Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 Fréttir DV Rannsókn á máli barnaníðingsins Ágústs Magnússonar leiddi lögreglu á braut prests á Kirkjubæjar- klaustri. Lögreglan gerði húsleit í vikunni í prestsbústaðnum og játaði presturinn að hafa átt í kyn- ferðissambandi við ungling á Akranesi. Prestun og lögga játar -s ■ • •........................ír. .:•■ .............................................................................................II - ........ Frá Kirkjubæjarklaustri Séra Baldar hefur þjónad sem afleysingaprestur á Kirkjubæjarklaustri. Séra Baldur Gautur Baldursson Presturinn, grunnskólakennarinn og lögreglumaöurinn viðurkenndi vip yfirheyrslur hjá lögreglu að hafa haft munnmök við ungan dreng frá Akranesi. Séra Baldur Gautur Baldursson prestur á Kirkjubæjarklaustri hefur ját- að fyrir lögreglunni í Reykjavík að hafa haft munnmök við fimmtán ára gamlan dreng. Það hefur gerst í það minnsta tvisvar, í fyrravor og í september á síð- asta ári þar sem Baldur var í heimsókn hjá drengnum á Akranesi. Hann neitar hins vegar að hafa nauðgað drengnum í janúar á þessu ári en það er nokkuð sem lögregla hefur rannsakað. Lögreglu grunaði séra Baldur um að vera einn af þeim mönnum sem hafa sóst eftir blíðu unglingspilta og notað til þess intemet- ið og textavarpið. Baldur er prestur á Kirkju- bæjarklaustri, kvæntur sóknarprestinum, og hefur ennfremur verið barnaskólakennari og héraðslögreglumaður. Það var rannsókn lögreglu á máli barnaníðingsins Ágústs Magnússonar sem leiddi hana að séra Baidri Gaut. Lögreglan stormaði austur á Kirkjubæjarklaustur á miðvikudag og gerði húsleit í prestsbústaðnum og lagði þar hald á tölvu og gögn. Fyrstu við- brögð Baldurs vom að segja upp störfum sem héraðslögreglumaður. Séra Baldur játaði fyrir lögreglu að hafa átt samneyti við fimmtán ára gamlan ung- lingspilt, þar var um fullframið kynferðis- brot að ræða sam- Séra Baldur játaði fyrir lögreglu að hafa átt samneyti við fimmt- án ára unglingspilt kvæmt heimildum DV hjá lögreglu. Lögregla segir málið á frumstigi rannsóknar. Það er ekki ólöglegt að eiga kynferðismök við fólk sem er eldra en 14 ára. Hins vegar brýtur það í bága við lög að blekkja eða tæla ungmenni yngra en 18 ára til kynferðisathafna. Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykja- vík, staðfestir að í tengslum við rannsókn á máli Ágústs hafi lögreglan fengið gmnsemdir um mál tveggja annarra. „Við fundum tvo aðra sem staðið hafa í svipuðu," segir Hörður. Hann segir að máhn þrjú tengist ekki innbyrðis þótt eðli þeirra sé svipað. Baldur er annar þeirra en hinn er 24 ára Reykvíldng- ur. Samkvæmt heimiidum DV hafa mennimir þóst vera sextán ára gamlir og samkynhneigðir og beðið aðra sem kynna sig með svipuðum formerkjum um að gefa sér upp nöfn á þeim drengjum sem þeir hafi átt mök við. Þannig hafa fuilorðnir menn hist á net- inu og textavarpinu sem báðir þykjast vera ungling- ar án þess að vita að hinn sé bamaníðingur. Með þessu móti berast nöfn unglingsdrengja milli manna sem geta þá reynt að tæla þá til fylgilags við sig. Gmnur leikur á um að með þessum hætti hafi Ágúst komist yfir nafti drengsins á Akranesi og fleiri bama. Séra Baldur var talinn vammlaus reglumaður „Ég biðst vægðar og tjái mig ekki um þetta mál,“ segir séra Baldur Gautur Baldursson, prestur og lög- reglumaður sem hefur játað að hafa tælt unglingspilt. Séra Baldur | sem var samvinnufús við lögreglu og játaði skýlaust brot sín og slapp I þannig við gæsluvarðhald neitaði j ítrekað í samtali við DV að lýsa hugsanlegum málsbótum sínum. Hann taldi fráleitt að fjallað yrði | um mál sitt og sleit samtalinu. Séra Baldur var vígður til prests í I Dómkirkjunni 9. nóvember 1997. Á námsárum sínum starfaði hann sem lögreglumaður og þótti einkar skipulagður og samviskusamur. Séra Kristinn Ágúst Friðfinns- I son, sóknarprestur í Hraungerðis- prestakalli, þekkir séra Baldur Gaut | vel enda vígðust þeir saman. „Hann var í starfsþjálfun hjá | mér og var afskaplega skipulagður maður. Hann kom mér íyrir sjónir sem mikill reglumaður, frekar dul- ur og lokaður, sem vildi hafa allt í | röð og reglu," segir séra Kristinn. Hann segir að þjálfun séra Bald- urs sem lögreglu- manns haft komið glöggt fram. „Baldur Gautur er agaður maður sem hlýðir skipunum sem er aðall þeirra sem veljast til lögreglu- starfa. Ef það væri her á íslandi sæi maður_______________________ fyrir sér að Baldur séra Kristinn Ágúst væri þar,“ segir Krist- Friðfinnson Hefðisíst inn Ágúst. trúað neinu misjöfnu um Hann segir það séraBaidur. koma gjörsamlega flatt upp á sig að Baldur skuli eiga aðild að því máli sem hann hefur játað. Hann hafi talið Baldur vera vammlausan. „Ég hefði síst trúað neinu mis- jöfnu um hann,“ segir Kristinn. Fyrsta brauð Séra Baldurs var Valþjófsstaður og var fyrsta verk hans sem prestur að flytja hugvekju á litlu jólum barnanna á Jökuldal í desember 1997. Séra Baldur var eitt ár fyrir austan. Sigurður Gunnarsson Sýslumaður segir séra Baldur Gaut hafa verið fyrirmyndarstarfsmann. Feiminn Sigurður Aðalsteinsson bóndi á Vaðbrekku í Jökuldal ber honum vel söguna „Hann var vel liðinn og kom vel fyrir þó mér virtist hann dálítið feiminn," segir Sigurður. Hann þjónaði í eitt ár á Val- þjófsstað en hætti og flutti á Kirkjubæjarklaustur þegar kona hans var skipuð sóknarprestur þar. „Barnastarfið fékk aukinn þrótt þegar Séra Baldur kom á staðinn. Það sáu allir eftir honum þegar hann fór,“ segir Sig- urður. Séra Baldur sótti um sem rektor Skál- holtsskóla árið 2001 en fékk ekki. Árið 2002 var hann í fram- boði til sveitarstjórn- ar undir merki Nýs afls en náði ekki kjöri. í janúar síðast- liðnum sótti Baldur Gautur um embætti sóknarprests í Mos- fellsbæ en fékk ekki. Seinustu mánuði hefur hann sinnt ýmsum prestsstörfum á Kirkjubæjarklaustri auk þess að kenna við grunnskólann í heima- byggð sinni. Árið 2002 leysti hann af sem sóknarprestur á meðan kona hans var í fæðingarorlofi. Sýslumanni brugðið Baldur Gautur hefur leyst af sem héraðslögreglumaður í umdæmi Sigurðar Gunnarssonar sýslu- manns í Vík. Sýslumaður segist Sigurður Sigurðsson Áfall, segir vígslubiskup um máiprestsins á Kirkjubæjarklaustri. hafa verið algjörlega grunlaus um brot Baldurs og ekki haft hugmynd um þau fyrr en Reykjavíkurlögregl- an hafi komið til hans með húsleit-1 arbeiðni á miðvikudag. Daginn áður var séra Baldur starfandi lög- reglumaður á Skarðsfjöru þar sem Baldvin Þorsteinsson EA strandaði. „Þetta eru kenndir sem maður I þekkir ekki sjálfur," segir Sigurður um athæfi undirmanns síns. Hann | segir Baldur Gaut hafa verið fyrir- myndarstarfsmann og engar at-1 hugasemdir verið gerðar við hans störf. „Hann stóð sig mjög vel í | starfi hér,“ segir hann. „Auðvitað er þetta áfall að heyra,“ segir séra Sigurður Sigurð- arson, vígslubiskup í Skálholti, um I mál séra Baldurs Gauts. „En ég get engan dóm fellt miðað við þær upplýsingar sem ég hef.“ Vígslubiskupinn í Skálholti segir I jafnframt að málið sé nú í þeim far- vegi sem það eigi að vera í og sér- stakur talsmaður Biskupsstofu muni svara þeim spurningum sem upp komi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.