Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2004, Síða 31
DV Síðast en ekki sist
ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2004 31 4
Týndar á djamminu Hverjar skemmta sér svo innilega?
„Þetta eru bráðhugglegar stúlkur
og ég hefði ekkert á móti því að
þekkja þær. En það geri ég því miður
ekki."
Kristinn Sigurjónsson heitir
maður sem fann filmu í fórum sín-
um sem hann kannaðist ekki við.
Hann segist ekki hafa hugmynd um
hvernig hún komst í hans hendur.
Honum datt helst í hug að fvrri eig-
andi íbúðar sem hann keypti hafl átt
filmuna en eftirgrennslan hans skil-
aði engu. Kristinn hafði flækst með
þessa filmu í um ár, sem ekki er
venjuleg 35 mm filma heldur APS,
tegund sem hann notar ekki sjálfur.
Það fór svo að Kristinn fór með fil-
muna í framköllun og þá kom á dag-
inn að þar hefur verið mynduð
• Á press.is segir Birgir Guðmunds-
son umsjónarmaður þessa vefs
Blaðamannafélags Islands af öðrum
vef sem nemendur
í fjölrniðlafræöi við
Háskólann á Akur-
eyri hafa sett af
stað opinn og al-
mennan fréttavef
sem heitir Land-
pósturinn. Þar
munu birtast fréttir og pistlar frá
nemendum sem nú eru í námskeið-
inu Inngangur að fjölmiðlafræðren
Birgir kennir einmitt við fjölmiðla-
deildina þar nyrðra. Þegar DV fór
þar inn til að forvitnast um vinnu-
lagið prísaði blaðamaður sig sælan
að vera á tiltölulega frjálslegum
miðli, því sennilega er DV eina
blaðið sem getur sagt frá titli frétt-
arinnar sem er eftirfarandi: „Var
með holdris í sex daga“. Sem segir
okkur væntanlega það að blaðið er í
takt við tíðarandann...
• Farið hefur verið með vinnslu
framlags okkar í Eurovision-
söngvakeppnina
sem mannsmorð.
Upptökurnar eru
nú á lokastigi og
verður lagið frum-
flutt hjá hinum
mikla Eurovision-
aðdáanda Gísla
Marteini Baldurs-
syni í þætti hans Laugardagskvöldi.
Verður þátturinn hinn Eurovision-
legasti og mætir Jónsi í Svörtum föt-
um til viðtals. Þó farið sé með lagið
sem hemaðar-
leyndarmál eru
þeir til sem hafa
heyrt sönginn og
segja þeir Jónsa í
sínu allra besta
formi og eru nú
þegar farnar að
vakna vonir um
góðan árangur í þessari vinsælu
keppni. Kannski ekkert nýtt en
bjartar vonir em þrátt fyrir óánægju
atvinnutónlistarmanna með að ekki
skyldi hafa farið fram forkeppni...
• Söngkonan landskunna Védís
Hervör sem þessa dagana býr í
London þar
sem hún er á
fullu í meiktil-
raunum og
hefur verið að
vinna að tón-
list þar á bæ
með aðilum
sem kallast
Jamie og Fay-
ney. Þegar
þetta ágæta
fólk var að
ræða saman
um daginn og
veginn fyrir
skömmu barst talið að fslandi og
þarlendri tónlist. Kom þá bara á
daginn að Jamie og Fayney þessir
þekktu vel til Stuðmanna og sögð-
ust reyndar vera á leiðinni til ís-
lands til að taka upp tilraunefni
með Jakobi Frímanni og félögum.
Höfðu þeir ekki hugmynd um að
Védís þekkti til þessara aðila og
kom það þeim á óvart. Það er því
greinilegt að frægð Jakobs og fé-
laga nær langt út fyrir landsstein-
ana...
skemmtiferð vinkvenna og ljóst að
þær hafa slett ærlega úr klaufunum.
Einkum eru þetta myndir af klósett-
ferðum vinkvennanna en eins og al-
kunna er fara konur oftast saman á
klósettið séu þær úti að skemmta
sér. En hverjar eru stúlkurnar? „Eins
og ég segi, þá kannast ég ekk- M
ert við stúlkurnar á myndun- I
um og ekki eru þessar nryndir I
teknar að mér nærstöddum," I
segir Kristinn og er helst á I
honum að heyra að honum I
þyki það miður. DV birtir hér I
nokkrar myndanna og kannisl I
einhver við þær eða klósettið I
sem er lielsti vettvangurinn I
getur viðkomandi sett sig í I
samband við Kristinn á net- I
fanginu kristinnsig@heimsnet.is og
vitjað þeirra. Þar sem DV er afar
vant að virðingu sinni eru myn-
dirnar sem hér birtast þær sem
flokkast gætu sem hinar siðprúðus-
tu í syrpunni.
Búið að púðra nefið Þessar
tvær stilla sér upp til myndatöku
á klósettinu, helsta vettvangi
myndanna, albúnar að láta til sin
taka á dansgólfinu. Spurt er:
Þekkir einhver þessar stúlkur?
Eru ekki allir i
stuuuuði? Þær
draga ekki afsér
vinkonurnar en
hverjar eru þær?
=33~~—
ótal möguleikar á uppröðun
rir hagsýna!
iar á frábœru verði
Hirzlan
miðsbúð 6 Garðabæ Sími 564 5040
9.900,-