Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Blaðsíða 19
DV Fókus LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 19 Hann stakk hana tíu sinnum og fór síðan aftur á geðdeildina. Þar settist hann ró- iegur niður og starfs- fólkið tók ekki eftir neinu. Þegar lögregl- an kom sagðist hann hafa fengið hug- myndina vegna morðsins á Önnu Lindh. Nú standa yfir réttar- höld gegn Mijailo Mijailovic, morðingja Önnu Lindh. Hann hefur átt við geðræn vandamál að stríða. Þegar hann framdi verknaðinn var hann undir áhrifum lyfsins Flunitrazepam. Það er lyfsem glæpamenn nota til að herða sig við ofbeldisverk og forðast tilfinningaleg viðbrögð. blaðamannafundur með Önnu Lindh, Göran Persson, Grikkjanum Papandreou og fleirum átti svo að hefjast gekk sú stutta af stað heim og Anna veifaði til hennar ofan af svið- inu. Hanna Mia vinkaði á móti. Yfir kvöldmatnum sagði Hanna Mia okkur að hana langaði kannski til að verða blaða- eða stjórnmálakona. „Anna er betri en Göran,“ sagði hún. „Hann vildi ekki skrifa nafnið sitt líka með prentstöfum en það gerði hún.“ Daginn eftir þann 10. september var Anna Lindh stungin í vöruhúsinu NK í miðborg Stokkhólms. Það var ekki auðvelt að koma heim og segja baminu frá því að einhver hefði ráð- ist á hetju hennar og stungið mörg- um sinnum með hníf. Þegar hún fór að sofa um kvöldið fullvissaði ég hana um að allt yrði í lagi. Anna væri á sjúkrahúsi og myndi ná sér. Daginn eftir þann ll.september var 12 ára afmælisdagur Hönnu Miu. Þegar við vöktum hana með söng og tertu var það fyrsta sem hún spurði um: „Er Anna Lindh ennþá lifandi?" Við sögðum að svo væri. Klukkan var hálf átta og ekki enn búið að segja frá neinu í fréttum. Svo Hanna Mia borðaði tertu, opnaði pakka og fór í skólann. Þegar sagt var frá því í fréttum að Anna Lindh væri látín gekk ég með Mijailovic morðingi Önnu Lindh Undir áhrifum geðlyfja þegar hann framdi verknaðinn. móður minni að Rosenbad eða Stjómarráðinu í rigningunni. Þar hafði fjöldi fólks safnast sam- an undir svörtum regnhlífum og lagt rauðar rósir við ljósmyndir af utan- ríkisráðherranum. Kerti loguðu og margir höfðu skrifað bréf og kort til hennar með kveðjum og orðum um sorg. Þarna fyrir utan Rosenbad var sterk þögn og ég slökkti á símanum mínum. Á sama tíma kom skólastjórinn inn í bekk Hönnu Miu og tilkynnti bömunum að Anna Lindh væri látín. Þeim var leyft að fara fram ef þau vildu til að hringja í einhvern til að tala um þetta. Hanna Mia hringdi í mig þar sem ég var með slökkt á sím- anum fyrir utan Rosenbad. „Hvað gerðirðu þegar ég svaraði ekki?“ Spurði ég hana eftir skólann. „Ég fór inn til hjúkmnarkonunn- ar, hún er svo góð.“ „Og hvað sagðirðu við hana?“ „Að ég hefði hitt Önnu Lindh í fyrra- dag og nú væri hún dáin og að ég ætti af- mæli og svo fór ég að gráta.“ „Og hvað gerði hjúkrunarkonan þá?“ „Hún fór líka að gráta.“ Um kvöldið kveiktum við á kerti í glugganum fyrir Önnu Lindh og dæturnar settust í fangið á mér. Þær vom sorgmæddar vegna þess að nú áttu tveir strákar á þeirra aldri ekki lengur mömmu. Þær vissu ekki þá að fimm ára stúlkan Sabína hefði einnig verið myrt. Daginn eftír fór Hanna Mia með rósir og lagði þær í tröppurnar þar sem hún hafði hitt Önnu Lindh þremur dögum áður. Á kortinu stóð meðal annars: „Kæra Anna . Hér hitti ég þig í fyrsta og síðasta sinn...“ Eftir skólann kíkti hún við til að sjá hvort rósirnar væri enn á sínum stað. Þegar ég spurði hvort svo hefði verið sagði hún: „Það var róni að tína dósir úr ruslafötum sem gekk að tröppunum og beygði sig yfir þær. Ég hélt að Eiginhandaráritun Hanna Mia fékk bæði Önnu Lindh og Göran Persson til að skrifa nöfnin sín á bæklinginn. Vegna sparnaðar var stórum hluta geð- deilda í Svíþjóð lokað fyrir nokkrum árum. Einn afþeim sem átti stóranþáttí sparnaðarráðstöfun- um i heilbrigðiskerfinu var sósíaldemókratinn Bo Holmberg, eigin- maður og nú ekkill ut- anríkisráðherrans Önnu Lindh. hann ætlaði að taka vöndinn og fékk alveg hjartslátt. En svo sá ég að hann var bara að lesa kortið og síðan lagaði hann rósirnar soldið lengi til svo þær stæðu beinar og fínar.“ Einkennilegur afmælisdagur Hanna Mia kveikti á kerti fyrir Önnu Lindh sem dó á afmælisdeginum hennar. Hér er hún þennan undarlega og tilfinningaþrungna dag, ásamt Emily systur sinni sem þá var fimm ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.