Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Síða 3
X>V Fyrst og fremst
LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 3
f
gur þá og nu
Kvenralri
Arið 1975 var kvennaár Sameinuðu þjóðanna
og 24. október tóku konur urn allan heim sér frí
til að koma saman og skerpa á baráttumálum
sínum. íslenskar konur um allt land lögðu
niður störf innan og utan heimilis og 25
þúsund manns söfnuðust saman á Lækjar-
torgi og vakti þessi mikla þátttaka hér á
landi heimsathygli. Meðal þúsundanna á
torginu var Sólveig Arnarsdóttir tveggja ára
með mömmu sinni. Tíu árum síðar var
haldið upp á kvennafrídaginn á Lækjartorgi,
þá var Sólveig Amarsdóttir 12 ára á torginu.
„Ég þykist muna eftir kvennafrídeginum
1975, stemningunni og mannfjöldanum en það er
sjálfsagt af því mér finnst ég hafa svo óskaplega gott
minni. í fjölskyldunni er hlegið dátt þegar ég rifja upp atburði
sem áttu sér stað löngu áður en ég fæddist. En mér finnst ég
muna þetta, lifi mig sennilega svo mikið inn í frá-
sagnir annarra að minningarnar verða mínar.
Fundinn áratug síðar man ég pottþétt, það er
sko ekkert ímyndað við þá minningu. Síðustu
árin hefur mér fundist stemningin í jafnréttis-
baráttunni nokkuð alvarleg, fólk hefur látið
eins og jafnrétti hafi verið komið á, ef minnst
er á jafnréttindabaráttu flokkast það undir
kvennatuð og kvenna-eitthvað. En konur
reka sig auðvitað látlaust á misréttið og kann-
anir á síðustu vikum sýna líka að enn er tölu-
vert í land. Mér hefur alltaf fundist kvennabylt-
ingin mesta bylting mannkynssögunnar en
kannski útheimta svona miklar breytingar eitt og hálft
skref aftur á bak fyrir hver tvö áfram." segir SólveigAmars-
dóttir, leikari í Þjóðleikhúsinu og kvikmyndaleikkona í Þýska-
landi.
Spurning dagsins
Treystir þú löggunni?
Þurfa að tengja sig betur
almenningi
„Já, ég treysti lögreglunni. Ég held hins
vegar að gera megi betur við lögregl-
una, fjárhagslega og aðstöðulega og
ég held lika að lögreglan þurfi að
tengja sig betur almenningi og stofn-
unum samfélagsins. Lögreglan á að
geta átt sterkara samtal við okkur hin.
Það á að efna til samtals milli lög-
reglu, stjórnvalda og almennings."
Kolbrún Halldórsdóttir, leik-
stjóri og alþingismaður.
„Já, ég held ég
verði að treysta
löggunni. Þó að
ég hafi ekki
komist i kast við
lögin hefur
maður séð ýmis-
legt til verka hennarsem vekur
mann til umhugsunar."
Hilmar Böðvarson, sölumaður.
„Já, ég hefenga
ástæðu til ann-
ars en að
treysta lögg-
unni. Ég hef
þurft að kalla
hana til vegna
innbrota og
hnupls og þeim farnast verkin vel
úr hendi og þeir hafa gefið mér
góð ráð".
Hjördís Andrésdóttir,
kaupmaður.
„Já, ég treysti
lögreglunni. Ég
hefþurft að
leita til lögregl-
unnar og lög-
regluþjónarnir
hafa brugðist skjótt við og sýnt
kurteisi."
Andrés Magnússon,
blaðamaður.
“f heildina
treysti ég lögg-
unni. Flestir eru
þeir traustir og
góðir menn en
þvi miður er
auðvitað mis-
jafn sauður f mörgu fé i löggunni
eins og annars staðar."
Adolf Ingi Erlingsson,
íþróttafréttamaður.
Nýlega voru 2 lögreglumenn dæmdir i Hérðaðsdómi Reykjavíkur fyrir
skýrslufalsanir, ólögmætar handtökur og ólögmæta notkun táragass. I
vikunni bað næstæðsti yfirmaður flkniefnadeildar lögreglunnar i Reykja-
vík um lausn frá störfum vegna fjárdráttar. Ha?
fótbollabikarnum stoliö
Vorið 1966 var tii-
hlökkun í loftinu á
Englandi því um
sumarið átti að halda
þar heimsmeistara-
mótið i knattspyrnu í
fyrsta sinn. Verð-
launagripurinn sjálf-
ur - Jules Rimet bik-
arinn - var kom-
inn til landsins
frá Brasilíu þar
sem hann hafði
verið í geymslu síðan Brassar
urðu heimsmeistarar 1962. Bik-
arinn var til sýnis í Westminster
í London. Þann 20. mars hrifsuðu
ókunnir aðilar gullbikarinn af sýn-
ingarstaðnum þótt tveir verðir væru
í salnum og komust á brott með
hann. Frímerki að verðmæti 3 millj-
Ubi nihil vales,
ibi nihil velis.
- Þar sem ég er einskis virði,
þar ætti ég ekki að óska neins.
Arnold Geulincx
ónum punda sem einnig voru til
sýnis voru hins vegar látin ósnert.
Fréttirnar vöktu gríðariega athygli
og einkum reiddust Brasllíumenn.
Þeir sögðu að í Brasilíu hefði bik-
arnum aldrei verið stolið þar sem
meira að segja þjófar þar í landi
elskuðu knattspyrnu of mikið til að
fremja slík helgispjöll.
Bikarinn
dúkkaði
upp viku
síðar þegar
kynblend-
ingshund-
urinn
Pickles fann hann undir runna á
víðavangi þegar hann var úti í
göngutúr með eiganda sínum.
Þjófarnir fundust aldrei.
Englendingar fengu að hampa
Jules Rimes-bikarnum um sumarið
er þeir urðu heimsmeistarar en
Brasilíumenn unnu hann síðan til
eignar þegar þeir urðu heimsmeist-
arar í 3. sinn 1970. Hann var settur
á safn í Rio de Janeiro. Þaðan var
honum stolið 1983 og hefur ekki
fundist síðan.
Steinunn Þórarinsdóttir myndlistarmaður (og eiginkona Jóns Ársæls Þórðarsonar
sjónvarpsmanns) og Árni Þórarinsson blaðamaður eru systkini. Þau eru börn Ingi-
bjargar Árnadóttur þýðanda og Þórarins Sveinssonar forstjóra. Steinunn hefur eink-
um sér getið orð fyrir höggmyndir en Árni hefur ritstýrt blöðum allt frá Helgarpóst-
inum fyrsta til Mannlífs en vinnur núá Morgunblaðinu. Upp á síðkastið hefur hann
serrt frá sér glæpasögur sem hlotið hafa dóma góða.
svartur
blár
CD standur
Beyki, eik, mahóní
og tekk
Hlynur, kirsuber og beyki
Beyki og kirsuber
Dýnur í öllum stærðum og
gerðum fyrir fólk sem er
Beyki, hlynur og kirsuber
að stækka.
Mán. - (ös. 10.00 -18.00 * Laugard. 11.00 - 16.00 • Sunnud. 13.00 -16.00
TM - HUSGOGN
Síðumúla 30 - Sími 568 6822
- a vintýri líkust