinn er ekki að fara neitt. Ólaf-
ur Ragnar Grímsson hefur tekið af
skarið.
Það kostaði mikla yfirlegu, segir
forsetinn, að taka þessa ákvörðun.
Ólafur Ragnar er þegar búinn að vera
átta ár í djobbinu og uppsker aldrei
neitt nema spott og spé; jafnvel ill-
gjarnar háðsglósur. Og svo náttúrlega
launin, bílinn, bflstjórann, óðalssetrið,
fríu ferðirnar úl údanda, kokkinn,
garðyrkjumanninn og guð má vita
hvað.
Vandamálið er að launin lækka al-
veg ferlega mikið ef maður er forseti
en hættir svo. f staðinn fyrir að fá 1500
þúsund á mánuði þarf maður allt í
einu að komast af með 1200 þúsund
kall. Það em nú öll eftirlaunin.
Svo láetur bílstjórinn sig líka hverfa
á kadilakknum og Bessastaðir em lok-
uð bók nema arftakinn sjái aumur á
manni og bjóði með Vigdísi í tedrykkju
síðdegis á virkum degi. Það þykir sum-
um í sumum kreðsum fínt en fyrir fyrr-
Svarthöfði
verandi forseta er það bara salt í sárin.
Það er líka þrýsúngur frá familí-
unni. Ef hendinni væri sleppt af for-
setasetrinu yrðu dæturnar ekki lengur
prinsessur heldur bara almúgi. Það
vita nú allir sem það hafa reynt að al-
múgadæmið er ekkert spes skemmú-
legt.
Og hvað myndi Dorritt segja? Hún,
sem er búin að lifa sig svo vel inn í
hlutverk forsetafrúarinnar að hún hef-
ur misst ömgglega íleiri kfló af því að
skipta um kjóla og dragúr fimm sinn-
um á dag. Leggst hún ekki bara í þung-
lyndi og hverfur inn í heim konfekts og
líkjöra? Og kannski hverfur hún bara
alveg yfirhöfuð - verandi skyndilega
bara gift rakarasyni frá Isafirði.
Þá er nú víst best að harka af sér.
Það er svo dýrmætt.
Svarthöfði