Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2004, Page 29
DV Fókus
ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS2004 29
Vesturport sýnir nú leikritið Brim eftir Jón Atla Jónasson sem sendir nú frá sér
hvert leikverkið af öðru. Páll Baldvin fór á sýninguna, fannst leikritið skemmti-
legt, leikstjórinn þroskaður og leikararnir leika vel.
Leikhús
Það eru komnar einhverjar vikur
síðan Vesturport frumsýndi Brim í
Vestmannaeyjum f hráu smiðjuhús-
næði. Síðan hafa
þau sýnt á ísafirði
og nú liðna viku í
Hafnarfjarðar-leikhúsinu sem hentar
illa undir sýninguna eins og flestar
leiksýningaryfirleitt. f Hafnarfirði var
boðið upp á lélegar sjónlínur af pöll-
um hlöðnum úr brettapallettum sem
eru ónýtar og hættulegar sem áhorf-
endapallar nema þær séu klæddar.
Undarleg afstaða gagnvart gestum
sem borga sig inn á sýningar flokks-
ins. Af hverju er ekki hægt að fara í al-
mennileg hús með þokkalegum sæt-
um og sæmilegum sjónlínum? Af
hverju þarf helst að vera hrátt (blautt,
kalt og illa lyktandi) svo maður geti
meðtekið leikrit „rétt" um líf um borð
í bátspung? Hvað þarf að vera mikil
fýla í húsnæðinu svo maður nái boð-
skapnum? Er sama hvernig fýla það
er? Slor, þránað lýsi, gömul olía?
Tilgerðarrassar.
Þreytt á svartsýnum leikritum.
Vesturport á sér ekki langa sögu.
Kompaníið er myndað kringum
kjarna af leikurum úr tilteknum ár-
göngum úr Leiklistarskólanum
gamla. Þau hafa smátt og smátt safn-
að sér reynslu af stopulum hlutverk-
um en lengst af fimleikasýningunni
um Rómeó og Júlíu sem var hressi-
legt tromp um klisjuhlaðið leikverk
og að sænskri og þýskri fyrirmynd
skreytt einföldum fimleikabrögðum.
Öðruvísi sýning en harla misjöfn en
náði athygli á Englandi og fór þangað
í nokkurra vikna ferð.
Var reyndar ekki fyrsta íslenska
sýningin sem fór á svið í vestur-
hluta London eins og mest var
auglýst, það höfðu bæði Jafninginn
og Meistarinn gert áður og ekki án
opinbers stuðnings eins og líka var
auglýst því Vesturport var styrkt af
leiklistarráði, menningarmála-
nefnd, Leikfélagi Reykjavíkur og ís-
lenska Dansflolcknum þegar fim-
leikasýning um Rómeó og Júlíu var
sett saman. Opinberir peningar
runnu úr öllum áttum í Vesturport
þó þess væri að litlu getið eftirá. Og
skrökva því til að Lundúnatúrinn
væri allur til kominn vegna pen-
inga frá Björgúlfi - yngri en það var
bara kjánalegt - en lastar alls ekki
hans góða framlag.
Þetta er gamaldags leikrit um tvo túra á
bát. Það er skemmtilega skrifað með frek-
ar einföldum en samheldnum þræði, brotið
upp aflitlum númerum á hlið, smá söng,
einstalsbútum, draugagangi. Það er gam-
ansamt og grátt, glettið og grimmt og stíg-
ur vaxandi ölduna án þess að hætta sér í
brotsjó bálmikilla endaloka.
Það er erfitt að sjá hvað dregur
hópinn - ekki hefur hann stefnuskrá.
Lfldega er það metnaður einstakling-
anna sem hópinn leiða. Var ekld
samkvæmt síðustu viðtölunum von
til að þeir ynnu enn frekari sigra á er-
lendum vettvangi? Eða var það líka
bara PR-skrök? Þegar Lyklabörn vom
fmmsýnd vom aðstandendur með
yfirlýsingar þess efnis að þeir væru
orðnir þreyttir á svartsýnum leikrit-
um. Það hefur lfldega breyst.
Brim? Bræla? Súld?
Hvað er að segja um Brim eftir Jón
Atla? Þetta er gamaldags leikrit um
tvo túra á bát. Það er skemmtilega
skrifað með frekar einföldum en
samheldnum þræði, brotið upp af
lidum númerum á hlið, smá söng,
einstalsbútum, draugagangi. Það er
gamansamt og grátt, glettið og
grimmt og stígur vaxandi ölduna án
þess að hætta sér í brotsjó bálmikilla
endaloka: það er ásækið í uppbygg-
ingu og skflar erindi sínu vel.
Höfundi er ekki mikið niðri fyrir
en hann vill lýsa lífi í lúkar og dregur
saman í eina eymdaráhöfn persónur
sem flestar eru vel heilar og heilli í
túlkun hjá sumum en öðrum. Þetta
er alþýðuleikrit sem ætti að eiga sér
víðtæka og almenna skírskotun ef
það væri höndlað með það sem slíkt
og ekki ólíklegt að það eigi sér dá-
góða Jífdaga framundan á vegum
áhugafélaga um land allt. Mér finnst
synd að loka þessa sýningu inní litl-
um sölum fyrir fáa áhorfendur og
meðhöndla hana í kynningu sem
eitthvað fyrir fáa. Hún á erindi víða
og gæti með sæmilegu átaki náð
flugi.
Sönn mynd af sjómennsku?
Verkið styður sig við fremur mí-
tíska hugmynd um líf á bát. Ég veit
ekki hvað hún er sönn og hvað hún er
login. Myndir af sjómönnum og sjó-
mannslífi hafa svo lengi verið klisjur,
bæði á bók og sviði, okkur virðist
ómögulegt að draga upp mynd af sjó-
sólcn án þess að draga upp gamla al-
búmið, nýsköpun á þeim miðum
væri afrek. Hvað er hér á ferðinni:
Bitröðin - orð sem stúlkan í verkinu
notar - goggunarrröð hét það - en
bitröð er fínt orð - það er sem sagt
valdaskipan og vanabundið mynstur
í áhöfn sem er skoðað. Liðið að koma
sér um borð. Það er nýr kokkur, en
þeir þekkja hann. Svo er siglt. Það er
smávægflegt um bakgrunn þeirra
allra, helstu einkennin í fasi, síendur-
tekið mynstrið. Svo fer maður af bát
með sögulegum hætti og í hans stað
kemur stelpa í áhöfnina. Það er siglt
og það er veður... Og svo framvegis.
Fátt gerist en samt margt: inní lúkar-
inn er stappað í rétt tíu fermetra öll-
um átökum og átakasvæðið sveiflast
fram og tilbaka - bókstaflega - æva-
gömlu trikki um sviðsetningar á skip-
um er hér beitt og er íslenskum
áhorfendum nýtt. Undir er hljóðrás
sem er í fullu samræmi, lýsing öll af
skornum skammti.
Gott lið
Hvernig tekst að manna pung-
inn? Að öðrum ólöstuðum fannst
mér Ólafur Egill vera maður
kvöldsins sem Kiddi. Kom að því
sem maður hafði nokkuð lengi
beðið að hann drægist allur inn og
úthverfu látæði hans væri um sinn
lokið. Kraftinum beitt í bælingu, fá-
skiptinn maður yrði til en heill
heimur í sjálfúm sér.
Reyndar er leikur í sýningunni dá-
samlega jafn og heldur sér vel, ýmis
ýkjubrögð í stælum sem eru notuð til
gefa persónunum sérkenni deyja
hægt út í framvindu verksins, td.
munnsvipur og hfljóðkækir, jafnvel
holning hjá Gísla sem leikstjóri hefði
mátt halda inni allan tímann. Hér má
sjá Víking í óvenju góðu formi, fýrr-
nefndan Gísla í karakterleik sem fær-
ir hann frá þessum háa dökka
sleikipinna sem hann hefur verið
settur í lengst af. Leikstjórinn hefur
Vesturport sýnir í Hafnarfjaröar-
leikhúsi og víðar: Brim eftir Jón
Atla Jonasson. Leikendur: Björn
Hlynur Haraldsson, Gísli Örn
Garöarsson, Ingvar E. Sigurðs-
son, Ólafur Egill Egilsson, Víking-
ur Kristjánsson, Nína Dögg Filip-
usdóttir. Leikmynd, hljóð og Ijós:
Björn Kristjánsson, Börkur Jóns-
son, Hlynur Kristjánsson, Sigur-
jón Brink, Leikstjórn: Hafliði Arn-
grímsson. Aðstoðarleikstjórn:
Ólafur Darri Ólafsson.
meira hreinsað kæki sem virtust vera
að festast hjá Nínu Dögg. Þá er Ingv-
ar Sigurðsson hér í fullkominni sátt
við hlutverk sitt og skilar fyrir bragð-
ið manngerð sem er svolítið klisju-
kennd en fullkomlega sannfærandi
og lflcastil hans besti performans um
langt skeið. Björn Hlynur er veikasti
hlekkurinn í persónurófinu: okkur er
sagt eitt og annað um hans mann en
við sjáum aldrei í alvöru háskann
sem brennur í honum, illskuna í aug-
um hans.
Nýr þroskaður leikstjóri
Semsagt lofsverð frammistaða hjá
leikhópnum sem tekur sig alvarlega,
er ekki að þjóna áhorfendum heldur
flytja nýtt verk um alvörufólk af alúð
og einlægni. Gott hjá þeim og gaman
að sjá þennan hóp í ótvíræðri fram-
för, hvern og einn á sínu stigi í list-
þroskanum.
Ekki vil ég kenna eða þakka þeim
Hafliða og Olafi Darra um það ein-
um. Það er aldrei þannig en vitaskuld
eiga þeir heiður skilið fyrir sína vinnu
að þessari sviðsetningu og var kom-
inn tími til fyrir löngu að Hafliði Arn-
grímsson stigi fram úr skugga sinna
samstarfsmanna og tæki til við leik-
stjórn. Ekki veitir af að endurnýja
leikstjórahópinn íslenska. Veri hann
velkominn á þann vettvang og hlað-
ist á hann verkefnin.
Vilja ekki allir íslenskt?
Þáð er sving á íslenskum leik-
skáldum þessa dagana: Draumaland
- nýtt verk fyrir norðan, Sellófan og
Tenór í Iðnó á síðustu sporunum,
Jón Atli í Borgó og bráðum mun Þor-
valdur Þorsteins eiga tvö verk í gangi:
Sveinstykki og Sekt er kennd. Þá er
sýningum að ljúka á Vegurinn brenn-
ur. Þannig er þessi vetur að verða eft-
irminnilegur fyrir þann fjölda ís-
lenskra verka sem fram hafa komið.
Þá er ekkert að gera fýrir þjóðina
annað en að skella sér f leikhús - það
er ekkert slor að byrja á Brimi.
Páll Baldvin Baldvinsson
Stjörnuspá
Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður
er 34 ára í dag. „Mað-
urinn má alls ekki
gefa drauma sína
upp á bátinn því
þeir lifna svo sann-
arlega við þegar
hann fær aukna inn-
sýn og finnur meiri
ánægju í nútíð-
inni," segir í
stjörnuspá hans.
Páll óskar Hjálmtýsson
W Vatnsberinn uo.jan.-w. febr.)
VV ------------------------------------
Orkustöðvar þínar eru öflugar
og óskir þínar eru sannarlega raunhæf-
ar ef þú tilheyrir stjörnu vatnsberans.
Stjarna þín segir ekki aðeins til um vel-
gengni þína heldur lætur drauma þína
verða að veruleika fyrr en þig grunar.
Fiskarnir (i9.febr.-20.mars)
Þegar fyrsta skrefið er stigið í
átt að vellíðan þá hlýtur þú vissulega
eðlislæga hlýju sem umlykur þig og
orkustöðvar þínar til frambúðar. Óvissa
framtíðar er jákvæð því hið þekkta sýnir
aðeins fortíð þína.
Hrúturinn (21.mars-19.apnl)
Draumar þínir verða að veru-
leika ef þú leyfir þér að horfa fram á við
með jákvæðum huga og gleymir aldrei
að hlúa að því sem skiptir þig sannar-
lega máli. Þú kemur fram af hlédrægni
við náungann og beitir skynsemi og
hittir því í mark í mars mánuði.
H
T
ö
NaUtÍð (20.april-20.mal)
Hér er því komið til skila að þú
dragir aldrei úr þeim öfluga mætti sem
býr innra með þér með því að gleyma
þeim sjaldséðu eiginleikum sem þú
býrð yfir kæra naut. Ekki hika við að
hjálpa öðrum að komast af.
D
Tvíburarnir (21 .mal-21.júnl)
Gakktu inn í hið óþekkta af
frjálsum vilja sem sýnir hverja stund lífs
þíns sem áhugavert ævintýri þar sem
þú leikur aðalhlutverkið af alúð.
KrMm(22.]úni-22.júli)
Umfram allt skaltu treysta og
endurgjalda tryggð ef þú ert fædd/ur und-
ir stjörnu krabbans. Hér upplifir þú sannar
tilfinningar og birtist tápmikil/l og aðlað-
andi sökum orkunnar sem umlykur þig.
n
LjÓnÍðf2J./ú//-22. ágúst)
Um þessar mundir ert þú fær
um að treysta þessum takmarkalausa
mætti sem býr innra með þér kæra Ijón
fyrir framvindunni þegar þín hjartans
mál eru annars vegar.
115
Meyjan (23. ágúst-22. septj
Hér helgar þú þig kærleika
þegar líða tekur á lok mars og með auk-
inni sjálfsvitund gerir þú þér Ijóst að ást
og náin kynni þarfnast meira sjálfs-
trausts af þinni hálfu.
Q Vogín (23.sept.-23.okt.)
Hér gýst þú jafnvel upp líkt og
eldfjall varðandi mál sem þú tekur jafn-
vel nærri þér. Þú hefur mikinn viljastyrk,
festu og nægajjreind til að vernda þig
fyrir smávægilégum erfiðleikum sem
koma í veg fyrir að þú upplifir þínar
innstu þrár.
in,
Sporðdrekinn (24.okt-21.n0v.)
Þú birtist hér sjálfsörugg/ur,
yndisleg/ur og brothætt/ur þegar til-
finningar þínar koma við sögu síðari
hluta mars mánaðar. Hugaðu vel að
áherslum þínum hérna.
/
Bogmaðurinnpzmí/.-2/.fe.)
Hér ert þú ert fær um að
skapa skínandi stemningu og hefur
mikið yndi af mannlegum samskiptum.
Einbeittu þér að einum kafla í einu
þegar um tilfinningar þínar er að ræða
og beindu allri athyglinni að þeim sem
þú unnir með sanni.
Steingeitin (22. des.-19.jan.)
Hlustaðu betur á líðan þína
kæra steingeit og tileinkaðu þér að vera
þolinmóðari um þessar mundir. Hættu
að taka á þig hálfa ábyrgðina á mistök-
um annarra.
SPÁMAÐUR.IS
1