Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2004, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2004
Fréttir DV
Hassiðí
skýjunum
Verðlag á hassi á íslandi
er komið í hæstu hæðir.
Gangverð á al-
mennum markaði
er um þessar
mundir 3.000
krónur fyrir gram-
mið, samkvæmt
mælingum SÁÁ,
sem aftur fær upplýsingar
hjá þeim neytendum sem
koma til meðferðar. Mikil
hækkun á hassi er rakin til
mikillar eftirspurnar í „eldri
aldurshópum" og skorts á
efninu á markaðinum.
Baldvin enn
fastur
Fjölveiðiskip Samherja,
Baldvin Þorsteinsson, ligg-
ur enn í Skarðsfjöru eftir að
mistókst að draga það á flot
í fyrrinótt. Hefur skipið
snúist þannig að stefnið
liggur að landi sem gerir
björgunaraðgerðir erfiðari
en ella. Slitnaði á milli
norska dráttarskipsins og
Baldvins þegar festingar
gáfu sig við mun minna
átak en þær áttu að þola.
Veður er með besta móti á
svæðinu en ekki hafði verið
tekin ákvörðun um hvenær
reynt verður aftur.
Eru kosninga-
úrslitin í
Rússlandi
áreiðanleg?
Mörður Árnason
þingmaður Samfylkingarinnar
„Ég efast um að nokkuð sé
óeðlilegt við kosningaúrslitin í
Rússlandi en kosningabarátt-
an sýnir að lýðræðið þar
stendur veikum fótum. Hins-
vegar finnst mér kosningaúr-
slitin á Spáni mun merkilegri
tíðindi. Þar fellur hægri stjórn
sem setið hefurí langan tíma.
Þeir falla á stuðningi sínum
við hernaðarbrölt Bandaríkja-
manna í Irak og því að þeir
virðast ekki hafa sagt þjóð
sinni sannleikann um hverjir
stóðu að baki hryðjuverkun-
um í Madríd."
Hann segir / Hún segir
„Ég held ekki. Mér sýnist að
þessi niðurstaða fyrir Putin sé
alveg eins og gekk og gerðist í
Sovétríkjunum á sínum tima
þegar kaþpar eins og Bresnev
voru upp á sitt besta. Og það
þýðir víst ekkert fyrir almenn-
ing í þessu landi að mótmæla
stefnu stjórnvalda. Því miður."
Nanna Guðbergsdóttir
Eigandi Kaffi Roma
Ólafur Ragnar Grímsson gefur kost á sér sem forseti þriðja kjörtímabilið. Hann ætl-
ar að taka meiri þátt í umræðu um framtíð þjóðarinnar, greiða íslendingum leið í
útlöndum, styrkja hvers kyns starfsemi á íslandi og nýta samskipti við útlenda ráða-
menn. Hann segist ekki hætta sem forseti í hvert sinn sem hann stígi upp í flugvél.
Forsetinn ætlar
að svara tvrir sig
Ólafur Ragnar Grímsson
Hefur nokkrum sinnum
hugleitt að neita að skrifa
undir lög og visa til þjóðar■
atkvæðagreiðsiu.
Ólafur Ragnar Grímsson gefur kost á sér sem
forseti íslands næstu fjögur árin. Hann tilkynnti
þetta á blaðamannafundi á Bessastöðum í gær.
Hann ætlaði að tilkynna um framboðið upp úr
síðustu mánaðamótum en hefur verið með flensu
síðustu tvær vikurnar. Ólafur varði þá ákvörðun
að hafa ekki tilkynnt um framboð enn fyrr. „Mér
fannst ekki við hæfi og óeðlilegt og nánast þving-
unaraðgerð gagnvart þjóðinni ef ég hefði með
löngum fyrirvara tilkynnt þá ákvörðun," sagði
Ólafur Ragnar og útskýrði að hann hefði með því
stillt þjóðinni upp við vegg. í staðinn hefði hann
viljað gefa öðrum tækifæri að íhuga framboð.
Ekki hefðarembætti
Hann segir forsetaembættið eitt mikilvægasta
tæki sem íslendingar eigi til þess að treysta stöðu
sína í veröldinni og misskilning að embættið sé
valdalaust. Hann ætlar að nýta tækifæri forseta-
kosninga til að ræða hlutverk forsetaembættisins.
„Forsetaembætúð er ekki hefðarembætti, það er
lýðræðisleg staða sem fólkið velur,“ segir hann.
Embættið krefjist ekki dýrkunar. „Við emm ekki
með tignarembætti eða konung eða embætti sem
krefst ákveðinnar dýrkunar heldur fulltrúa sem fólk-
ið í landinu velur." Hann segir embættið hafa sér-
stöðu sem hið eina sem þjóðin velji beint og milli-
liðalaust og allir íslendingar hafi jafnan kosninga-
rétt.
Ólafur segir koma úl greina að styrkja stöðu for-
setaembættisins og að það geti nýst þjóðinni vel.
Hann hefur hugleitt það í nokkur skipti að beita
málskotsréttinum um að neita að skrifa undir lög og
vísa málum til þjóðarinnar en ekki þótt grundvöllur
til þess.
Betur í stakk búinn en síðast
„Ég held að ég sé á margan hátt betur í stakk
búinn nú til þess að gegna þessum verkefn
um en ég var kannski í upphafi þegar
ég var kosinn forseti Islands," segir
Ólafur. Æði mörg verkefni séu fram
undan sem hann hafi ekki getað
sinnt á síðustu átta ámm. Ólafur Ragnar seg-
ist munu starfa í sama anda og hann hefur
gert en leggur áherslu á fjögur atriði. Það fyrsta
Við erum ekki með tignar-
embætti eða konung eða
embætti sem krefst ákveðinn-
ar dýrkunar heldur fulltrúa
sem fólkið í landinu velur.
er að forsetinn tali við þjóðina um verkefni sem
þjóðin þurfi að sinna. „Það er kannski kominn sá
tími í okkar lýðræðissamfélagi að forsetinn sé
virkari þátttakandi í almennum umræðum um
framtíð þjóðarinnar, um mikilvægustu málefni
sem íslendingar glíma við,“ segir Ólafur en tekur
fram að hann æúi sér ekki að taka þátt í
því á flokkspólitískan hátt. í öðm lagi
leggur Ólafur áherslu á að ,
styrkja hvers kyns starfsemi á . * ”
fslandi og í þriðja lagi vill '
hann greiða íslendingum
leið í heiminum, opna dyr
og leggja fólki lið í menn-
ingu, vísindum og viðskipt-
um. í fjórða lagi vill hann
efla tengsl við forystumenn
annarra ríkja.
Takmörk hvað er hægt
að segja mikla vitleysu
„Það var sú hefð í embættinu
að forsetinn héldi sig til hlés,
svaraði ekki gagnrýni
sem að honum var
beint og tæki því
bara
þegjandi þegar menn vom að hnýta í hann, kannski
eini maðurinn í landinu sem menn gátu hamast í án
þess að þeim yrði svarað," segir Ólafur og efast um að
slflct fyrirkomulag sé heppilegt. „Mér finnst óeðlilegt
að það sé í gangi í þjóðfélaginu láúaust einhver nei-
kvæð umræða og gagnrýni og einhverjir ákveðnir
einstaklingar séu komnir með skoúeyfi á forsetaemb-
ættið og hann svari aldrei fynr sig. Ég hef kosið hing-
að til að svara ekki gagnrýni en það em kannski tak-
mörk fyrir því hvað menn geta sagt mikla viúeysu um
forsetaembættið án þess að maður svari fyrir sig.“
Líka forseti í útlöndum
Hann hefur sagt sitt síðasta orð um deilur sín-
ar við Davíð Oddsson og Halldór Blöndal í kring-
um heimastjórarafmælið en vill ræða fræðilega
um hlutverk forsetaembættisins. Hann vill far-
sælt samstarf við handhafa forsetavalds.
Ólafur segir það ekki ganga upp sem hald-
ið hefur verið fram að hann hætti að vera
forseti um leið og hann stígi upp í flugvél.
„Ég hef átt viðræður við forseta Banda-
ríkjanna og forseta Rússlands á ferðum
erlendis, er ég þá ekki forseti íslands?
spurði Ólafur. „Em einhverjir aðrir for-
setar íslands á meðan? Eru þeir forsetar
íslands á íslandi og ég bara í úúöndum?
spurði hann. Það er margt í þessu sem
menn þurfa að huga að.“
kgb@dv.is
DV-mynd GVA
Ræðismaður í Houston þungorður í garð stjórnvalda 1 Texas vegna Arons Pálma
Vanvirðing í garð Islendinga
„Ég get ekki kallað það
en vanvirðingu að svara el
í þrjú ár,“ segir Ólafur Á
geirsson, ræðismaður fsl
Texas, en hann hefur í sjö ,
ár unnið í málum Arons
Pálma Ágústssonar. Aron t
dæmdur í 10 ára fangelsi
brot sem hann framdi 11 á
enn, rúmlega tvítugur, í t
elsi á ströngustu skilmálui
sem refsikerfið í Texas býður upp á.
„Texas hefur verið afskaplega nei-
kvætt frá upphafi. Dómurinn var
afar harður og Aron er búinn að af-
plána óvenju stóran hluta dómsins,"
segir Ólafur. Hann segir að upphaf-
lega hafi bréf verið sent til Texas í
nóvember árið 2000, á sama tíma og
verið var að telja og endurtelja at-
kvæðin í forsetakosningunum í
Bandaríkjunum - kosningunum
sem síðar skiluðu George Bush ríkis-
í forsetastól í Hvíta
5 var ýtt á eftir mál-
íu en án árangurs.
ivar barst ekki fyrr
sn fyrir þremur
mánuðum.
Föðurafi Arons
jagnrýndi Braga
ibrandsson, for-
ann Barnaverndar-
DV í gær fyrir að
leggja til eftir utanför fyrir sjö árum
að láta ekki reyna á kröfu um fram-
sal fyrr en að nokkrum mánuðum
eða misserum liðnum. Ólafur Ás-
geirsson ræðismaður segir þetta
hafa verið rétt mat. „Ég var fyllilega
sammála Braga. Við vorum þeirrar
skoðunar eftir að hafa yfirfarið mál-
ið að sennilega bæri það engan ár-
angur að kefjast framsals strax."
Ólafur er ekki viss um að það tak-
ist að hreyfa málinu að nýju en Hall-
Aron Pálmi Fékk ekki svar við erindi sinu hjá Bush og eftirmanni hans i þrjú ár. Ræðismaður
Islands ÍTexas segirþetta vanvirðingu við islensk stjórnvöld.
dór Ásgrímsson, utanrfldsráðherra
lýsti yfir á þingi í síðustu viku að
hann ætlaði að fara fram á að Aron
fengi að flytjast til íslands af mann-
úðarástæðum. „Það er lítil von ef
viðmótið breytist ekki. Venjulegar
leiðir hafa brugðist," segir Ólafur,
sem er ekki viss um að hægt sé að
þrýsta á Texasbúann Bush í Hvíta
húsinu, „ég veit ekki hvort þetta mál
er af þeirri stærðargráðu að forset-
inn yrði þátttakandi í því.“