Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2004, Blaðsíða 27
DV Fókus
ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2004 27
SÝND kl. 5.50, 8, 10.10
B.i. 16 SYND kl. 10
B.í. 14
COLD MOUNTAIN
kl.8 ÍHUNTED MANSION
kl.6
ICBY GOES DOWN
kl. 8 B. i. 14 ára j jBJÖRN BRÓÐIR kl. 6 Með íslensku tali |
m
www.sambioin.is
Nú liggur ljóst fyrir að framhald verður á Svínasúpunni sem sýnd hefur verið við
góðar undirtektir á Stöð tvö í vetur. Aðstandendur þáttanna eru þessa daganna að
leggja drög að handritum fyrir nýju þættina sem sýndir verða næsta haust.
Sigurjón Kjartansson Er að i/on-
um ánægður með viðtökurnar sem
Svínasúpan fékk í vetur enda nærri
þriðjungur þjóðarinnar sem horfði
á þáttinn.
Auðunn Blöndal SegirSvina-
súpufólkið ætla að taka næsta
mánuðinn i að búa til uppskriftir
að nýjum Svinasúpum sem siðan
verða teknar upp i vor og sumar.
Þættirnir munu svo fara til sýning■
ar næstkomandi haust.
„Það lítur allt út fyrir það,“ segir Sigurjón Kjart-
ansson þegar hann er spurður að því hvort fram-
hald verði á Svínasúpunni. Þátturinn hefur verið á
dagskrá Stöðvar tvö undanfarnar vikur og notið
talsverðra vinsælda. Forsvarsmenn stöðvar-.
innar óskuðu þess vegna eftir að framhald |
yrði gert á þáttunum og ætlar Svínasúpufólk-
ið að verða við þeirri beiðni. Tökur munu
hefjast í vor og þættirnir fara svo í
sýningu næsta haust.
Enginn Gnarr að sinni
„Við erum alla vega byrjaðir
að skrifa nýtt efni og ædum svo
að taka það upp í vor,“ segir
Sigurjón Kjartansson, betri
helmingur Tvíhöfða og einn
þeirra sem að Svínasúpunni
koma. Vangaveltur hafa ver-
ið uppi um það hvort Jón
Gnarr muni koma tíl með að
ganga til liðs við Svínasúp-
una eftir að hann og Sigur-
jón tóku höndum saman og
endurvöktu Tvíhöfða eftir
nokkurt hlé. Sigurjón segir
Jóh þó ekki fá að vera með
að þessu sinni.
„Nei, það verður enginn Jón - a.m.k. ekki í
þessari seríu,“ segir Sigurjón enda var búið að
skipa í allar stöður fyrir löngu síðan. „Annars
verður þetta bara með svipuðu sniði og það
hefur verið sem er hið besta mál. Þetta
verður svaka stuð,“ segir Sigurjón sem
segist ánægður með þær viðtökur sem
þættirnir hafa fengið.
„Það var þriðjungur þjóðarinnar
sem horfði á þetta og ég var mjög ánægð-
ur með síðustu seríu þótt við ætíum að
gera betur núna. Við setjum markið
alltaf aðeins hærra enda hefur
það verið mitt mottó í gegn-
um tíðina."
Ritskoðaðir og
reynslunni ríkari
„Þetta verða stutt og
skemmtileg atriði og við
ætíum að taka næsta
mánuðinn í það að I
skrifa handrit að
þessu," segir Auð-
unn Blöndal sem
tekur að þessu sinni
meiri þátt í handrits-
skrifum Svínasúp-
unnar en síðast. Hann segist eiga von á því að öll
næsta sería verði ritskoðuð þar sem tvö atriði í
þeirri síðustu þóttu ekki nægilega smekkleg til að
fara í loftið.
„Ég býst við að þetta verði allt ritskoðað
fyrst að tvö atriði úr síðustu seríu voru
bönnuð," segirAuðunn. „Égtóklítið þátt
í að skrifa síðast en kem meira inn í það
núna. Þegar maður er að skrifa atriðin þá
skrifar maður þau náttúrulega ekki með
það að markmiði að láta ritskoða það.
Við höfum samt meiri reynslu
núna og maður reynir að skrifa
þetta aðeins öðruvísi," segir
Auðunn en auk hans munu
stúlkurnar Edda Björg og Guð-
laug taka meiri þátt í handrits-
skrifunum að þessu sinni.
„Þetta verður mjög svipað
og síðast nema að nú koma
stelpurnar meira að skrifun-
um og ætía að gera nokkur
stelpuatriði," segir Auðunn.
Næstu átta þættir Svínasúp-
unnar munu svo fara í loftið
næsta haust og er allt útíit
fyrir að þeir verði enn betri en
þeir síðustu.
Sænska konungsfjölskyldan er brjáluö eftir vafasamar myndbirtingar á netinu
Sænsku prinsessurnar misnotaðar
Óskaböm Svíþjóðar, Viktoría
krónprinsessa og Madeleine
prinsessa, eiga ekki sjö dagana sæla
um þessar mundir en myndir af
þeim léttklæddum hafa gengið um
netið eins og eldur í sinu síðustu
daga. Það var ákveðin heimasíða
sem birti myndirnar fyrst þar sem
stúlkurnar sjást í heldur vafasömum
stellingum með karlkyns og einnig
kvenkyns leikfélögum. Myndirnar
sem um ræðir em þó faslaðar en það
hefur ekki minnkað áhuga netverja á
að fara inn á síðuna og skoða. Fals-
aðar klámmyndir af alls kyns þekkt-
um einstaklingum ganga iðulega
um netið en þetta er í fyrsta skiptið
sem konungsíjölskyldan sænska
hefur þurft að glíma við þetta
vandamál.
Fjölskyldunni var að vonum ekki
skemmt yfir uppátækinu og er nú
verið að íhuga málaferli. „Þetta er
hræðilegt og í raun ótrúlegt að
mönnum detti í hug að gera svona
lagað. Þetta er algerlega ófyrirgefan-
legt og það hefur þegar verið haft
samband við lögfræðinga konungs-
fjölsky'ldunnar. Þetta er misnotkun
af verstu sort," sagði Ann-Christine
Jernberg blaðafulltrúi konungsíjöl-
skyldunnar um málið.
Sænsku prinsessurnar Þykja með þeim
myndarlegri i bransanum og marga hefur
dreymt um að sjá þær léttklæddar.
Nýorðinn pabbi VignirSnærVigfússon,
gítarieikari og lagahöfundur Irafárs.
Fjölgun í
írafári
Hljómsveitin írafár aflýsti balli
sem halda átti á Gauknum síðast-
liðinn laugardag. Kom það í hlut
hljómsveitarinnar Skítamórals að
leika fyrir gesti staðarins. Aðdáend-
ur írafárs voru að vonum skúffaðir
en ástæða aflýsingarinnar er sú að á
laugardagskvöldið fæddist Vigni
Snæ Vigfússyni, gítarleikara og laga-
höfundi hljómsveitarinnar, og konu
hans, Þorbjörgu Sæmundsdóttur,
lítill drengur. Er það því skiljanlegt
að Vignir hafi frekar vilja eyða laug-
ardagskvöldinu á fæðingardeildinni
þó svo að Gaukurinn sé vissulega
heillandi. Þetta er fyrsta barn Vignis
og Þorbjargar.
Dáðadrengir Ein þeirra sveita sem spilar á
Gauknum I kvöld.
Rokk gegn
rasisma
Árlegir tónleikar Heimsþorps,
samtaka sem berjast gegn rasisma,
verða haldnir í kvöld á Gauki á
Stöng. Fram koma sveitirnar Blús-
byltan, Coral, Lokbrá, Dáðadrengir
og Jan Mayen og hefst fjörið upp úr
klukkan 19:30. Ekkert aldurtakmark
er á tónleikana og aðgangseyrir er
aðeins 300 krónur sem rennur
óskiptur til samtakanna og þess
málstaðar sem þau berjast fyrir.
rr
r