Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Side 4
4 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004
Fréttir DV
Líkmenn í
haldi út aprfl
Líkmennimir í Nes-
kaupstað Jónas Ingi Ragn-
arsson, Grétar Sigurðarson
og Tomas Malakauskas
verða í gæsluvarðhaldi til
30. aprfl samkvæmt úr-
skurði Héraðsdóms Reykja-
víkur í gærkvöldi. Rann-
sókninni á iáti Vaidasar
Juceviciusar verður brátt
lokið hjá Rfldslögreglustjóra
og málið sent til rfldssak-
sóknara sem gefur út ákær-
ur í málinu. Ríkislögreglu-
stjóri fór fram á að halda
mönnunum fram að dómi.
Rökin fyrir því em að að-
ferðir þeirra hafi verið
óvenjulega harkalegar og
að þeir eigi yfir höfði sér
þunga dóma.
Dóvegna
garnastíflu
í áliti Þóm Steffensen
sem kmfði og rannsakaði
líkið lést Vaidas vegna þess
að garnir hans stífluðust
vegna eiturlyfjahylkjanna
sem hann gleypti til að
smygla amfetamíninu inn í
landið. Vaidas lést að
morgni 6. febrúar en lík
hans fannst í höfninni við
netabryggjuna í Neskaup-
stað að morgni 11. febrúar.
Lögreglan hefur náð að
upplýsa að Vaidas hafi
veikst fljódega eftir að hann
kom til landsins. Frá 3. til 6.
febrúar voru honum útveg-
uð hægðalosandi lyf. Svo
var honum gefið Contalgin.
Lögmenn
gagnrýna
Vaidas lést í íbúð Tom-
asar Malakauskas við Furu-
grund í Kópavogi. Um mið-
nætti sunnudaginn 8. febr-
úar losuðu þremenning-
arnir lfldð úr teppinu á
netabryggjunni, þyngdu
það og stungu fimm göt á
lfldð með hnífi til aö hleypa
úr því lofti. Sveinn Andri
Sveinsson, lögmaður Jónas-
ar llagnarssonar, gagnrýnir
harölega að krufningar-
skýrsla hafi ekki verið lögð
fram með gæsluvarðhalds-
kröfunni en upplýsingar úr
henni hafi komið fram í
sjónvarpinu í gær. ITann
segir ekki rök fyrir því að
halda skjólstæðingi sfnum
svo lengi í gæsluvarðhaldi.
Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir fjárdrátt innan fikniefna-
lögreglunnar aðeins tengjast Halli G. Hilmarssyni, næstráðanda yfirmanns hennar.
Ríkissaksóknari er byrjaður að safna gögnum til að fylgja eftir erindi lögreglustjór-
ans í Reykjavík.
tengjast einum
lögreglumanní
Hörður Jóhannesson, yfirlögreglu-
þjónn í Reykjavík, kveðst telja að mál
Halls G. Hilmarssonar, næstráðanda yf-
irmanns fíkniefnadeildar lögreglunnar,
sé einangrað tilvik. „Það eru engar grun-
semdir um að aðrir starfsmenn embætt-
isins tengist þessu máli, eða að um sé að
ræða önnur tilvik."
Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykja-
vík, hefur sent rfldssaksóknara erindi um
son rSSL hugsanlegt brot innan lögreglunnar. Að-
IReykjavik kveðst telja spurður hvort rannsoknm nat vröar en til
að fjárdráttarmál Halls segir Bogi Nilsson ríkissaksóknari enga
Halls Hitmarssonarsé ákvörðun hafa verið tekna um það. „Það er
einangrað tilvik. ekkert farið að huga að slíku. Við bíðum eftir
gögnum sem lúta að þessu máli, en það er
ekkert sem kemur fram í erindi lögreglunnar að um annað sé að
ræða,“ segir Bogi.
Ekki náðist í Hall vegna málsins í gær. Ragnheiður Davíðs-
dóttir, forvarnarfulltrúi hjá VÍS og fyrrum lögreglumaður til
margra ára, þekkir Hall ágætlega. Hún segir þessar fréttir hafa
komið sér mjög á óvart og síst trúað því upp á Hall að hann hafi
brotið af sér í starfi. „Þetta er mannlegur harmleikur en ég þekki
Hall ekki nema af góðu. Hann er vænn piltur og þægilegur í allri
umgengni," segir Ragnheiður.
Fyrrverandi lögreglumaður sem vann lengi með Halli segist
þó ekki hafa orðið hissa þrátt fyrir að slíkar fréttir séu sláandi.
Hann segir það kjánaskap að slá eign sinni á fé sem lögreglan
tekur af sakborningum. Hallur tók 900 þúsund krónur í pening-
um sem hirtar voru í fíkniefnamáli sem hann rannsakaði. Málið
komst upp fyrir tilviljun þegar sakborningurinn spurðist fyrir
um féð.
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri staðfestir að hann
hafi veitt Halli lausn frá störfum. „Böðvar Bragason lögreglu-
stjóri leitaði til mín og óskaði eftir því við mig að ég veitti
Halli Hilmarssyni lausn frá störfum. Ég féllst á lausnar-
beiðnina í gær (fyrradag) og fól Böðvari að kynna fulltrú-
anum þessa ákvörðun," segir Haraldur. Hann vill að
öðru leyti ekki tjá sig um málið á þessu stigi.
Hallur tók 900 þúsund
krónur í peningum sem
hirtar voru í fíkniefnamáli
sem hann rannsakaði.
Máliðkomst upp fyrir til-
viljun þegar sakborningur-
inn spurðist fyrir um féð.
Hallur G. Hilmarsson
Næstráðanda i fikniefna-
lögreglunni var veitt lausn
frá störfum í fyrradag
eftir að i Ijós kom að
hann stal 900 þús-
und krónum afsak-
borningi i fikni-
efnamáli.
Segip fjárdrátt aðeins
Leitin að stjórnarandstöðunni
Svarthöfði rankaði við sér í gær-
dag þar sem hann stóð á götu-
horni og góndi £ kringum sig.
Hann fann á sér að honum lá lífið
á að muna eitthvað, finna eitt-
hvað, komast á snoðir um eitt-
hvað, en hann gat ekki fyrir sitt
litla líf munað eftir því hvað það
var. Og hann mundi ekki einu
sinni hversu lengi hann hafði stað-
ið þarna á þessu horni, þótt hann
rámaði í að hafa fariö að heiman
frá sér um morguninn, staðráðinn
í aö ljúka einhverju aðkallandi
verkefni. En svo hafði verkefnið
smátt og smátt gufað upp úr huga
hans þangað til hann stóð þarna
gapandi á götuhorninu og vissi
ekld sitt rjúkandi ráð.
Það flögraði um huga Svart-
höfða hvort honum væri kannski
farið að förlast svona almennt,
kannski væri þetta ráðleysisástand
upphafið á Alzheimer eða ein-
íl
1 v.> >« Svarthöfði
hverjum öðrum hrörnunarsjúk-
dómi. Og Svarthöfði skjögraði inn
á næsta kaffihús og bað um fjór-
faldan expressó til að reyna að ná
áttum.
Og smátt og smátt náði Svart-
höfði að jafna sig og það fór að rifj-
ast upp fyrir honum að hverju
hann hafði verið aö leita. Loks stóð
það honum kýrskýrt fyrir hug-
skotssjónum.
Já, hann hafði farið að heiman
algerlega harðákveðinn í að finna
stjórnarandstöðuna á íslandi.
Hann hafði verið ákveðinn í að
leita uppi össur Skarphéðinsson
og Steingrím J. Sigfússon og Guð-
jón Arnar Kristjánsson og allt
þeirra fólk og hann hafði ætlað að
spyrja hvað liði eiginlega stjórnar-
andstöðunni. Þeirri stjórnarand-
stöðu sem þeir þremenningar
höfðu allir boðað að yrði svo hörð,
en hefur síðan ekki bólað á og er
svo máttlaus aö Davíð Golíat
Oddsson forsætisráðherra kemst
upp með það á Alþingi að líkja
henni við „litla karla". Hvar er
harkan, góðir hálsar? ætíaði Svart-
höfði að spyrja. Hvar eru málefnin,
hvar er stefnan, hvar er þrótturinn,
hvar er andinn, hvar er falska
gamla góða íjögra gata flautan mín
En leitin skilaði engum árangri.
Það var sama hvar og hvernig
Svarthöfði leitaði, hvergi fann
hann stjórnarandstöðuna. Og að
lokum hafði lagst yfir hann sá sami
drungi og einkennir stjórnarand-
stöðuflokkana, þangað til hann
stóð þarna á götuhorninu í al-
gleymi tilgangsleysis og deyfðar.
Svarthöföi