Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 Fréttir DV Hafnarfjarð- arlöggan herðirtökin Samkvæmt stefnumörk- un og markmiðssetningu lögreglustjórans í Hafnar- firði fyrir árið 2004, skal með markvissum hætti stefnt að fækkun á umferð- aróhöppum og slysum í umdæminu. Nú hafa áhersluverkefni tímabilsins 18. mars til 18. apríl verið ákveðin. Sérstök áhersla verður lögð á eftirlit með hraðakstri og akstri á móti rauðu ljósi og mun lögregl- an einkum beina eftirlitinu að Hafnarfjarðarvegi, Reykjavíkurvegi, Fjarðar- hrauni og Reykjanesbraut frá Fjarðarhrauni og út úr bænum. Kveikt í blaðagámi Slökkvilið höfuðborgar- svæðisins var kallað út vegna elds í blaðagámi við Vatnagarða skömmu fyrir kl. fjögur í fyrrinótt. Gámurinn stendur við bfla- umboðið Bernhard og hafði verið kveikt í honum. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. Ekkert skemmdist fýrir utan gáminn en sót settist á bfl í grennd við hann. Er rétt að ritskoða JónÁrsœl? Ásdís Halla Bragadóttir bæjarstjóri Garðabæjar "Opinber ritskoðun á ekki að vera til staðar með neinum hætti nema verið sé að sverta fólk í skiiningi laganna. EfJón Ársæll heldur sig innan þeirra marka þá er í lagi að senda út þáttinn. Hinsvegar verður Stöð 2 að gera upp við sig hve langt stöðin eigi að ganga í þáttum um þekkt og minna þekkt fólk“. Hann segir / Hún segir "Mér finnst erfitt að meta hvað er rétt og rangt íþessu máli og það liggur ekki í aug- um uppi. Ég treysti þó Jóni Ár- sæli mjög vel til að meta það sjálfur hvað er við hæfi og hvað ekki í þessum þáttum hans almennt. Hinsvegar ber á það að líta að tilfinningar fjölda fólks blandast inn i þetta mál og það þarfað skoða náið." Ögmundur Jónasson þingmaður Vinstri grænna Hljómsveitin Mínus ætlar ekki að láta hlut sinn gegn æskulýðs- og tómstundaráði Hafnarfjarðar heldur er með málshöfðun í undirbúningi. Málið snýst um riftun samnings um að Mínus léki á unglingadansleik á vegum ÍTR. Mínus sendi inn reikning sem ekki hefur verið greiddur. Krafan mun slaga hátt í milljón krónur. Mínus í mál við Hafnarljarðarbæ „Já, ég er að fara yfir málið og skoða það með tilliti til málssóknar, þá með það í huga hvort rift- un Hafnarfjarðarbæjar á samningi við Mínus hafi verið ólögmæt og bótaskyld. Mínus varð af tekjum og lendir í ýmsum vandræð- um vegna málsins. Það er á frumstigi en mér sýnist sem svo að þarna sé grund- völlur fyrir málssókn," segir Sigurður Helgi Guðjónsson, lögmaður hljóm- sveitarinnar Mínus. Grímur tvær á æskulýðsfrömuð Forsögu málsins þekkja flestir en hún er á þá leið að Árni Guðmundsson, æsku- og tómstundafulltrúi Hafnar- sigurður Helgi Guð- fjarðar, hafði gert samning við Mínus jónsson Málið snýst með um að hljómsveitin kæmi fram á grunn- al annars um tjáningar- skólahátíð sem fór ffam 19. febrúar þar fre/s/ en þaðfelst bæði iþvi yfirlýsingarinnar harðlega. „það gerir þetta mál spennandi ir það hinn mesta misskilning. Hann vill ekki upp- lýsa hversu hár reikningurinn er en heimildir DV herma að hann hlaupi á hundruðum þúsunda en væntanleg krafa mun slaga hátt í millj- ón krónur sé tekið tillit til lögfræði- kostnaðar, vanskilavaxta og bótakröfu. Kannski ekki háar upphæðir og stend- ur ekki undir mikilli lúðrasveit réttlæt- isins, segja Mínusmenn. Máni segir að bandið hafi verið kallað sérstaklega heim ffá London með ærnum tilkostn- aði til að leika á grunnskólahátíðinni. Og Sigurður Helgi telur einsýnt að Hafnarfjarðarbær sé ábyrgur fyrir rift- uninni. En málið er flóknara en svo. Þama spila inn í ákvæði um tjáningar- frelsi. Sigurður hefur gagnrýnt tilurð í bæ. Eftir að samingurinn hafði verið að se9/° °9 þegja. Minus gerður kom fram í dagsljósið afar um- ™taði að skri a undiryfir- deilt viðtal vtð hljomsveitarmeðlimi i óg varþá samningium tónlistartímaritinu Bang þar sem þeir tónleikahald rift. tala fjálglega um notkun fíkniefna. Runnu þá tvær grímur á æskulýðsfull- trúann sem taldi að þarna hefði hann keypt köttinn í sekknum. í tilraun til að bjarga því sem bjargað varð dró hann upp yfirlýsingu þar sem stóð að undir- ritaðir hafi aldrei á sinni lífsfæddri ævi neytt fíkniefna og gerði Mínusmönnum að skrifa undir. Þeir neituðu að kvitta en sendu í staðinn frá sér yfirlýsingu þess efnis að þeir Mínusmenn kæmu aldrei fram undir áhrifum fíkniefna né hvetti Árni Guðmundsson hljómsveitin til neyslu þeirra. Það dugði Æskulýðsfulltrúinn neitar ekki tfl og Hafnarfjarðarbær rifti samn- Mínusyekki fremuren fyrir ingnum. Minus kom þvf aldrei fram a aðra þjónustu sem ekki er hátíðinni en umboðsmaðurinn Þorkell vejtt. Máni Pétursson, sem gegnir nafninu Máni, sendi engu að síður inn reikning. Málið snýst einnig um tjáningarfrelsi Máni segir riftunina ólögmæta en reikning- urinn hefur ekki enn verið greiddur, kominn í van- skil og allt stefnir í að þeir hjá Hafnarfjaiðarbæ líti svo á að ekki beri að greiða reikninginn. Máni seg- umfram það að vera einföld innheimta og skuldamál. Tjáningarfrelsi felst bæði í því að mega segja sem og að þegja. Og þar kemur þetta makalausa plagg til skjalannasem þeim var gert að undirrita. Og á forsendum þess telja þeir hjá Hafnarfjaröarbæ sér stætt á að rifta samningi. Hér hefur verið gengið nærri persónurétti og tjáningarákvæð- um. Ég er að skoða þetta mál núna og ef niðurstaðan er sú að þarna sé um mannréttindamál að hluta eða jafnvel að stóm leyti, þá mun ég fá Ragnar Að- alsteinsson, lögmann og félaga minn, til að reka málið,1' segir Sigurður en hann er hagsmunatengdur - sonur hans Bjarni er gítarleikari í Mínus. Árna Guðmundsson vildi sem minnst láta hafa eftir sér um þetta mál. Taldi þó ljóst að Mínus hlyti þá einnig að ætla í mál við Samfés, sem gerði hliðstæða rift- un á sfnum samningi við Mínus-menn. „Þetta kemur mér verulega á óvart og þeir geta sótt þetta mál eins langt og þeir vilja. Líklega er reikningur fyrirliggjandi en ég geri ekki ráð fyrir því að hann verði greiddur fremur en aðrir reikningar fyrir þjónustu sem ekki hefur verið veitt." jakob@dv.is Hljómsveitin Mínus Vill ekki una þvi að Hafnarfjarðarbær greiði ekki reikning sem þeir lögðu inn vegna tónleikahalds sem reyndar aldrei varð. Mínusmenn telja sig eiga kröfu á hendur bæjarfélaginu vegna tekjutaps og ólögmætrar riftunar samn- ings. Krafan slagar í milljónina. Þrír nítján ára piltar frömdu vopnað rán í Bónus í desember Bónusræningjarnir dæmdir í 18 mánaða fangelsi Jóhann Bjarni Guðjónsson, Heimir Ingi Hafþórsson og Elías Fannar Kristjánsson voru í gær dæmdir í 18 mánaða fangelsi fyrir vopnað rán sem Jóhann og Heimir frömdu í verslun Bónuss í Kópavogi að kvöldi mánudagsins 8. desember síðastliðna. Piltarnir eru nítján ára og hafa ekki áður komist í kast við lögin. Fjórði pilturinn Ægir Björn Ólafsson sem var ákærður vegna málsins var sýknaður. Ægi var gefið að sök að hafa lánað Jóhanni og Heimi byssur til verksins en að mati dómsins er ekki hægt að leggja sönnur á það. Ránið í Bónus var óvenju bíræfið en þeir Jóhann og Heimir komu askvaðandi inn í verslunina þegar búið var að loka og ógnuðu starfs- mönnum með afsöguðum hagla- byssum. Elfas var starfsmaður versl- Jóhann Bjarni Guðjónsson Dæmdur ásamt tveimur félögum sinum í 18 mánaða fangelsi. unarinnar á þessum tíma og var við störf þegar ránið var framið. Talið er víst að hann hafi átt hugmyndina að Heimir Ingi Hafþórsson Einn Bónusræn- ingjanna á leið í Héraðsdóm Reykjaness. ráninu og sagt félögum sínum að hægt væri að hafa rúma milljón, jafnvel tvær upp úr krafsinu. Ráns- fengurinn reyndist vera rúmar 600 hundruð þúsund krónur. Jóhann og Bjarni náðust um klukkustund eftir ránið þar sem þeir voru staddir á Hafravatnsvegi. Þýfið og tvær byss- ur fundust við leit í bflnum. Jóhann og Bjarni játuðu sinn þátt í ráninu en neituðu að hafa skipað starfsmönnum Bónuss að krjúpa á kné og hótað þeim lífláti. Umræddir starfsmenn báru vitni í málinu og metur Héraðsdómur framburð þeirra trúverðugan og þykir sannað að Jóhann og Bjarni eru sekir um fyrrgreind atriði. I dómsorði Héraðsdóms Reykjaness segir að við ákvörðun refsingar sé metið til þyngingar að piltarnir voru vopnaðir byssum sem voru til þess fallnar að vekja mikinn ótta hjá þeim sem fyrir urðu. Skiptir þá engu að byssurnar voru óhlaðnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.