Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2004, Page 18
J 8 ÞRIÐJUDACUR 16. MARS 2004
Sport DV
og Grindavík
Grindvíkingar náðu að
knýja fram oddaleik gegn
KR í einvígi liðanna í átta
liða úrslitum Intersport-
deildarinnar á sunnudags-
kvöldið. Grindavík fór með
sigur af hólmi, 108-95, og
þurfa liðin því að mætast í
þriðja leiknum í kvöld.
Grindvíkingar gerðu út um
leikinn í fyrsta leikhluta en
þeir leiddu með 29 stigum,
42-13, eftir hann. Joshua
Murray var stigahæstur hjá
KR með 38 stig og tók jafn-
framt 11 fráköst og Skarp-
héðinn Ingason og Elvin
Mims skoruðu 13 stig hvor.
Hjá Grindavík var Darrell
Lewis (sjá mynd) atkvæða-
mestur, skoraði 34 stig, tók
10 fráköst og gaf 7 stoð-
sendingar. Anthony Jones
skoraði 24 stig og tók 15
fráköst og þeir Pétur Guð-
mundsson og Jackie Rogers
skoruðu 14 stig hvor.
Lauflétt hjá
Njarðvík
Njarðvíkingar eru komn-
ir í undanúrslit Intersport-
deildarinnar eftir léttan sig-
ur, 104-61, á Haukum í
öðrum leik liðanna í átta
liða úrslitum á sunnudag-
inn. Yfirburðir Njarðvíkinga
voru miklir en liðið vann
einvígið samanlagt með
82ja stiga mun. Mike Man-
ciel skoraði 21 stig fyrir
Hauka og tók 12 fráköst,
Kristinn Jónasson skoraði
stig og Sævar Haraldsson
skoraði 10 stig. Brandon
Woudstra (sjá mynd) skor-
aði 23 stig fyrir Njarðvík,
Brenton Birmingham og
Halldór Karlsson skoruðu
16 stig hvor og Páll Kristins-
son skoraði 15 stig og tók
10 fráköst. Njarðvík mætir
Snæfelli í undanúrslitum.
Þrjótarnir þrír
spila í kvöld
Leicester-þrjótamir þrír
Keith Gillespie, Paul Dickov
og Frank Sinclair mættu á
sína fyrstu æfingu hjá
Leicester í gær eftir heim-
komuna frá Spáni. Mikill
Qöldi fjölmiðlamanna beið
þeirra á æfmgasvæði Leic-
ester en þeir gáfu ekki færi á
viðtölum. Þremenningarnir
munu að öllum líkindum
spila með varaliði Leicester í
kvöld gegn Southampton.
Kólumbíski framherjinn Juan Pablo Angel hefur heldur betur verið iðinn við
kolann hjá Aston Villa í vetur en hann hefur skorað 20 mörk það sem af er þessu
timabili. Samingur hans rennur út eftir rúmlega ár en Angel hefur gefið það í
skyn að árangur liðsins muni segja til um hvort hann verði áfram hjá félaginu.
Angel áfram eí Villa
nser Evrópusæti
Kólumbíski framherjinn Juan Pablo Angel á eftir fimmtán mánuði af
samningi sínum við Aston Villa. Hann hefur verið sjóðandi heitur í vetur og
vilja forráðamenn félagsins gera langan samning við kappann. Angel vill
hins vegar bíða og sjá hvort Aston Villa komist í Evrópukeppni á næsta
tímabili enda hefur það verið draumur hans að spila við bestu lið Evrópu
allt frá því að hann kom til félagsins.
David O’Leary, knattspyrnustjóri
Aston Villa, hefur sagt stuðnings-
mönnum félagsins að sofa rólega því
að þrátt fyrir að Angel eigi aðeins
fimmtán mánuði eftir af samningi
sínum geti Aston Villa framlengt
samninginn um eitt ár burtséð frá
óskum Angels sjálfs.
Vill 20 mörk frá honum
„Það er engin ástæða til að fara á
taugum yfir þessu. Hann á enn
rúmlega eitt ár eftir af samningi
sínum og síðan eigum við mögu-
leika á að framlengja samninginn
um eitt ár í viðbót. I dag er ég bara
ánægður fyrir hönd Angels með
A/IÖRK ANGELS í VETUR
Juan Pablo Angel hefur skorað 20
mörk fyrir Aston Villa í öllum keppnum f vetur: Úrvalsdeildin
30.08.03 Leicester 2
14.09.03 Man.City 1
05.10.03 Bolton 1
14.12.03 Wolves 2
20.12.03 Blackburn 1
28.12.03 Fulham 1 '
06.01.04 Portsmouth 1
07.02.04 Leeds 1
11.02.04 Fulham 1
14.03.04 Wolves 2
Samtals 13
Deildarbikarinn
23.09.03 Wycombe 3
03.12.03 Crystal Palace 1
17.12.03 Chelsea 1
21.01.04 Bolton 2
Samtals 7
mörkin sem hann skoraði gegn
Wolves og mér fannst seinna markið
sem hann skoraði vera frábærlega
vel gert. Það hvernig hann tók
boltann með sér og afgreiddi hann í
netið var glæsilegt. Nú vil ég að hann
skori tuttugu mörk í deildinni og ef
mið er tekið af spilamennsku okkar
á undanförnu er það vel mögulegt.
Við spilum sóknarknattspyrnu og
það er alltaf gott að hafa einhvern
sem skorar reglulega," sagði O’Leary
en Angel hefur skorað þrettán mörk
í úrvalsdeildinni það sem af er
tímabilinu.
Dreymir um Meistaradeildina
Angel sjálfur hefúr lítið viljað gefa
út um hvað framtíðin ber í skauti sér
en hefur þó gefið sterklega í skyn að
árangur liðsins muni koma til með að
skipta verulegu máli þegar að því
kemur að.skrifa undir nýjan samning.
„Það mun hafa áhrif á ákvörðun
mína hvar liðið endar í vor og hvort
við komumst í Evrópukeppnina.
Helst af öllu vildi ég komast í
Meistaradeildina því að þá verður
auðveldara að fá toppleikmenn til
liðsins. Ef lið er í sextánda sæti
deildarinnar er það ekki spennandi
kostur fyrir neinn en eins og við
höfum spilað að undanförnu er
Aston Villa orðið spennandi kostur
fyrir góða leikmenn. Við viljum fá
toppleikmenn hingað og það hlýtur
að vera draumur allra leikmanna að
spila í Meistaradeildinni. Ég hef
stefnt að því að spila gegn bestu
leikmönnum heims og það geri ég
bara í Meistaradeildinni. Vonandi
næst það markmið með Aston
Villa." Qskar@0v.is
Enginn veit sína ævina... Kólumbiumaðurinn Juan Pablo Angel hefur ekki ákveðið enn
hvort framtíð hans liggi hjá Aston Villa eða einhverju öðru liði. Reuters
Breytingar á högum íslensku landsliðsstúlknanna hjá danska liðinu TVIS Holstebro
Inga Fríða á leiðinni heim
Landsliðskonan Inga Fríða
Tryggvadóttir, sem leikið hefur með
danska handknattleiksliðinu TVIS
Holstebro í vetur, er á leiðinni heim
eftir eins árs dvöl í Danmörku. Hún
skrifaði undir eins árs samning við
félagið síðasta sumar og sagði í
samtali við DV Sport í gær að hún
myndi ekki framlengja samninginn
af persónulegum ástæðum.
„Sonur minn fór heim í október
auk þess sem ég fékk gott vinnu-
tilboð á íslandi. Það var eiginlega
ekki hægt að hafna þessu boði
þannig að ég klára tímabilið hér og
fer síðan heim,“ sagði Inga Fríða.
Hún sagðist aðspurð ekki hafa
gert það upp við sig hvort hún
myndi spila á íslandi á næsta
tímabili en það kæmi í ljós. „Ég ætla
að einbeita mér að komandi
verkefnum með íslenska landsliðinu
í maí og hugsa ekki lengra en það.“
Skemmtilegt ævintýri
Inga Fríða sagði að tíminn í
Danmörku hefði verið skemmti-
legur og lærdómsríkur. „Þetta er
búið að vera mjög skemmtilegt
ævintýri sem ég sé ekki eftir."
Inga Fríða hefur skorað 38 mörk
með TVIS Holstebro í vetur í
næstefstu deild en liðið er í öðru
sæti deildarinnar.
Allt bendir til þess að þær
Hrafnhildur Skúladóttir, Helga
Torfadóttir og Kristín Guðmunds-
dóttir verði áfram hjá félaginu en
Hanna G. Stefánsdóttir á í viðræð-
um við félagið um nýjan samning.
Á leið heim
Inga Fríða
Tryggvadóttir
er á leiðinni
heim frá
Danmörku.