Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 Fréttir DV Kvæntist ömmu sinni Hálfþrítugur Indveiji gekk á dögunum í hjóna- band með áttræðri ömmu sinni. Ástæðan er einföld; ungi maðurinn vill hugsa vel um ömmu sína. „Ég get betur annast ömmu mína sem eiginmaður hennar heldur en barnabam," segir Narayan Biswas. Amman er líka ánægð með ráðahag- inn og segir Biswas alltaf færa sér máltíðir á réttum tíma. Biswas og amman eru hindúar en samkvæmt þeirra siðum em skyld- leikahjónabönd af þessu tagi bönnuð. Yfirvöld í Panchpara, þar sem hjóna- komin búa, ætía hins vegar ekki að gera neitt í málinu enda hafi fjölskyldan lagt blessun sína yfir hjóna- bandið. Zetatapar dómsmáli Leikkonan, Catherine Zeta Jones, hefur tapað máli gegn fjarskiptafyrir- tæki. Zeta Jones vildi meina að fyrirtækið væri með of mikil umsvif nærri sumarhúsi sfnu í Swansea. Bíla- stæðahús fyrirtæk- isins er á landar- eigninni og umferð að vonum tölu- verð. Leikkonan greiddi rúma millj- ón punda fyrir húsið og kveðst meðal ann- ars hafa verið að kaupa sér frið og ró. Lögmaður síma- fyrirtækisins blæs á þau ummæli og segir mikla um- ferð við landareignina aðal- lega stafa af ferðamönnum sem freista þess að sjá leikkonuna og eiginmann hennar, Michael Douglas, en ekki af viðskiptavinum fyrirtækisins. „Vorið er komið I Skagafjörð- inn og mannlífið blómstrar. Þetta er góð tilfinning enda líka vor komið i mannfólkið og vetrardrunginn þar að víkja fyrir rísandi sól. Ég vona að svo sé einnig fyrir sunnan, því nú er ég að halda suður yfir heiðar á fundi í borginni segir Sveinn Allan Morthens í Varmahlíð I Skagafirði. „Ég er t.d. að fara á aðalfund Sam- Landsíminn um t.atotoniitwiwiwa* aðskilnað ríkis og kirkju, sem haldinn verður að Hótel Lind á laugardag frá kl. 2 síðdegis. I þeim félagsskag er ég odd- viti og við erum sem betur fer að upplifa vaxandi vitund og vilja meðal ráðamanna og almennings um að það þurfi að gera gangskör i því að að- skilja riki og kirkju. Hvet ég alla áhugasama til að mæta á fundinn." Áhöfn Guðrúnar HF-172 færði að landi sjö þorska í soðið fyrir hvern skipshafnar- meðlim. Fiskistofa nappaði skipverja með soðmat og svipti bátinn veiðileyfi í tuttugu daga. Skipstjórinn lýsir aðför að kvótalitlum útgerðum. „Við vorum sviptir leyfí til veiða í þrjár vikur vegna 40 þorska, sem mannskapurinn hugðist hirða í soðið. Þetta er virkilega súrt og kostar út- gerðina og mannskapinn allt að 20 milljónir króna," segir Guðfinnur Jón Birgisson, skipstjóri á Guðrúnu HF-I72, 75 brúttótonna bát, sem nú liggur bundinn í Keflavíkurhöfn. Fiskistofa svipti Guðrúnu veiðileyfi í lok febrú- ar og má skipið ekki vera á veiðum á tímabilinu 5. til 25. mars. Áhöfnin var á kolaveiðum og eins og gengur þá slæddist þorskur með, 40 stykki. Áhöfttin, sex manns, ákvað að láta flaka þorskana og skipta á milli sín í soðið, og fengi hver þeirra þá flök af tæplega 7 þorskum. Einn þeirra tók þorsk- ana með sér áleiðis heim til flökunar, en var nappaður. Hálf milljón á þorsk „Þetta er auðvitað súrt, því það er gömul og viðtekin venja að menn fái að taka smáræði heim með sér í soðið. Það er til ósköp trúverðug kenn- ing um að áhafnir frystitogara taki á þennan hátt heim með sér á milli 700 og 1.000 tonn árlega." Hvers vegna þá að nappa menn fyrir 40 þorska? „Ég held svei mér þá að það sé orðin lítt dulbúin opinber stefna að sauma að kvótalitlu út- gerðunum. Mér sýnist vilji til þess að stúta slíkum mönnum," segir Guðfinnur. Hann segir að gera megi ráð fyrir því að á sviptingartímabilinu hefði Guðrún aflað um 100 tonnum af þorski og segir að miðað við 100 krónur á hvert kíló samsvari tjónið um 20 milljónum króna. Það gerir hálfa milljón króna á hvem hinna 40 þorska. Þar sem um fyrsta brot er að ræða og brot starfsmanna en ekki eigandans finnst Guðfinni að heldur langt sé gengið í refsingunni. Má ekki gefa fátækum? „Þetta em sex þorskar á kjaft og afleiðingin sú að áhöfnin þarf í þrjár vikur að ná sér í salt í graut- inn með öðmm hætti. En harkan getur haft fleiri afleiðingar í för með sér. Sjómenn hafa gjarnan gefið gömlum körlum og fátæku fólki fisk í poka við höfnina eftir túr. Samkvæmt túlkun og fram- kvæmd Fiskistofu er það ólöglegt. Og ekki bara það. Starfsmenn Fiskistofu hafa sjálfir stundum „Þetta er auðvitað súrt, því það er gömul og viðtekin venja að menn fái að taka smáræði heim með sér í soðið." fengið smáræði gefins í soðið og engum þótt það annað en vinsemdarvottur. Samkvæmt Fiskistofú skulu þess- ir Fiskistofumenn gjöra svo yel að fara með pokann á vigtina eftirleiðis," segir Guðfinnur. Það er útgerðarfé- lagið Vör ehf. sem ger- ir Guðrúnu út, en framkvæmdastjóri Varar, Sigurður Aðal- steinsson, vildi ekkert tjá sig um málið sjálft, en sagði að Fiskistofa væri að svipta nánast upp á hvem dag og stundum fyrir fáa fiska. „Eg 'ý hef heyrt dæmi um sviptingu út af hálíú kílói af steinbít. Okk- ar mál er því ekki einstakt," segir Sigurður. fridrik@dv.is Guðfinnur Jón Birg- isson, skipstjóri Guðrúnar HF-172. Grunar að ráðamenn vilji „stúta" kvótalitlu út- gerðunum. Árshátíð Seljaskóla í uppnámi Skólakrakkar sviknir um limmó „Við emm búin að bíða eftir henni heillengi," sagði Jóhanna Schally, nemandi í Seljaskóla, sem var ásamt skólafélögum sínum á leið á árshátíð Seljaskóla um eftirmið- daginn í fyrradag. Krakkarnir höfðu pantað eðalvagn samviskusamlega mörgum vikum áður en tiltekin árs- hátíð hófst. Átti glæsibíllinn að koma klukkan fimm á flmmtudag, en klukkan sex var orðið útséð um að nemendurnir fengju bíllinn í tæka tíð. Um var að ræða samtals 32 ung- linga sem pöntuðu nokkra eðalvagna fyrir árshátíðina. „Þeir voru gjörsamlega búnir að lofa limmu og svo er engin limma á leið- inni. Það eru allir að bíða eftir limmu," sagði Jóhanna í fyrradag. „Það er ekki víst hvort við komumst á ársháfíðina. Við erum orðin sein og yrðum að fara í strætó," sagði hún. Fyrirtækið sem skólakrakkarnir skiptu við er Limoþjónustan Ice Limo. Ekki náðist í fyrirtækið, en samkvæmt því sem skólakrakkarnir segja voru útskýringar þess á töfinni á þá leið að mikið væri að gera. Unglingarnir náðu hins vegar að semja við aðra eðalvagnaþjónustu og náðu þvf á árshátíðina. „Okkur finnst þetta alveg hræði- lega leiðinlegt. Við erum búin að missa af öllum kosningum og öllu. Við vonumst bara eftir því að komast í matinn," sagði Jóhanna, of sein á árshátíð Seljaskóla á Hallveigarstöð- um í fyrrakvöld. Eðalvagn fyrir grunnskólakrakka 32 nemendur ISeljaskóla voru ofseinir á árshátið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.