Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2004, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2004, Qupperneq 13
UV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2004 13 Löglegtað auglýsa skemmti- gildið Samkvæmt úrskurði Samkeppnisráðs er Hag- kaupum heimilt að auglýsa að íslendingum þyki skemmtilegast að versla í búðum þeirra. Áður hafði auglýsinganefnd Sam- keppnisstofnunar komist að allt annarri niðurstöðu og talið slagorðið brjóta í bága við samkeppnislög. Samkeppnisráð telur aftur á móti að Hagkaup hafi með vísan í skoðanakann- anir fært nægilegar sönnur á að verslanakeðjan hafi þessa sérstöðu, það er að þar finnist þjóðinni skemmtilegast að versla. Má ekki vísa á flugleiða Iceland Express má ekki nota broskarlaauglýsing- una þar sem spurt er hvort menn séu ekki orðnir leiðir á háum flugfargjöldum - al- veg flugleiðir. Samkeppnis- ráð telur að með þessu sé brotið gegn þeirri grein samkeppnisslaga þar sem bann er lagt við því að kasta rýrð á vörumerki, vöruheiti,- önnur auðkenni, vöru, þjónustu, starfsemi eða aðstæður keppinautar eða sýna þeim lítilsvirð- ingu. Herferðin „tvöföld ástæða til að brosa" er því bönnuð af Samkeppnisráði. Steiktu pylsur bakvið bar Á laugardagsmorgunn barst Lögreglunni í Reykjavík tilkynning um bál í miðborginni. Er málið var kannað kom í ljós að nokkrir menn voru að steikja sér pylsur í porti skemmtistaðar. Var þeim vinsamlega bent á að opinn eldur er bannaður í borginni. Þá bárust lögreglu m.a. til- kynning um flassara í mið- borginni, fjögur minniháttar fíkniefnamál og tveir góð- kunningjar lögreglu voru teknir í miðborginni með tvær fartölvur sem taldar eru vera þýfi. Sprautufíkill á slysadeild Lögreglan á Selfossi var kölluð út að húsi í Hvera- gerði á laugardagsmorgun- inn vegna manns sem þar var sagður vera illa haldinn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni sá hún sprautur og ýmis önnur áhöld til fíkniefnaneyslu á staðnum. Viðkomandi var fluttur á slysadeild Lands- spítalans í Fossvogi þar sem hann liggur enn. Að sögn lögreglu leikur grunur á að veikindi mannsins megi rekja til fíkniefnaneyslu. íslendingar fá 40 tonna túnfiskkvóta fyrir utan lögsöguna. Verðmæti þessa afla gæti numið 100 milljónum kr. en enginn íslenskur bátur fer á þessar veiðar vegna klúð- urs stjónvalda. Enginn bátur var á þessum veiðum í fyrra er kvótinn var 30 tonn. íslendingum hefúr verið úthlutað 40 tonna tún- fiskkvóta í eða fyrir utan fiskveiðilögsögu landsins en enginn íslenskur bátur fer að veiða þennan afla eins og staðan er nú. Sveinn Rúnar Valgeirsson út- gerðarmaður í Vestmannaeyjum segir að sjávarút- vegsráðherra sé búinn að klúðra þessum veiðum. „Við máttum veiða 30 tonn í fyrra og reiknuðum með að úthlutun þess kvóta myndi byggjast á veiðireynslu. Ráðherra ákvað í staðinn að gefa öll- um sem vildu veiðiheimildir til þessara veiða þannig að ekkert skip fór á þessi mið í fyrra," segir Sveinn Rúnar. „Ég held að ráðherra hafi haldið að við, sem stunduðum þessar veiðar fyrir þremur árum, yrðum einhverjir milljónamæringar ef við fengjum kvóta í samræmi við veiðireynslu okkar." Um er að ræða svokallaðann bláuggatúnfisk sem er einhver sá verðmætasti í heiminum enda notaður í hágæða sushi í Japan. Fyrir fyrsta flokk af bláugga eru Japanir nú tilbúnir að borga um 4000 jen eða um 2.500 kr. fyrir kílóið. Aflaverð- mæti þessara 40 tonna gæti því numið um 100 milljónum króna. Sveinn Rúnar Valgeirsson segir að hann hafi stundað þessar veiðar. á sérútbúnum bát, Byr, og hafi ætíð hugsað þetta sem aukabúgrein í útgerð sinni. Fyrir þremur árum var hinsvegar ekki mik- ið um túnfiskgöngur á hafsvæðinu fyrir sunnan land og afli þvf tregur. Þar að auki ákváðu stjórn- völd að klípa af honum annan kvóta á móti þess- um túnfisk. „í fyrra gerist svo það að ég næ samn- ingum við bandaríska útgerð um að veiða þenn- an túnfisk fyrir mig. Hinsvegar ákvað ráðherra þá að í stað kvóta yrðu gefnar út veiðiheimildir til allra sem vildu. Þetta varð þess valdandi að Bandaríkjamennirnir gengu af skaftinu og þessi kvóti nýttist engum hérlendis," segir Sveinn Rún- ar. Mikil barátta Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LIÚ segir að íslendingar hafi lengi barist fyrir réttin- um til að stunda þessar veiðar en það er svokall- að Atlantshafstúnfiskráð sem úthlutar kvótum og hefur stjórn á veiðum á þessum fiski utan fisk- „Við máttum veiða 30 tonn í fyrra og reiknuðum með að úthlutun þess kvóta myndi hyggjast á veiðireynsiu." veiðilögsögu ríkjanna við Atlantshafið. „Það var svo árið 2002 sem barátta okkar skilaði árangri en þá var ákveðið að ísland fengi kvóta árið eftir sem síðan færi vaxandi," segir Friðrik. Samkvæmt þeim fjögurra ára stjórnunarráð- stöfununum sem samþykktar voru fékk ísland heimild til að veiða 30 tonn árið 2003, Þetta var nokkuð meira en íslensk skip höfðu mest veitt á einu ári áður. Aflaheimildir íslands áttu svo að tvöfaldast á umræddum fjórum árum. í ár er hlutur íslands þannig 40 tonn, verður 50 tonn á næsta ári og 60 tonn árið 2006. ísland mun taka virkan þátt í umræðum um næstu skref í endur- úthlutuninni. Undirskriftarlistar foreldra á Mýrum duga ekki til að tryggja skólabílstjóra í sessi Skólaakstur í útboð gegn vilja heimanna Skólaakstur við Grunnskólann í Borgarnesi verður boðinn út þrátt fyrir áskorun fjölmargra foreldra sem vilja að samið verði áfram við núverandi bílstjóra. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Borgarbyggðarlista í bæjarstjórn Borgarbyggðar felldi tillögu minni- hluta Framsóknarflokks um að semja við núverandi bílstjóra. Lög, jafnræði íbúa og fagleg vinnubrögð heimiluðu ekki annað en að skóla- aksturinn yrði boðinn út. „Það er óumdeilt að sú þjónusta sem nú er keypt af skólabflstjórum hefur í alla staði verið til fyrirmynd- ar. Samningar til eins árs í senn er hinsvegar ekki valkostur að okkar mati laganna vegna og auk þess óör- uggt atvinnuumhverfi, bæði fyrir þá sem selja og kaupa þjónustuna og ' ekki síst börnin sem þjónustunnar njóta. Bent skal á að fyrir 4 árum var skólaakstur við Varmalandsskóla boðinn út og hafa aðilar verið ánægðir með þá þjónustu sem þar er keypt," sagði meirihlutinn undir forystu Helgu Halldórsdóttir forseta bæjarstjórnar. Framsóknarmenn sögðust hafna þessari niðurstöðu. „Foreldrar skólabarna á Mýrum hafa sent bæj- arstjórn undirskriftalista þar sem lýst er ánægju með störf núverandi skólabflstjóra og eindregið óskað eftir þjónustu þeirra áfram. Þau störf eru til vegna búsetu þar og hafa svipað vægi á Mýrunum og 40 störf í Borgarnesi miðað við fólksfjölda. Þá eru gildandi aksturstaxtar hagstæðir miðað við það sem gerist," sögðu Finnbogi Leifsson og félagar í bæj- arsstjórnarflokki framsóknarmanna. Við þetta tilefni gerðu framsókn- armenn einnig að umræðuefni jarðasölur sveitarsjóðs Borgar- byggðar. Undanfarið hefði Borgar- byggð selt jarðir á þessu svæði fyrir um 75 milljónir króna til að fjár- magna rekstur sveitarsjóðs og „gæluverkefni" meirihlutans. „Þær eignir voru til staðar vegna fyrirhyggju heimamanna á árum áður og ekki fyrirséð hvort sölu- mennska meirihluta D- og L- lista á jarðeignum þar sé lokið. í ljósi alls þessa og einnig að ékki eru lagaleg ákvæði sem hindra samningagerð við núverandi bflstjóra væri ekki til mikils mælst að farin hefði verið sú leið að framlengja þá samninga í stað þess að bjóða aksturinn út og gera Mýramönnum það ljóst að þeirra vilji er einskis metinn eins og bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Borgarbyggðarlista hafa gert með samþykkt sinni," sögðu Finnbogi og félagar. gar@dv.is Helga Halldórsdóttir Forsetibæjarstjórnar og félagar hennar I meirihlutanum I bæjar- stjórn Borgarbyggðar segja ekki hægt óð semja án útboðs við núverandi skólabilstjóra um áframhaldandi samstarf. Undirskriftar- listar foreldra breyti því ekki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.